Sport

ÍR-ingar bíða og bíða

Erindi stjórnar handknattleiksdeildar ÍR til stjórnar HSÍ um að leik ÍR og ÍBV verði seinkað frá 17. desember til 18. desember hefur enn ekki verið svarað. Um fimm vikur eru síðan upprunaleg beiðni var lögð inn.

Þótt mótanefndin hafi hafnað beiðni ÍR á dögunum gerði hún sér samt lítið fyrir um daginn og bað ÍR um færa leik gegn Val um einn dag. ÍR tók vel í beiðnina en varð síðan að hafna henni þar sem nokkrir leikmanna liðsins eru í prófum sama dag og mótanefndin vildi færa leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×