Sport

FH í góðum málum

FH-ingar eru komnir með annan fótinn í úrslitakeppninni í handbolta eftir öruggan sigur á Aftureldingu í kvöld, 34-27. Aðeins ein umferð er eftir af 1. deildinni og Fram og FH eru örugg með efstu tvö sætin. FH er með stigi meir en Fram og nægir því sigur í lokaleik sínum til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni. Mörk FH: Guðmundur Pedersen 7, Brynjar Geirsson 6, Heiðar Örn Arnarson 6, Hjörleifur Þórðarson 5, Hjörtur Hinriksson 4, Jón Helgi Jónsson 2, Arnar Pétursson 1, Valur Örn Arnarson 1. Mörk Aftureldingar: Ernir Hrafn Arnarson 8, Vlad Troufan 6, Ásgeir Jónsson 3, Einar Ingi Hranfsson 3, Magnús Einarsson 3, Daníel Jónsson 2, Hilmar Stefánsson 1, Jens Ingvarsson 1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×