Viðskipti erlent
204 205 206 207 208 209 210 211 212 … 334 ›
Vöxtur í Japan á nýjan leik Hagvöxtur mælist nú í Japan að nýju eftir að jarðskjálftana í maí á þessu ári. Hagvöxturinn mældist 1,5% samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC. Óttast er að þetta verði skammgóður vermir þar sem töluverð áföll hafa riðið yfir efnahagslífið í Asíu undanfarin misseri, sem hafa áhrif á Japan. Viðskipti erlent 14.11.2011 15:33
Verðbólgan enn til vandræða á Indlandi Verðbólga á Indlandi mælist nú 9,73% en aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að stemma stigu við þenslu í landinu hafa ekki gengið nægilega vel. Seðlabanki Indlands hækkaði vexti til þess að reyna að slá á verðbólguna og standa stýrivextir nú í 8,5%, að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 14.11.2011 10:12
Markaðir á jákvæðu nótunum í Evrópu Markaðir í Evrópu eru flestir í grænum tölum eftir að þeir opnuðu í morgun. Hækkanir á vísitölum eru þó undir einu prósenti fyrir utan kauphöllina í Mílanó þar sem vísitalan hefur hækkað um rúmt 1,5%. Viðskipti erlent 14.11.2011 09:29
Gates: "Loksins fékk ég gráðuna mína" Bill Gates, stjórnarformaður og stofnandi Microsoft, flutti ræðu fyrir útskriftarnema við Harvard háskóla sumarið 2007 sem þykir með hans bestu ræðum á opinberum vettvangi. Viðskipti erlent 14.11.2011 08:52
Há peningaverðlaun fyrir þann sem finnur lausn á evruvandanum Yfir 600 hagfræðingar hafa lýst áhuga sínum á að leysa vandamálið hvernig hægt sé að slíta evrusamstarfinu. Há peningaverðlaun eru í boði. Viðskipti erlent 14.11.2011 07:04
Emirates leggur inn nýja pöntun hjá Boeing Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur gengið frá samningi við stærsta flugfélag Mið-Austurlanda, Emirates. Boeing mun afhenda flugfélaginu fimmtíu 777 breiðþotur að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Samningur vegna þessara kaupa er upp á 18 milljarða dollara eða sem nemur um 207 milljörðum króna. Viðskipti erlent 13.11.2011 23:00
Blair varar við "katastroffu" Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur með afleiðingum sem best sé lýs sem "katastroffu". Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 13.11.2011 20:56
Berlusconi sagði af sér Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér embætti nú í kvöld. Hann hafði verið forsætisráðherra í 17 ár. Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, veitti honum lausn úr embætti en líklegt þykir að Napolitano muni skipa Mario Monti sem arftaka hans, eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. Viðskipti erlent 12.11.2011 21:38
Krónan varð til þess að íslensk heimili fóru verr út úr kreppunni Krónan varð þess valdandi að íslensk heimili fór mun verr út úr kreppunni en írsk heimili. Þetta segir írskur prófessor í alþjóðastjórnmálum sem telur að evran hafi komið í veg fyrir að írska kreppan hafi orðið jafn djúp og sú íslenska. Viðskipti erlent 12.11.2011 20:05
Warren Buffett ríkasti eldri borgari í heimi Fjárfestirinn Warren Buffett er ríkasti eldri borgari í heimi. Hans helsta eign er hlutur í fjárfestingarfélaginu Bershire Hathaway en heildareignir eru metnar á 39 milljarða dollara, eða sem nemur um tæplega 4.500 milljörðum króna. Það jafngildir þremur íslenskum landsframleiðslum. Viðskipti erlent 12.11.2011 17:11
