Tíska og hönnun

Fatnaður úr plöntubeðma

Í versluninni Igmu er í boði fatnaður sem unninn er úr plöntubeðma, en það er fjölsykrungur sem er öllum plöntum nauðsynlegur. Það sem plöntubeðmi þykir hafa umfram bómull í fatnaði er að hann dregur fyrr í sig raka og sleppir honum hraðar en bómullin gerir sem þýðir að flíkin andar vel. "Sérstaklega hefur verið mælt með þessum flíkum fyrir fólk sem stundar einhverja hreyfingu, þó að þetta henti að sjálfsögðu öllum því það er bara ótrúlega þægilegt að klæðast þeim. Efnið er einstaklega mjúkt og heldur flíkin sér ótrúlega vel alveg sama hversu mikið hún er þvegin og liturinn dofnar ekki neitt," segir María Hrafnsdóttir annar eigandi Igmu. "Hægt er að hafa flíkina í vasanum heilan dag, skella sér svo strax í hana án þess að hún sé nokkuð krumpuð," segir María.

Igmu rekur María ásamt vinkonu sinni Ingibjörgu Jónsdóttur en þær byrjuðu mjög smátt og fluttu inn fáar vörur og notuðust við herbergi dóttur Ingibjargar til að byrja með. "Allt hefur gengið mjög vel upp og nú erum við komnar með þessa verslun en við höldum einnig sölukynningar í fyrirtækjum," segja þær. Eitthvað hefur fólki þótt erfitt að finna verslunina en hún er við Kleppsmýrarveg beint á móti Bónus í Skútuvoginum. "Þegar fólk hefur ratað hingað til okkar þá kemur það alltaf aftur og eigum við orðið góðan hóp fastakúnna sem við þekkjum orðið vel og hefur það verið sagt við okkur að við séum best geymda leyndarmálið í Reykjavík," segja þær brosandi.

Fimelle rúllukragabolur kr. 3.59Mynd/GVA
Fimelle nærfatasett kr. 2.580Mynd/GVA
Fimelle hlýrabolur kr. 1.590Mynd/GVA
Nina Von C nærfatasett kr.5.280Mynd/GVA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.