Viðskipti erlent
223 224 225 226 227 228 229 230 231 … 334 ›
Örvænting ríkir á öllum mörkuðum Örvænting hefur gripið um sig á öllum fjármálamörkuðum heimsins í kjölfar fréttanna í morgun um að Ítalía muni hugsanlega vera næsta fórnarlamb skuldakreppunnar í Evrópu. Hlutabréf falla í verði í kauphöllum beggja megin við Atlantshafið. Viðskipti erlent 11.7.2011 14:00
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað frá því í morgun. Ástæðan eru fréttir um að Ítalía sé hugsanlega næsta fórnarlamb skuldakreppunnar í suðurhluta Evrópu. Viðskipti erlent 11.7.2011 13:29
Ítalía ógnar tilvist evrunnar Neyðarfundur æðstu embættismanna ESB í dag er til vitnis um að evrusamstarfið hefur aldrei verið í jafnmikilli hættu og nú. Fundurinn fjallar um stöðuna á Ítalíu en hún ógnar nú tilvist evrunnar. Viðskipti erlent 11.7.2011 13:11
Starfsmenn sprengdu bíl forstjórans í loft upp Tölvufyrirtækið Adaptive Computing í Utah í Bandaríkjunum notar óhefðbundnar aðferðir til að hvetja starfsmenn sína áfram. Ein þeirra var að leyfa þeim að sprengja bíl forstjórans í loft upp. Viðskipti erlent 11.7.2011 10:49
Vogunarsjóðir gera viðamikla árás á Ítalíu Bandarískir vogunarsjóðir eru nú í viðamikilli fjárhagsárás á ítölsk ríkisskuldabréf. Stormurinn sem nú geisar á ítölskum fjármálamörkuðum gæti verið alfarið verk bandarískra spákaupmanna. Viðskipti erlent 11.7.2011 10:24
Bandaríkin í hættu á tæknilegu þjóðargjaldþroti Fari svo að Demókrötum og Repúblikönum á bandaríska þinginu takist ekki að sameinast um að lyfta skuldahámarki landsins fyrir 2. ágúst er hætta á að Bandaríkin lendi í tæknilegu þjóðargjaldþroti. Viðskipti erlent 11.7.2011 09:05
ESB boðar til neyðarfundar vegna Ítalíu Herman Van Rompuy forseti Evrópuráðsins hefur boðað háttsetta embættismenn ESB til neyðarfundar í dag vegna Ítalíu. Óttast er að Ítalía sé að enda í sömu sporum og Grikkland hefur hjakkað í undanfarið ár. Meðal annars berast fréttir af því að vogunarsjóðir séu nú farnir að veðja á að Ítalía lendi í sömu vandræðum og Grikkland. Viðskipti erlent 11.7.2011 08:31
Berlusconi sektaður um 93 milljarða Fininvest, eignarhaldsfélag Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið sektað um 560 milljónir evra eða um 93 milljarða kr. Viðskipti erlent 9.7.2011 14:16
Englandsbanki segir tölvudómsdag vera ógn Englandsbanki vill að sjálfvirkir slökkvarar verði settir í öll tölvukerfi kauphalla í heiminum, það er kerfin sem stunda sjálfvirk viðskipti. Viðskipti erlent 8.7.2011 13:32
Getur komið evruríkjum illa Evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær og fara vextir við það í 1,5 prósent. Þetta er önnur vaxtahækkun seðlabankans síðan í apríl. Viðskipti erlent 8.7.2011 11:45
Örlátur Buffett gefur 205 milljarða Ofurfjárfestirinn Warren Buffett hefur gefið 1,78 milljarða dollara eða um 205 milljarða kr. til góðgerðarsamtaka. Megnið af þessari gjöf fer til Bill and Melinda Gates Foundation. Viðskipti erlent 8.7.2011 08:12
Þjóðverjar að eignast kauphöllina í New York Fyrsta þröskuldinum fyrir eignarhaldi Þjóðverja á kauphöllinni í New York (NYSE) hefur verið rutt úr veginum. Hluthafar í NYSE Euronext hafa samþykkt að selja meirihlutaeign í kauphöllinni til Deutsche Börse sem hefur höfuðstöðvar í fjármálahverfi Frankfurt í Þýskalandi. Viðskipti erlent 7.7.2011 14:01
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar ört Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar ört þessa stundina. Brentolían hefur hækkað úr 114 dollurum á tunnuna og upp í rúma 116 dollara á síðustu tveimur tímum og bandaríska léttolían nálgast 99 dollara á tunnuna eftir að hafa byrjað daginn í rúmum 96 dollurum. Viðskipti erlent 7.7.2011 13:24
ECB hækkar stýrivexti eins og vænst var Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig í dag eins og vænst var. Þar með eru stýrivextir bankans komnir í 1,5% og hafa ekki verið hærri síðan í mars 2009. Viðskipti erlent 7.7.2011 12:09
CMA: Minnsta lánaáhættan hjá Norðurlöndunum Norðurlöndin, fyrir utan Íslands, eru í efstu sætunum hjá gagnaveitunni CMA hvað varðar minnstu lánaáhættuna á ríkisskuldabréfum. Þetta kemur fram í ársfjórðungsskýrslu CMA fyrir annan ársfjórðung ársins. Viðskipti erlent 7.7.2011 11:10
