Viðskipti erlent
218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Eins og að hlusta á Atla Húnakonung ræða um mannréttindi George Monbiot dálkahöfundur hjá Guardian segir að þegar ESB segi Íslendingum og Færeyingum að þeir eigi að stunda "ábyrga nútíma fiskveiðistjórnun" sé það eins og að þurfa að hlusta á fyrirlestur um mannréttindi hjá Atla Húnakonungi. Viðskipti erlent 9.8.2011 10:22
Fjögur AAA fyrirtæki eftir í Bandaríkjunum Sem stendur eru fjögur fyrirtæki í Bandaríkjunum með lánshæfiseinkunnina AAA, það er hærri einkunn en landið sjálft. Þetta eru Automatic Data Processing, Exxon Mobil, Johnson & Johnson og Microsoft. Viðskipti erlent 9.8.2011 09:48
Viðsnúningur reyndist svikalogn, staðan hríðversnar Viðsnúningurinn á mörkuðum í morgun reyndist svikalogn. Utanmarkaðsviðskipti í morgun gáfu til kynna að markaðir vestanhafs myndu opna í grænum tölum en það hefur snúist við og nú sýna þessi viðskipti að opnunin verður í rauðum tölum. Viðskipti erlent 9.8.2011 09:39
Olíuverðið hrapar áfram, gullverðið hækkar Heimsmarkaðsverð á olíu heldu áfram að hrapa á mörkuðum heimsins. Bandaríska léttolían er komin niður í 78 dollara á tunnuna og hefur lækkað um 3,65% í morgun. Brent olían er komin í rúma 100 dollara á tunnuna og hefur einnig lækkað um tæp 4% í morgun. Viðskipti erlent 9.8.2011 09:21
Fréttaskýring: Skuldakreppan í Evrópu magnast Hlutabréfaverð hefur hrunið í helstu kauphöllum að undanförnu. Að baki liggja áhyggjur af framtíð evrusvæðisins og hagvaxtarhorfum á Vesturlöndum. Jafnframt virðast fjárfestar verða sífellt svartsýnni á að það takist að leysa fyrirliggjandi vanda. Fréttablaðið heldur áfram að fjalla um titringinn á mörkuðum og tekur hér fyrir evrópsku skuldakreppuna. Viðskipti erlent 9.8.2011 08:55
Orðrómur um 10 milljarða dollara gróða á lánshæfislækkun Dularfullur fjárfestir eða vogunarsjóður er sagður hafa hagnast um 10 milljarða dollara, eða um tæplega 1.160 milljarða kr. á því að veðja á að Standard & Poor´s lækkaði topplánshæfiseinkunn Bandaríkjanna. George Soros þykir líklegur sem þessi fjárfestir. Viðskipti erlent 9.8.2011 08:48
Viðsnúningur í vændum á mörkuðum vestanhafs Viðsnúningur er í vændum á mörkuðum vestanhafs þegar þeir opna eftir hádegið. Þetta kemur fram á CNN Money þar sem vísað er í utanmarkaðsviðskipti fyrir opnunina. Viðskipti erlent 9.8.2011 08:10
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðlækkað undanfarna daga. Brent olían er komin niður í 102,5 dollara á tunnuna en þegar verð hennar var hæst í febrúar s.l. náði það 127 dollurum á tunnuna. Viðskipti erlent 9.8.2011 07:48
Markaðir rétta aðeins úr kútnum Óróinn á fjármálamörkuðum heldur áfram og hefur verð á hlutabréfum lækkað mikið í Asíu í morgun en verðið fór þó hækkandi við lok viðskipta. Evrópumarkaðir voru einnig nokkuð stöðugir við opnun. Viðskipti erlent 9.8.2011 07:44
Markaðir hrynja Hlutabréfverð í Bandaríkjunum hefur ekki verið lægra í rúmlega tvö ár, eða síðan í desember 2008. Þegar markaðir lokuðu í dag hafði Dow Jones-vísitalan lækkað 632 stig eða um 5,5 prósent. Viðskipti erlent 8.8.2011 20:40
Lækkun á Wall Street eins og spáð hafði verið Verð á hlutabréfum lækkaði við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eins og búist hafði verið við. Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni á föstudaginn eftir að markaðir lokuðu og spár um lækkun gengu eftir. Dow Jones vísitalan lækkaði um tæp tvö prósent í fyrstu viðskiptum dagsins klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og Nasdaq vísitalan lækkaði um 3,35 prósent. Viðskipti erlent 8.8.2011 13:46
Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. Viðskipti erlent 8.8.2011 12:13
Evrópumarkaðir taka við sér Hlutabréf á mörkuðum um allan heim hafa lækkað í morgun eftir að Standard og Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn var. Í Evrópu hækkaði verðið þó þegar liðið hefur á morguninn. Viðskipti erlent 8.8.2011 07:39
Verðfall á mörkuðum í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu og í Ástralíu lækkuðu mikið í morgun en þetta voru fyrstu markaðirnir til að opna eftir að Standard & Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn. Viðskipti erlent 8.8.2011 06:59
Bresk sveitarfélög fá um 90% til baka Nú er búist við því að sveitastjórnir sem lögðu peninga inn á reikninga íslenskra banka í Bretlandi fyrir bankahrun muni fá um 90% af fé sínu til baka. Viðskipti erlent 7.8.2011 13:57
Hittast á neyðarfundi til að ræða stöðuna á mörkuðum Stjórn Seðlabanka Evrópu mun koma saman á neyðarfundi í dag til þess að ákveða hvort bankinn eigi að kaupa skuldir ítalska ríksins til þess að reyna að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum. Robert Peston, viðskiptafréttamaður hjá BBC fréttastofunni, segir að stjórnin sé klofin í afstöðu sinni til málsins. Viðskipti erlent 7.8.2011 10:58
