Viðskipti erlent
214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 334 ›
Murdoch afþakkaði 700 milljónir vegna símhleranahneykslis James Murdoch, forstjóri fjölmiðlafyrirtækisins News International, afþakkaði 6 milljóna dala launabónus frá fyrirtækinu vegna símhleranahneyksliss sem skók fyrirtækið í vor. Upphæðin sem James afþakkaði nemur um 690 milljónum króna. Rupert, pabbi James, fékk 12.5 milljóna dala bónus, eða röskar 1400 milljónir króna, þegar ársuppgjör News Corp var birt á dögunum. Viðskipti erlent 3.9.2011 11:35
Bandarísk stjórnvöld stefna 17 stórbönkum Bandarísk stjórnvöld munu stefna 17 stórbönkum vegna taps á fjárfestingum tengdum fasteignum sem stjórnvöld telja að hafi kostað skattgreiðendur tugi milljarða bandaríkjadala. Bandaríski íbúðalánasjóðurinn segir að bankarnir sem um ræði séu meðal annars Godman Sachs, Barclays, Bank og America, Deutsche Bank og HSBC. Íbúðalánasjóðurinn segir að þau hafi metið gæði lánanna kolvitlaust þegar þau voru veitt í húsnæðisbólunni fyrir hrun. Viðskipti erlent 3.9.2011 09:26
United skilaði methagnaði Manchester United skilaði methagnaði á síðasta rekstrarári sem lauk 30. júní. Félagið hagnaðist um 110,9 milljónir punda eða 20 og hálfan milljarð króna. Velta Manchester United nam rúmum 62 milljörðum króna, rúmum 8 milljörðum meira en árið á undan. Viðskipti erlent 1.9.2011 14:36
Von á nýjum Land Rover Defender Land Rover verksmiðjurnar munu setja á markað gjörbreytta útgáfu af Defender árið 2015, eftir því sem BBC fréttastofan fullyrðir. Bílaframleiðandinn hefur einnig birt fyrstu myndirnar af bílnum sem verður af undirtegundinni DC100. Frumgerð af bílnum verður sýnd á bílasýningunni í Frankfurt í næsta mánuði. Defender kom fyrst á markað árið 1948 og hefur selst í meira en tveimur milljónum eintaka um allan heim. BBC segir að hönnun bílsins hafi lítið breyst á þessum sex áratugum. Viðskipti erlent 31.8.2011 09:33
Hagvöxtur víða að minnka Hagvöxtur í Bandaríkjunum var einungis 1% á ársgrundvelli á öðrum ársfjórðungi. Búist hafði verið við 1,3% hagvexti. Viðskipti erlent 30.8.2011 11:00
Obama skipaði nýjan ráðgjafa í atvinnumálum Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað Alan Krueger, hagfræðing við Princeton háskólann sem nýjan efnahagsráðgjafa sinn. Það verður verk Kruegers að stefnu stjórnvalda í atvinnumálum en hana mun Obama kynna í ræðu sem verður haldin eftir verkamannadaginn í Bandaríkjunum, sem er þann 5. september næstkomandi. Eitt mesta meinið í bandarísku efnahagslífi er mikið atvinnuleysi. Það stendur nú í um 9,1%. Krueger var hagfræðingur í fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna á árunum 2009-2010. Viðskipti erlent 29.8.2011 20:35
Bjartsýni eykst á mörkuðum Hlutabréf hafa víðast hvar í heiminum hækkað í verði í dag. Nasdaq vísitalan á Wall Street hækkaði um tvö prósent við opnun bandaríska markaðarins í dag og áður höfðu markaðir í Evrópu tekið vel við sér. Þá lokuðu markaðir í Asíu víðast hvar í plús í nótt. Ástæða aukinnar bjartsýni á mörkuðum er meðal annars rakin til frétta þess efnis að tveir af stærstu bönkum Grikklands hyggi á sameiningu. Viðskipti erlent 29.8.2011 14:29
Árituð smáskífa Bítlanna fór á 1,7 milljónir króna Árituð smáskífa með Bítlunum var seld á uppboði í Liverpool í Bretlandi um helgina. Það var kona úr bænum sem kom með skífuna á uppboðið og spurði uppboðshaldarann hvort hann héldi að hún gæti fengið eitthvað fyrir plötuna. Hann hélt það nú. Viðskipti erlent 29.8.2011 08:35
Salan á Iceland: Deutsche Bank þvertekur fyrir stuðning við Walker Talsmaður stórbankans Deutsche bank hefur nú borið til baka fréttir þess efnis að bankinn ætli sér að lána Malcolm Walker, stofnanda Iceland matvörukeðjunnar, fé til kaupa á hlut slitastjórnar Landsbankans en bankinn á 67 prósenta hlut í félaginu. Viðskipti erlent 29.8.2011 07:50
