Sport

ÍR með tak á HK?

Svo virðist sem ÍR-ingar séu með eitthvað tak á HK piltum í handboltanum, en liðið sigraði leik í liðana í kvöld með 32 mörkum gegn 29. Þessi sömu lið áttust við í bikarúrslitum nú á dögunum þar sem ÍR sigraði einnig. Með sigrinum eru ÍR-ingar komnir upp að hlið HK á toppi deildarinnar með 14 stig. KA menn sigruðu Víkinga örugglega á Akureyri 26-19. Nú stendur yfir leikur Hauka og Vals, en hann hófst seinna en hinir leikirnir tveir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×