Sport

Reyes enn áhugasamur um Real

Spánverjinn Jose Antonio Reyes, framherji Arsenal-liðsins, hefur enn á ný viðurkennt áhuga sinn á að segja skilið við liðið og semja við Real Madrid - svo framarlega sem forráðamenn Arsenal gefi grænt ljós á það. "Það væri mikill heiður ef Real Madrid hefði áhuga á mér. Enginn myndi slá hendinni fyrir að spila með svo stóru félagi," sagði Reyes. "En fyrst þurfa viðræður að eiga sér stað. Þetta er í annarra manna höndum." Fregnir herma að stærsta ástæðan fyrir því að Reyes vilji fá flutning sé heimþrá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×