Tíska og hönnun

Glanstímarit á Íslandi

Base Camp er ungt og framsækið framleiðslufyrirtæki sem tekur að sér að skipuleggja alls kyns viðburði. Helgina 22.-24. október kemur Base Camp upp grunnbúðum við rætur Sólheimajökuls. Ástæða þessarar uppákomu var að breska glanstímaritið In Style ferðaðist hingað til lands til að taka tískuljósmyndir.

In Style hefur gert það að venju að fá fræga leikara sem fyrirsætur og í þetta skiptið varð Jaime Murray fyrir valinu. Hún er aðalstjarna vinsælla þátta sem heita Hustle og eru sýndir í heimalandi hennar, Bretlandi.

"Myndatakan og allt ferlið gekk eins og í sögu og hefði í raun ekki getað gengið betur. Leikkonan ásamt fríðu föruneyti frá In Style fór ánægð heim eftir að hafa upplifað fegurðina á Íslandi," segir Lárus Halldórsson, yfirframleiðandi Base Camp.

Fleiri erlendir gestir eru væntanlegir til lands með aðstoð Base Camp og má þar nefna útivistarvöruframleiðandann Timberland og dagblaðið Daily Telegraph.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.