Viðskipti erlent
197 198 199 200 201 202 203 204 205 … 334 ›
Sala á Bentley jókst um 37% Framleiðandi lúxusbílanna Bentley segir að sala á bílunum hafi aukist um 37% á síðasta ári. Eftirspurn sé nú orðin álíka mikil og hún var áður en efnahagssamdrátturinn byrjaði árið 2008. Um 7000 bílar seldust í fyrra. Aðalmarkaðurinn fyrir bílana er í Bandaríkjunum. Þar seldust 2021 bíll og jókst salan um 32%. Viðskipti erlent 3.1.2012 21:11
Markaðir jákvæðir í morgun Helstu markaðir í Evrópu eru á jákvæðum þennan morguninn ef kauphöllin í París er undanskilin. Viðskipti erlent 3.1.2012 09:25
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu fer nú aftur hækkandi vegna þeirrar spennu sem ríkir í samskiptum Íran við vestrænar þjóðir. Viðskipti erlent 3.1.2012 08:18
Meirihluti danskra forstjóra á móti evrunni í fyrsta sinn Í fyrsta sinn í sögunni er meirihluti forstjóra fyrirtækja í Danmörku á móti því að taka upp evruna. Viðskipti erlent 3.1.2012 07:44
Mikil eftirspurn eftir dönskum ríkisskuldabréfum Mikil eftirspurn er meðal alþjóðlegra fjárfesta eftir dönskum ríkisskuldabréfum. Virðast fjárfestarnir telja að Danmörk sé ein af fáum öruggum höfnum sem eftir eru í Evrópu til að fjárfesta í. Viðskipti erlent 2.1.2012 10:26
Evran veikist áfram á 10 ára afmælinu Evran á tíu ára afmæli í dag og fagnar þessum tímamótum með því að veikjast enn frekar gagnvart dollaranum frá því fyrir helgina. Viðskipti erlent 2.1.2012 09:08
Markaðir hefja árið á jákvæðum nótum Markaðir í Asíu hófu árið á jákvæðum nótum. Þannig hækkaði Nikkei vísitalan í Tókýó um 0,7% í nótt og Hang Seng vítitalan í Hong Kong um 0,2%. Þá varð töluverð hækkun í kauphöllinni í Sjanghai en vísitala hennar hækkaði um 1,2% í nótt. Viðskipti erlent 2.1.2012 07:38
Windows XP enn notað í tæplega helmingi einkatölva Þrátt fyrir að Windows XP stýrikerfið sé orðið tíu ára gamalt er það samt sem áður notað í 46,5% af öllum einkatölvum í heiminum í dag. Viðskipti erlent 2.1.2012 06:54
Þungbúin nýársávörp leiðtoga Evrópu Leiðtogar Evrópuríkja telja erfitt ár framundan. Angela Merkel, kanslari Þýskalands sagði í nýársávarpi sínu að Evrópa mætti nú búast við "erfiðustu þolraun síðustu áratuga á árinu, en að ríki Evrópu yrðu smátt og smátt samheldnari í þessum erfiðleikum. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagði að kreppunni væri síður en svo lokið. Forseti Ítalíu kallaði eftir enn frekari fórnum. Viðskipti erlent 1.1.2012 12:52
Árið 2012: Barist á vígvelli lýðræðisins Stundum er sagt að pólitíkin berjist á tveimur vígvöllum. Annars vegar eru það hefðbundin átök milli flokka um atkvæði kjósenda og hins vegar er það hugmyndabaráttan, þ.e. undirliggjandi barátta um hvaða hugmyndafræði eigi að ráða því hvert skuli stefnt. John Micklethwait, ritstjóri The Economist, spáir því í sérútgáfu blaðsins um árið 2012, að barátta á þessum tveimur vígvöllum stjórnmálanna muni fara harðnandi í stærstu ríkjum heimsins á árinu. Í grein sinni, sem ber nafnið Lýðræðið og óvinir þess (Democracy and its enemies), segir hann efnahagslegar þrengingar á heimsvísu á undanförnum fjórum árum tengist þessari "undirliggjandi baráttu“. Árið 2012 segir hann að geti orðið einkennandi fyrir þetta, ekki síst vegna kosninga sem fara fram víða um heim, við erfiðar aðstæður. Viðskipti erlent 1.1.2012 07:30