Lánshæfismat Bandaríkjanna lækkað Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfismat bandaríska ríkisins í gærkvöld. Matið var fært úr efsta þrepi, eða AAA í næstefsta þrep sem er AA+, með neikvæðum horfum. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem lánshæfismat Bandaríkjanna er lækkað. Ástæðan er áhyggjur af hallarekstri Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 6.8.2011 07:30
Obama: Við munum komast í gegnum þetta Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýjum tölum um atvinnuþáttöku/atvinnuleysi sem birtust í Bandaríkjunum í dag. Hann leggur áherslu á að skapa þurfi enn fleiri störf til þess að efnahagslífið blómstri. Viðskipti erlent 5.8.2011 21:33
Hlutabréfamarkaðir víðast óstöðugir Það er ennþá óstöðugleiki á fjármálamörkuðum í heiminum, þrátt fyrir að nýjar tölur um atvinnuþátttöku/atvinnuleysi í Bandaríkjunum séu betri en spáð var. Viðskipti erlent 5.8.2011 20:30
Dregur úr falli evrópskra hlutabréfamarkaða Tekið er að draga úr falli evrópskra hlutabréfamarkaða en fréttavefur breska ríkisútvarpsins segir fjárfesta hafa þungar áhyggur af skuldakreppu á evrusvæðinu og veikri stöðu bandaríska hagkerfisins. Þegar hlutbréfamarkaðir í evrópskum kauhöllum opnuðu fyrir viðskiptum klukkan sjö í morgun lækkuðu allar helstu hlutbréfavísitölur. Þýska vísitalan DAX hefur lækkað um rúm tvö prósent, Nasdaq hefur lækkað um rúm fimm prósent og í Lundúnum lækkaði FTSE vísitalan um tvö komma tuttugu og átta prósent. Viðskipti erlent 5.8.2011 12:08
Vefsíða Financial Times hrundi Óróinn á hlutabréfamörkuðum í Evrópu þar sem vísitölur sveiflast upp og niður, þó aðallega niður, frá mínútu til mínútu hafa valdið mikilli eftirspurn eftir nýjustu fjármálafréttunum. Af þeim sökum hrundi vefsíði blaðsins Financial Times um tíma í morgun þar sem hún gat ekki annað umferðinni inn á hana. Viðskipti erlent 5.8.2011 11:02
Olíuverð aftur á uppleið Töluvert hefur dregið úr niðursveiflunni á heimsmarkaðsverði á olíu síðan í morgun. Brent olían er komin í 108 dollara fyrir tunnuna en snemma í morgun hafði verðið hrapað niður í 104 dollara. Viðskipti erlent 5.8.2011 10:15
Silfuræði runnið á almenning í Danmörku Miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði á silfri í ár hafa valdið því að silfuræði er runnið á frændur vora Dani. Viðskipti erlent 5.8.2011 08:14
Stjórn Pandóru hélt upplýsingum leyndum Í ljós er komið að stjórn skartgripaframleiðendans Pandóru í Danmörku hélt leyndum viðkvæmum markaðsupplýsingum í uppgjöri sínu fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. Viðskipti erlent 5.8.2011 08:05
Tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna fá matarmiða Aldrei í sögunni hafa fleiri Bandaríkjamenn þurft á matarmiðum að halda frá hinu opinbera til að geta átt í sig og á. Alls þiggja tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna slíka matarmiða. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:47
Martröðin heldur áfram á hlutabréfamörkuðum Martröðin á hlutabréfamörkuðum heimsins hélt áfram í nótt en þá hröpuðu vísitölur á Asíumörkuðum. Það kom í kjölfar versta dagsins á Wall Street síðan í botni fjármálakreppunnar fyrir rúmum tveimur og hálfu ári síðan. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:28
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Heimsmarkaðsverð á olíu er nú í frjálsu falli svipað og hlutabréfamarkaðir heimsins. Tunnan af Brent olíunni er komin niður í 105,6 dollara og hefur þar með öll hækkun ársins á henni gengið til baka. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:21
Grunuð um brot í starfi Franskur dómstóll ætlar að rannsaka embættisverk Christine Lagarde, nýs framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, frá þeim tíma sem hún var fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde er grunuð um að hafa þrýst á fyrrverandi ríkisbankann Credit Lyonnais um að fallast á bindandi málamiðlun í deilu við Adidas-auðkýfinginn Bernard Tapielle sem hann hafði tapað fyrir rétti. Viðskipti erlent 5.8.2011 05:15
Mikil lækkun á hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðir víða um heim hríðféllu í dag og er ástæðan talin vera sú að fjárfestar hafi áhyggjur af því að hagvöxtur verði hægari en áður var talið. Menn hafa líka áhyggjur af skuldavanda Evrópuríkja, svo sem Ítalíu og Spánar. Ástandið er grafalvarlegt og vestanhafs óttast menn að önnur dýfa fylgi á eftir kreppunni 2007 og 2008. Viðskipti erlent 4.8.2011 16:23
Barroso segir að evrukreppan smiti út frá sér Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varar við því að skuldakreppa evruríkjanna sé að breiðast út til ríkja utan myntbandalagsins. Í bréfi til ríkisstjórna innan Evrópusambandsins hvatti hann til þess að evrusvæðinu yrði veittur fullur stuðningur. Viðskipti erlent 4.8.2011 15:35