Ítalir undir miklum þrýstingi frá ESB Búist er við því að neðri deild ítalska þingsins afgreiði í dag frumvarp ríkisstjórnarinnar um tæplega sextíu milljarða evra niðurskurð í opinberum útgjöldum, eða sem um níu þúsund og fimm hundruð milljörðum króna. Ítalir eru undir miklum þrýstingi frá Evrópusambandinu til að klára málið en efri deild þingsins samþykkti frumvarpið í gær. Viðskipti erlent 12.11.2011 12:30
Einn af hverjum fimm vill vinna meira Einn af hverjum fimm hlutastarfsmönnum innan Evrópusvæðisins gat hugsað sér að taka að sér meiri vinnu en var að fá á síðasta ári, en flestir þeirra voru í Lettlandi, Grikklandi og á Spáni þar sem um eða yfir helmingur hlutastarfsmanna vildi vinna meira. Viðskipti erlent 12.11.2011 11:30
Atkvæðagreiðslan á Ítalíu færir fjárfestum von Hlutabréfamarkaðir hækkuðu í dag eftir að ítalska þingið samþykkti aðgerðaráætlun i efnahagsmálum. Um leið og markaðir í Bandaríkjunum og í Evrópu hækkuðu, lækkaði skuldatryggingarálagið á Ítalíu. Það hafði náð methæðum í vikunni, eftir því sem fram kemur á BBC. Viðskipti erlent 11.11.2011 23:22
Ríkustu konur heims eru eigendur Wal Mart Tvær konur úr Wal Mart-veldinu, Christy Walton og Alice Walton, eru ríkustu konur heims samkvæmt lista Forbes. Viðskipti erlent 11.11.2011 22:00
Facebook verður að fá leyfi notenda Samskiptasíðan Facebook nálgast nú samkomulag við Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna. Nýja samkomulagið gerir ráð fyrir að Facebook verði að biðja um leyfi notenda sinna ef til breytinga kemur á friðhelgi þeirra. Viðskipti erlent 11.11.2011 21:04
Allt stopp á Spáni Spænska hagkerfið er í mikilli lægð og mælist hagvöxtur tæplega í landinu, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 11.11.2011 20:45
Omnis opnar í Reykjavík Í dag, hinn 11. nóvember 2011 opnar Omnis ehf. tölvuverslun og tölvuverkstæði í Ármúla 11. Omnis er á sínu 10. starfsári en fyrirtækið hefur undanfarin ár rekið verslanir á þremur stöðum á landsbyggðinni, í Borgarnesi, á Akranesi og í Keflavík. Viðskipti erlent 11.11.2011 15:43
Geithner hvetur til aðgerða Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gærkvöldi ráðamenn í Asíu og Evrópu til þess að bregðast við þeim slaka sem hagkerfi heimsins glíma nú við. Þetta kom fram á fundi Geithners með leiðtogum Asíuríkja, sem breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Viðskipti erlent 11.11.2011 09:53
Hægri og vinstri menn "grilla" forstjóra Lehman Ólíkt því sem þingið ákvað að gera hér á landi, þá kölluðu bandarískir þingmenn bankastjóranna af Wall Street í opnar yfirheyrslur. Richard Fuld, fyrrverandi stjórnarformaður og forstjóri Lehman Brothers, fékk að finna fyrir því frá bæði demókrötum og repúblikönum þegar hann kom fyrir þingið árið 2009. Viðskipti erlent 11.11.2011 08:41
Olíuframleiðsla Líbíu fer í 700.000 tunnur á dag um áramótin Olíuframleiðslan í Líbíu verður komin í um 700.000 tunnur á dag um áramótin sem er nær helmingur af því sem framleiðslan var fyrir uppreisnina í landinu sem hófst í febrúar síðastliðnum. Viðskipti erlent 11.11.2011 07:29
