Sport

Vallarvörður ekki sekur

Chelsea hafa lýst yfir ánægu sinni yfir því að vallarvörðurinn, sem Samuel Etoo ásakaði um að hafa kallað að sér niðrandi orð um kynþátt sinn, sé saklaus. Chelsea höfðaði innanbúðar rannsókn á málinu sem átti að hafa gerst eftir 4-2 sigur þeirra á Barcelona í gær og yfirheyrðu meðal annars öryggisvörðinn sjálfan sem og vitni sem voru í göngunum þar sem atvikið átti að hafa gerst. "Öryggisvörðurinn er mjög vonsvikinn vegna ásaka Samuel Etoo," sagði talsmaður Chelsea í dag. "Klúbburinn hefur rannsakað málið og telur að vörðurinn hafi ekki verið með kynþáttafordóma."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×