Viðskipti innlent
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 334 ›
Snýr aftur til Snjallgagna Óli Páll Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gagnavísindateymis Snjallgagna og snýr jafnframt samhliða aftur í eigendateymið. Viðskipti innlent 7.5.2024 07:41
Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Dyrunum að skemmtistaðnum B5 hefur verið skellt í lás í hinsta sinn. Eigandi segist nú beina sjónum alfarið að rekstri skemmtistaðarins Exit, og fjörið haldi áfram þar. Viðskipti innlent 6.5.2024 21:55
Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Heildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, fjórum prósentum fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega. Viðskipti innlent 6.5.2024 17:36
Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið og bandarísku flugvélaleiguna ALC af milljarðakröfum Isavia. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði komist að annarri niðurstöðu og taldi að dómari við Héraðsdóm Reykjaness hefði komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 6.5.2024 16:36
Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Mímir Hafliðason hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Högum, en staðan er ný innan samstæðunnar. Viðskipti innlent 6.5.2024 09:48
Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Stefnt er að því að reisa fjölda íbúða, matvöruverslun og fleira í móa skammt frá Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Framkvæmdastjóri verkefnisins segir það bæta þjónustustig flugvallarins til muna. Viðskipti innlent 4.5.2024 23:01
Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Fyrirhugaður samruni félaga sem eiga tvær af umsvifamestu læknisfræðilegu myndgreiningarþjónustufyrirtækjum landsins fær ekki að ganga í gegn eftir að Landsréttur staðfesti ógildingu Samkeppniseftirlitsins á honum í dag. Viðskipti innlent 3.5.2024 18:58
Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viljinn, fjölmiðill Björns Inga Hrafnssonar, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Viðskipti innlent 3.5.2024 13:05
Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Spáin rímar við spá Íslandsbanka sem gerir einnig ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir. Viðskipti innlent 3.5.2024 12:39
Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fer fram í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 13 og 15. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er „Best í heimi?“, en hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 3.5.2024 12:31
Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Nýtt flugfraktfélag, Odin Cargo, hefur gengið frá langtímasamningum við birgja og hyggst bjóða uppá sömu flugáætlun og Bláfugl, sem nýverið skilaði inn flugrekstrarleyfi sínu. Odin Cargo mun bjóða upp á fraktflug alla virka daga milli Keflavíkur, Billund og Kölnar. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:54
Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:10
Guðný og Sigurður Helgi til SI Guðný Hjaltadóttir og Sigurður Helgi Birgisson hafa verið ráðin viðskiptastjórar á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og matvælaiðnaði. Viðskipti innlent 3.5.2024 09:46
Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Skúli Bragi Geirdal, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, hefur tekið við stöðu sviðsstjóra SAFT - Netöryggismiðstöðvar Íslands (Safer Internet Center á Íslandi). Viðskipti innlent 3.5.2024 08:30
Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Íslandsbanki hagnaðist um 5,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Kostnaðarhlutfall bankans hækkar á milli ára og er rétt nær fjárhagslegu markmiði bankans. Viðskipti innlent 2.5.2024 17:46
Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Arnar Már Magnússon hefur verið gerður að aðstoðarforstjóra flugfélagsins Play. Arnar Már hefur verið framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play og mun áfram sinna þeirri stöðu meðfram nýju hlutverki. Viðskipti innlent 2.5.2024 16:50
Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Vinnunetföng sem notuð eru í persónulegum erindagjörðum geta orðið hluti af alvarlegum öryggisbresti fyrir tölvukerfi vinnuveitandans. Mörg dæmi eru um að netföng starfsfólks birtist á mismunandi vefsíðum sem eru ótengd vinnuveitandanum, eins og X (Twitter), Einkamál, Strava, Bland.is og jafnvel á klámsíðum. Viðskipti innlent 2.5.2024 14:01
Sjö vilja taka við af Gunnari Alls bárust sjö umsóknir um embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika en forsætisráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar 9. apríl síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 30. apríl. Gunnar Jakobsson baðst á dögunum lausnar og var Arnór Sighvatsson settur tímabandið í embættið. Viðskipti innlent 2.5.2024 13:54
Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður. Viðskipti innlent 2.5.2024 12:55
Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Aðaldagskrá Iceland Innovation Week var birt í morgun. Þátttakendur frá meðal annars Google, Microsoft, Snapchat, NATO Innovation Fund og UN World Food Programme eru væntanlegir til landsins á hátíðina, sem fer fram dagana 13-17. maí. Viðskipti innlent 2.5.2024 11:02
Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Sala hófst í dag á fyrsta áfanga af fjórum á Orkureitnum svokallaða. Um er að ræða 68 íbúðir í sjö hæða húsi við Suðurlandsbraut, vestan við Orkuhúsið. Stærð íbúða er á bilinu 38 - 166 fermetrar. Viðskipti innlent 2.5.2024 10:40
Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Askur – mannvirkjarannsóknasjóður og Rannís bjóða standa fyrir fundi um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði og hefst hann klukkan 10. Hægt að fylgjast með fundinum í streymi í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 2.5.2024 09:58
Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Haraldur Þorleifsson hefur lokað veitingastað sínum Önnu Jónu á Tryggvagötu. Hann segist enn vera að melta hlutina en segir ákvörðunina vera gríðarlega mikinn létti. Erfitt rekstrarumhverfi hafi spilað sinn þátt. Viðskipti innlent 2.5.2024 09:26
Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum. Viðskipti innlent 30.4.2024 16:24
Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi, sem er nýjasta hverfið í Kópavogi. Viðskipti innlent 30.4.2024 15:07
Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Aðalfundur Landsvirkjunar hefur samþykkt tillögu stjórnar um þrjátíu milljarða króna arðgreiðslu í ríkissjóð. Það er tíu milljörðum króna hærri arðgreiðsla en stjórnin lagði til þegar ársreikningur fyrirtækisins var birtur í febrúarlok. Fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir því að arðgreiðslan yrði hækkuð í ljósi þess að árið 2023 var besta rekstrarár í tæplega sextíu ára sögu Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 30.4.2024 13:39
Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Atvinnulíf, stjórnvöld og stéttarfélög ræða eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn í beinu streymi frá Hörpu klukkan 11:45 undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Viðskipti innlent 30.4.2024 11:41
Landa stórum sölusamningi Alvotech tilkynnti í dag að nýgerður samningur í Bandaríkjunum um dreifingu og sölu á líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab) sé við Quallent Pharmaceuticals, dótturfélag Cigna. Samningurinn sé gerður með samþykki Teva Pharmaceuticals, sem er samstarfsaðili Alvotech í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 30.4.2024 08:34
Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Stjórn Regins hefur ákveðið að afturkalla samrunatilkynningu félagsins, sem send var inn til Samkeppniseftirlitsins í september í fyrra, vegna fyrirhugaðs samruna félagsins og Eikar fasteignafélags. Samhliða hyggst Reginn óska eftir heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands til að falla frá valfrjálsu tilboði félagsins í allt hlutafé Eikar Viðskipti innlent 29.4.2024 20:41
Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Stýrivextir verða ekki lækkaðir fyrr en undir lok árs og verðbólga mælist yfir markmiðum seðlabankans næstu tvö árin samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans. Hagfræðingur telur að uppkaup á húsnæði Grindvíkinga hafi talsverð áhrif á verðbólgu næstu mánuða. Viðskipti innlent 29.4.2024 11:45