Wall Street ætlar ekki að láta Írenu stöðva sig Forsvarsmenn Wall Street stefna á að hafa kauphöllina frægu í New York, opna á mánudaginn, þrátt fyrir spár um að fellibylurinn Írena fari með miklum krafti yfir borgina á morgun. Viðskipti erlent 27.8.2011 22:00
Tveggja milljarða króna króna kröfur vegna hryðjuverkanna Tryggingarfélögin í Noregi hafa fengið tilkynningar um meira en 1000 tjón með kröfum upp á yfir 100 milljónir norskra króna eftir hryðjuverkaárásina þann 22. júlí. Upphæðin er því yfir tveimur milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 27.8.2011 09:22
Tíu milljarða hlutur seldur Til stendur að selja hluti í Bank of America fyrir í það minnsta tíu milljarða á næstu dögum. Kínverski iðnaðarbankinn mun sjá um söluna en líklegir kaupendur eru lífeyrissjóðir í Asíu og Mið-Austurlöndum og eignarhaldsfélög. Talið er líklegt að salan geti gengið í gegn í næstu viku. Í gær var tilkynnt að milljarðamæringurinn Warren Buffet hefði keypt fimm milljarða dala hlut í bankanum. Viðskipti erlent 27.8.2011 09:01
Fær 44 milljarða frá Apple Tim Cook, nýr forstjóri Apple, fær eina milljón hluti í fyrirtækinu, samkvæmt samningi sem hann hefur gert. Þessi bónus er 383 milljóna dala virði miðað við gengi hlutabréfanna í dag. Upphæðin jafngildir um 44 milljörðum króna. Tilkynnt hefur verið um þetta til bandarískra stjórnvalda, eins og lög gera ráð fyrir. Cook fær helminginn af hlutnum árið 2016 og hinn helminginn árið 2021. Viðskipti erlent 27.8.2011 07:00
Boeing 787 Dreamliner tilbúin Japanska flugfélagið ANA fær afhent fyrsta eintakið af Boeing 787 Dreamliner þann 25. September næstkomandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum í gær. Þrjú ár eru síðan flugfélagið pantaði vélina auk 54 annarra eintaka af sömu gerð. Viðskipti erlent 27.8.2011 06:00
Ungur hakkari fær starf hjá Apple Unglingurinn sem skrifaði forritið JailBreakMe, sem gerir fólki kleift að „jailbreaka" ipoda og nota þannig dýr forrit án þess að borga fyrir þau, segist vera kominn með starf hjá tölvurisanum Apple. Viðskipti erlent 26.8.2011 23:41
Lítið um bombur hjá Bernanke Þeir sem búist höfðu við því að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, myndi tilkynna um róttækar aðgerðir í efnahagsmálum í ræðu sinni í dag urðu fyrir vonbrigðum. Í ræðunni sagði hann að seðlabankinn myndi beita sínum tækjum á viðeigandi máta eins og hann orðaði það til þess að örva hagkerfið. Hann fór hinsvegar ekkert út í smáatriði hvað það varðar en margir höfðu búist við því að tilkynnt yrði um stórfelld kaup á skuldabréfum eða þessháttar aðgerðir. Viðskipti erlent 26.8.2011 14:38
Les um klámstjörnu og bíður þess að Bernanke ljúki sér af Það þorir enginn að hreyfa sig á mörkuðum fyrr en Ben Bernanke, aðalseðlabankastjóri í Bandaríkjunum, hefur lokið við ávarp sitt sem áformað er að hann muni flytja í dag. Þetta á ekki aðeins við um markaði í Bandaríkjunum heldur í Evrópu og jafnvel á Norðurlöndunum er töluverður slaki. Viðskipti erlent 26.8.2011 11:46
Sendu 300 verkamenn heim vegna veikinda Fataverksmiðja H&M í Kambódíu varð að senda um 300 verkamenn heim tvisvar sinnum í vikunni vegna veikinda. Á þriðjudaginn voru 86 verkamenn sendir heim og í gær voru svo 198 sendir heim. Viðskipti erlent 26.8.2011 11:11
Co-operative Group hefur áhuga á Iceland Breska kaupfélagið Co-operative Group íhugar að kaupa hlut í Iceland verslunarkeðjunni. Co-operative Group er risastórt félag á Bretlandi. Það starfar meðal annars á matvælamarkaði, í ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og útfararþjónustu. Viðskipti erlent 26.8.2011 10:05
