Sport

Sigurganga Barcelona heldur áfram

Barcelona heldur áfram sigurgöngu sinni í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona sigraði Athletic Bilbao með tveimur mörkum gegn engu. Deco og Ludovic Giuly skoruðu mörk Barcelona sem hefur nú 11 stiga forskot. Real Betis sigraði Malaga 2-1. Real Madrid á leik til góða á Barcelona og mætir Getafe í dag klukkan 18. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×