Munnsöfnuður Siri hneykslar mæðgin Ungur piltur í Bretlandi fékk óblíðar viðtökur frá skipulagsforritinu Siri þegar hann forvitnaðist um íbúafjölda jarðarinnar. Viðskipti erlent 30.12.2011 22:00
Erfitt ár að renna sitt skeið á enda Hlutabréfamarkaðurinn í London lokar síðar í dag og opnar ekki aftur fyrr en á nýju ári. Árið sem er að líða hefur verið erfitt fyrir fjárfesta eins og raunar almenning allan. FTSE vísitalan í London hefur lækkað um sex prósent á þessu ári. Það er reyndar mun minni lækkun er sést á öðrum helstu vísitölum í Evrópu. Viðskipti erlent 30.12.2011 08:58
Vaxtaálag ítalskra skuldabréfa lækkar Ítölsk ríkisskuldabréf seldust fyrir rúma tíu milljarða evra í gær, á talsvert hagstæðari vöxtum en þeim hefur boðist undanfarið. Er um að ræða góðar fréttir fyrir Ítalíu sem hefur verið á mörkum greiðslufalls síðustu mánuði vegna vaxandi skulda og hækkandi lántökukostnaðar. Viðskipti erlent 29.12.2011 01:30
Miður sín eftir jól án iPad Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Á hinum helga tíma er það jólaandinn, skreytingar, gjafirnar, fríið og samveran sem við þá nánustu sem skiptir mestu máli. En þó ekki fyrir alla. Vefurinn Gizmodo hefur tekið saman twitterummæli frá hinum vanþakklátu, sem bölva sínum nánustu í sand og ösku fyrir að hafa ekki valið réttu gjöfina handa sér. Og rétta gjöfin var auðvitað iPhone. Viðskipti erlent 28.12.2011 16:07
Vaxtakostnaður Ítalíu hríðféll í morgun Ítalska ríkið endurfjármagnaði skammtíma skuldir í morgun upp á 9 milljarða evra, jafnvirði tæplega 1.500 milljarða króna, með vaxtaálagi upp á ríflega 3,2 prósent. Það eru um helmingi lægra álag en ríkinu bauðst í nóvember, að því er greint er frá í frétt breska ríkisútvarpsins. Þá neyddist ríkið til þess að endurfjármagna hluta skulda sinna á ríflega 6,5 prósent vaxtaálagi. Viðskipti erlent 28.12.2011 11:46
Spjaldtölvan stóð undir væntingum "Ég get alveg fullyrt að spjaldtölvur voru mikið keyptar í jólagjafir, rétt eins og spáð hafði verið,“ segir Gunnar Jónsson, sölustjóri Tölvulistans. Viðskipti erlent 28.12.2011 09:00
Japan stendur frammi fyrir áskorunum Japan er skuldum vafið og með efnahag sem varð fyrir gífurlegu áfalli, þegar jarðskjálfti skók landið fyrr á árinu. Framleiðsla margra stórra fyrirtækja hrundi við skjálftann, m.a. hjá Toyota. Það er þó ekki öll nótt úti enn. Viðskipti erlent 28.12.2011 09:00
Fleiri Bretar atvinnulausir á næsta ári Atvinnuleysi í Bretlandi mun aukast á næsta ári og verða þá tæplega tvær milljónir og níuhundruð þúsund manna atvinnulausar, samkvæmt nýrri skýrslu sem óháð atvinnumálasamtök þar í landi birtu í gær. Þau búast svo við því að atvinnuleysi muni ná hámarki árið 2013. Samtökin gera ráð fyrir að opinberum störfum í landinu muni fækka um 120 þúsund á næsta ári. Fjöldi starfa í einkageiranum muni hins vegar standa í stað. Samtökin segja að aðgerðir stjórnvalda í landinu ættu að miða að því að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi á meðal ungs fólks. Viðskipti erlent 28.12.2011 07:13
Hagkerfi Brasilíu stærra en það breska Brasilía er orðið sjötta stærsta hagkerfi veraldar. Áður var Bretland í sjötta sætinu, því hefur brasilíska hagkerfið siglt fram úr því breska. Þetta er niðurstaða breska rannsóknarsetursins Centre for Economics and Business Research (CEBR). Viðskipti erlent 26.12.2011 17:04
