Sport

Beckham tæpur

Óvíst er hvort David Beckham getur leikið með Real Madrid í síðari leik liðsins gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Beckham lék meiddur með Real í jafnteflisleik við Valencia um helgina og segir að eftir á að hyggja hefði hann betur hvílt sig í þeim leik. "Ég fékk góða meðferð við meiðslunum fyrir leikinn, en það skilaði ekki tilsettum árangri, sagði Beckham. "Við verðum að fara til Ítalíu fullir sjálfstraust og stefna að sigri, því það þýðir ekkert að fara til Tórínó með það fyrir augum að leika upp á jafntefli, því hef ég fengið að kynnast með Manchester United".



Fleiri fréttir

Sjá meira


×