Minni vandi að vinna olíu á norðurslóðum en talið var Vandamálin við að vinna olíu í Barentshafi og norðurslóðum eru mun minni en áður var talið. Viðskipti erlent 11.11.2011 07:25
Apple gefur út uppfærslu fyrir iOS 5 Tölvurisinn Apple hefur gefið út uppfærslu fyrir iOS 5. Stýrikerfið er það nýjasta sem Apple framleiddi fyrir iPhone 4S og iPad spjaldtölvuna. Viðskipti erlent 10.11.2011 20:00
Papademos nýr forsætisráðherra Grikklands Grikkinn Lucas Papademos, fyrrverandi varabankastjóri Seðlabanka Evrópu, var í dag skipaður forsætisráðherra Grikkja, samkvæmt frétt BBC. Mynduð hefur verið ný samsteypustjórn þriggja flokka í Grikklandi til að fást við þá skelfilegu stöðu sem komin er upp í efnahagslífi landsins. Viðskipti erlent 10.11.2011 13:30
Tóku skortstöðu gegn viðskiptavinunum Carl Levin, öldungardeildarþingmaður bandaríkjaþings, spurði Llyod Blankfein, stjórnarformann og forstjóra Goldman Sachs spjörunum úr í bandaríska þinginu um afleiður og tryggingar, fyrr á þessu ári. "Þið voruð að taka skortstöðu gegn viðskiptavinum ykkar,“ sagði Levin og gekk á Blankfein. Þessi starfsemi Goldman Sachs er nú til rannsóknar hjá yfirvöldum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 10.11.2011 09:01
Mikil niðursveifla á mörkuðum Stjórnmálaóvissan í Grikklandi og á Ítalíu olli því að markaðir í Bandaríkjunum fóru í mikla niðursveiflu í gærkvöldi. Viðskipti erlent 10.11.2011 07:21
Hætta á að olíuverðið fari í 150 dollara á tunnuna Alþjóða orkumálastofnunin gerir ráð fyrir stighækkandi olíuverði í heiminum fram til ársins 2035. Hætta er á að olíuverðið í 150 dollara á tunnuna í náinni framtíð. Viðskipti erlent 10.11.2011 07:19
Hvað sagði Jobs við Zuckerberg? Mark Zuckerberg stofnandi Facebook segir að hann hafi oft leitað ráða hjá Steve Jobs stofnanda Apple áður en hann lést en þeir urðu ágætis félagar síðustu árin. Hann segist hafa spurt Jobs hvernig ætti að byggja upp gott starfslið og hvernig eigi að framleiða frábærar vörur. Hann neitar því hinsvegar að þeir hafi nokkurn tíma rætt um að Apple myndi kaupa Facebook. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Charlie Rose á PBS við Zuckerberg þar sem farið er yfir víðan völl. Þar kemur meðal annars fram að Facebook muni aldrei fara út í framleiðslu á tölvuleikjum. Viðskipti erlent 9.11.2011 23:00
Hrun á hlutabréfamörkuðum Mikil lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Þannig lækkaði Nasdaq vísitalan um tæplega fjögur prósent og S&P 500 vísitalan um 3,8% prósent. Erlendir fjölmiðlar tala margir hverjir um hrun fremur en lækkun. Viðskipti erlent 9.11.2011 22:27
Adobe segir skilið við Flash Bandaríski hugbúnaðarrisinn Adobe Systems tilkynnti í dag að fyrirtækið muni hætta þróun á Flash margmiðlunarhugbúnaðinum fyrir snjallsíma. Flash er þungamiðja fjölmiðlunar í stýrikerfum margra snjallsíma, þar á meðal í Android og BlackBerry. Viðskipti erlent 9.11.2011 21:00
Áhyggjur vegna vanda Ítalíu magnast Áhyggjur fjárfesta af fjárhagsvanda Ítalíu hafa magnast í dag, þvert á það sem margir höfðu spáð fyrir um fyrir sólarhring síðan. Á vefsíðu Wall Street Journal í gær kom meðal annars fram að fjárfestar horfðu til þess með tilhlökkun að Silvio Berlusconi væri að hætta störfum. Viðskipti erlent 9.11.2011 20:30