Breskir fjárfestar vilja svör um ofurlaunastefnu Samtök breskra fjárfesta ætla að funda með stjórnendum stærstu bankanna þar í landi eftir áramót og ræða við þá um launastefnu bankanna og ofurbónusa sem starfsmenn í bönkunum fá greidda. Samtökin vilja að hömlur verði settar á ofurlaun og bónusa sem þykja vera komnir út úr öllu valdi. Viðskipti erlent 26.12.2011 13:06
Japanar vilja kínversk ríkisskuldabréf Japönsk stjórnvöld ætla að reyna að kaupa kínversk ríkisskuldabréf, samkvæmt tilkynningu frá japönsku ríkisstjórninni. Yoshihiko Noda, forsætisráðherra Japans og Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, áttu í viðræðum um þetta í Peking í morgun. Í yfirlýsingu japanskra stjórnvalda er þó ekkert kveðið á um það í hve miklu mæli skuldabréfin verða keypt né heldur á hvaða verði. Viðskipti erlent 25.12.2011 16:45
Næsta ár verður erfiðara í bílabransanum Næsta ár verður erfiðara fyrir bílaframleiðendur en árið sem er að líða undir lok, segir Rupert Stadler, forstjóri Audi, í samtali við Reuters fréttastofuna. Viðskipti erlent 25.12.2011 14:48
Ranglátt að kreppuvaldarnir fái himinháa bónusa Erkibiskupinn af York gagnrýnir harðlega það bil sem er að myndast á milli tekjuhárra og tekjulágra í Bretlandi. Hann spyr hvort það sé rétt að bankamenn sem tóku þátt í að skapa efnahagskreppuna þar í landi eigi að fá himinháa launabónusa. Viðskipti erlent 25.12.2011 13:09
Apple þróar vetnisrafhlöðu fyrir fartölvur Svo virðist sem að tæknirisinn Apple sé nú að þróa vetnisrafhlöður fyrir fartölvur sínar. Fartölva sem knúinn er af slíkri rafhlöðu gæti starfað vikum saman án þess að þurfa á endurhleðslu. Viðskipti erlent 23.12.2011 12:30
Intel þróar snjallsíma Bandaríska tæknifyrirtækið Intel hefur opinberað frumgerð snjallsíma sem knúinn er af nýjasta örgjörva fyrirtækisins. Intel var frumkvöðull á sviði einkatölvunnar en hefur á síðustu árum verið fjarverandi í þróun snjallsíma. Viðskipti erlent 22.12.2011 09:49
Lækkanir þrátt fyrir risa innspýtingu Lækkanir urðu á Asíumörkuðum í nótt og evran lét undan í morgun sem talið er merki um efasemdir fjárfesta um að 500 milljarða evra innspýting Seðlabanka Evrópu inn í hagkerfi álfunnar í gær hafi tilætluð áhrif. Viðskipti erlent 22.12.2011 09:19
Auglýsingar munu birtast í fréttaveitu Facebook Notendur samskiptasíðunnar Facebook munu brátt sjá auglýsingar í fréttaveitu síðunnar. Talsmaður Facebook segir að auglýsingarnar munu birtast í janúar á næsta ári. Viðskipti erlent 21.12.2011 21:00
Apple vinnur að þróun raddstýrðs sjónvarps Tæknirisinn Apple þróar nú nýja tegund sjónvarps sem knúið er af sömu tækni og aðstoðarforritið Siri. Viðskipti erlent 21.12.2011 13:54
Norðmenn vilja lána AGS 1100 milljarða króna Norðmenn ætla að bjóðast til að lána Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 55 milljarða norskra króna, eða því sem nemur 1100 milljörðum íslenskra króna, á næstunni. Evrópusambandið hefur jafnframt beðið Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um aðstoð við að leysa skuldakreppuna á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 21.12.2011 10:16
Aldrei mælst meiri andstaða gegn evrunni í Danmörku Andstaða Dana gegn upptöku evrunnar hefur aldrei verið meiri í sögunni. Viðskipti erlent 21.12.2011 09:44