Matur

Gaman að fylgjast með góðum kokkum

"Mér líst ótrúlega vel á þessa hátíð og það er gaman að fá nýtt blóð inn á staðina," segir Róbert Egilsson matreiðslumaður á veitingastaðnum Einari Ben um Food&Fun matarhátíðina. "Gestakokkurinn okkar, Chris Watson, ætlar að elda þjóðlega skoska rétti á nýstárlegan máta svo það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út," segir Róbert og bætir við að honum lítist afar vel á matseðilinn.

"Í forrétt er skelfiskur í reyktu ýsusoði en reykta ýsan er náttúrulega mjög skosk. Það er mjög gaman að fylgjast með svona góðum kokkum eins og Chris búa til eitthvað úr hráefnum sem maður þekkir en með allt öðrum leiðum."

Lestu meira í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.