Bretar hafa endurheimt 113 milljarða frá KSF Tryggingasjóður innistæðueigenda í Bretlandi (FSCS) hefur endurheimt 614 milljónir punda eða ríflega 113 milljarða kr. frá Kaupthing Singer & Freidlander (KSF) dótturbanka Kaupþings í London. Viðskipti erlent 7.7.2011 10:33
Dr. Doom spáir djúpri niðursveiflu árið 2013 Hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, auknefndur dr. Doom, spáir því að efnahagskerfi heimsins muni taka mjög djúpa niðursveiflu árið 2013. Viðskipti erlent 7.7.2011 09:20
Sjá ýmsar vísbendingar um aðra bólu í tæknigeiranum Þegar netbólan svokallaða sprakk árið 2000 hrundi hlutabréfaverð þúsunda nýsköpunar- og tæknifyrirtækja um allan heim eins og um spilaborg hefði verið að ræða. Viðskipti erlent 7.7.2011 05:15
Hyggst gera AGS fjölbreyttari og leysa skuldavanda heimilanna Christine Lagarde, nýji forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ætlar að gera stofnunina fjölbreyttari auk þess sem hún hyggst beita sér fyrir því að leysa skuldavanda heimilanna í Evrópu. Þetta tilkynnti hún í dag á fyrsta blaðamannafundi sínum sem forstjóri stofnunarinnar. Viðskipti erlent 6.7.2011 21:30
Evrópuleiðtogar æfir af reiði í garð Moody´s Ýmsir leiðtogar í Evrópulöndum og í framkvæmdanefnd ESB eru æfir af reiði í garð matsfyrirtækisins Moody´s fyrir að hafa lækkað lánshæfiseinkunn Portúgal niður í ruslflokk. Viðskipti erlent 6.7.2011 14:33
Spenna á markaði vegna vaxtaákvörðunar ECB Nokkur spenna ríkir á markaði yfir morgundeginum, sem er næsti vaxtaákvörðunardagur Evrópska Seðlabankans (ECB). Almennt er reiknað með því að stýrivextir bankans verði hækkaðar á morgun og samkvæmt fréttaveitunni Reuters hefur hækkunin þegar verið verðlögð inn í gengi evrunnar. Viðskipti erlent 6.7.2011 12:49
Þrefalt sölumet hjá Mercedes Benz Árið í ár hefur verið gjöful fyrir framleiðendur Mercedes Benz bifreiða. Þrefalt sölumet hefur verið slegið. Um er að ræða mestu sölu í einstökum mánuði, það er júní s.l., mestu sölu á einum ársfjórðungi og mestu sölu á hálfu ári. Viðskipti erlent 6.7.2011 10:26
Olíuverðið hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu fer nú aftur hækkandi og er tunnan af Brentolíunni komin yfir 114 dollara sem er hæsta verðið undanfarnar tvær vikur. Bandaríska léttolían fylgir lit og er komin í tæpa 98 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 6.7.2011 07:52
Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn Portúgal í ruslflokk Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Portúgal niður í ruslflokk með neikvæðum horfum. Einkunnin var lækkuð um fjóra flokka eða úr Baa1 og niður í Ba2. Viðskipti erlent 6.7.2011 07:43
Mark Zuckerberg vinsælastur á Google+ Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, státar af töluvert fleiri "fylgjendum" á Google+ en báðir stofendur Google, en Google+ er nýr samskiptavefur sem fyrirtækið opnaði þann 28. júní síðastliðinn. Viðskipti erlent 5.7.2011 23:30
Grísk skuldabréf veðhæf hjá ECB hvað sem tautar og raular Evrópski seðlabankinn (ECB) mun taka við grískum ríkisskuldabréfum sem veðum gegn lánum þótt að öll matsfyrirtæki heimsins nema eitt setji lánshæfiseinkunn Grikklands niður úr ruslflokki og í greiðslufall. Viðskipti erlent 5.7.2011 13:46
Málið gegn Strauss-Kahn verður fellt niður Mál ákæruvaldsins í New York gegn Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður fellt niður. Þetta gerist eftir tvær vikur þegar málflutningur á að hefjast. Viðskipti erlent 5.7.2011 13:14
Vinnsla á stærsta kolasvæði heims að hefjast Yfirvöld í Mongólíu hafa ákveðið að bjóða þremur námufélögum að vinna kol á því sem talið er stærsta kolasvæði heimsins. Félögin sem hér um ræðir eru Shenhua í Kína, Peabody Energy í Bandaríkjunum og samsteypa rússneskra og mongólskra félaga. Viðskipti erlent 5.7.2011 09:50
Kínverskar bankaskuldir vantaldar um 62 þúsund milljarða Matsfyrirtækið Moody´s segir að skuldir sveitastjórna í Kína við innlenda banka séu vantaldar um 540 milljarða dollara eða um rúmlega 62 þúsund milljarða kr. Sökum þessa sé hætta á að lánshæfiseinkunnir kínversku bankanna muni lækka í bókum Moody´s Viðskipti erlent 5.7.2011 08:32
Framtíð Bella Center í töluverðri óvissu Framtíð Bella Center hinnar þekktu hótel- og ráðstefnuhallar í Kaupmannahöfn er nú í töluverðri óvissu. Ástæðan er sú að stór hluti eigenda hennar er orðinn gjaldþrota. Viðskipti erlent 5.7.2011 07:47