Facebook með yfir þúsund milljarða flettinga í einum mánuði Samskiptavefurinn Facebook stækkar og stækkar með hverjum deginum og fékk í sumar yfir trilljón síðuflettingar í einum og sama mánuðinum, samkvæmt tímaritnu Techland. Viðskipti erlent 26.8.2011 10:00
JP Morgan braut viðskiptabann Bandaríski bankinn JP Morgan Chase hefur gert samkomulag við fjármálaráðuneytið í Bandaríkjunum um að greiða 88 milljóna dala sekt vegna meintra brota á viðskiptabanni á Kúbu, Súdan, Líberíu og Íran. Fjármálaráðuneytið segir að brotin hafi átt sér stað frá árinu 2005 til ársins 2011. Fram kemur á fréttavef BBC að brotin fólust meðal annars í rúmlega 1800 millifærslum þar sem um 180 milljónir dala voru fluttar til Kúbu, þvert á þær reglur sem gilda í Bandaríkjunum. JP Morgan segir að fyrirtækið hafi ekki ætlað sér að brjóta bandarískar reglugerðir. Viðskipti erlent 26.8.2011 09:46
Beðið eftir ræðu seðlabankastjóra Beðið er eftir ræðu Ben Bernake, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, með mikilli eftirvæntingu en hann mun flytja ræðuna síðdegis í dag. Vonast er til þess að hann boði til aðgerða sem komi til með að bæta efnahag landsins. Viðskipti erlent 26.8.2011 08:30
Buffet kaupir í Bank of America fyrir fimm milljarða Milljarðarmæringurinn Warren Buffet hyggst kaupa hlut í Bank of America fyrir fimm milljarða dala í gegnum eignarhaldsfélag sinn, sem heitir Bershire Hathaway. Þetta kom fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag. Upphæðin nemur um 570 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða 50 þúsund hluti í bankanum, eftir því sem fram kemur í tilkynningunni. Buffet er einn af ríkustu mönnum í heimi. Hann vakti athygli fyrr í mánuðinum þegar að hann hvatti stjórnvöld í Bandaríkjunum til að hækka skatta á auðmenn. Viðskipti erlent 25.8.2011 13:53
Bréf í Apple hrynja eftir brotthvarf Jobs úr forstjórastóli Steve Jobs er hættur sem forstjóri Apple tölvurisans og hrundu bréf fyrirtækisins í utanmarkaðsviðskiptum á Wall Street í gærkvöldi. Viðskipti erlent 25.8.2011 12:10
Glencore hagnast um 280 milljarða Hrávörurisinn Glencore International skilaði hagnaði upp á tæpa 2,5 milljarða dollara eða um 280 milljarða kr. á fyrri helmingi ársins. Þetta er 57% aukning á hagnaðinum miðað við sama tímabil í fyrra. Viðskipti erlent 25.8.2011 09:53
Google sektað um 57 milljarða í Bandaríkjunum Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur sektað Google leitarvélina um 500 milljónir dollara eða um 57 milljarða kr. fyrir ólöglegar lyfjaauglýsingar á vefsíðum sínum. Viðskipti erlent 25.8.2011 09:20
Ævintýralegur ferill Steve Jobs Ferill Steve Jobs fráfarandi forstjóra Apple er ævintýri líkastur en honum hefur tekist að byggja þetta fyrirtæki upp í að vera annað verðmætasta fyrirtækið á bandaríska hlutabréfamarkaðinum. Viðskipti erlent 25.8.2011 07:37
Steve Jobs hættur sem forstjóri Apple Steve Jobs er hættur sem forstjóri Apple tölvurisans en mun starfa áfram sem stjórnarformaður fyrirtækisins. Tilkynnt var um þetta í gærkvöldi. Tim Cook sölustjóri Apple tekur við forstjórastarfinu af Jobs. Viðskipti erlent 25.8.2011 06:56
Krafa Finna setur neyðaraðstoð til Grikkja í uppnám Krafa Finna um að fá veð frá Grikkjum fyrir sínum hluta af nýjustu neyðaraðstoð Evrópusambandsins til Grikklands hefur sett málið í uppnám. Viðskipti erlent 25.8.2011 06:47
Steve Jobs lætur af störfum sem forstjóri Apple Forstjóti Apple, Steve Jobs, hefur látið af störfum og verður stjórnarformaður fyrirtækisins. Í hans stað kemur Tim Cook hefur tekið við sem forstjóri Apple. Viðskipti erlent 24.8.2011 23:17