Viðskipti erlent
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 334 ›
Írar flýja skuldir með hjálp breskra dómstóla Breskur lögfræðingur gefur sig út fyrir að aðstoða yfirskuldsetta Íra við að losna úr fjötrum skuldbindinga sinna. Í breska blaðinu Guardian var í gær fjallað um lögfræðinginn Steve Thatcher, sem hefur að eigin sögn hjálpað um 55 Írum að afskrifa með hjálp breskra dómstóla ríflega 240 milljarða króna. Aðferðin felst í því að skuldarinn afhendir lykla af öllum eignum og flytur tímabundið frá Írlandi til Bretlands. Þar fer hann fyrir dómstóla og fær sig lýstan gjaldþrota. Þá þarf hann að dvelja tæpt ár í Bretlandi en eftir það getur hann flutt aftur til Írlands laus við sínar skuldir og tekið aftur upp sitt fyrra líf. Viðskipti erlent 29.5.2012 18:33
Formúlu-systur eyða 150 milljónum dala í hús Dætur Bernie Ecclestone, framkvæmdastjóra Formúlu 1 keppninnar, hafa farið mikinn að undanförnu í fasteignakaupum, að því er Wall Street Journal greindi frá á dögunum. Samtals hafa þær systur, Tamara og Petra, eytt um 150 milljónum dala í ný heimili. Viðskipti erlent 29.5.2012 12:14
SFO lömuð eftir rannsókn á Kaupþingsmáli Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, gerði ekki eina einustu húsleit á tímabilinu apríl 2011 - apríl 2012. Breska blaðið Financial Times fjallar um málið á vef sínum í gær og telur vísbendingar vera um að stofnunin sé orðin of varkár eftir að Tchenguizmálið klúðraðist. Viðskipti erlent 29.5.2012 11:17
Gengi bréfa Operu rýkur upp - Facebook hefur áhuga Gengi bréfa í norska hugbúnaðar- og tæknifyrirtækinu Opera Software, sem var stofnað af hinum íslensk ættaða Jóni S. von Tetzchner, hefur hækkað um 26 prósent eftir að vefsíðan Pocket-Lint greindi frá því að samfélagsmiðillinn Facebook hefði áhuga á því að kaupa fyrirtækið. Markaðsvirði félagsins hefur því hækkað skarplega og er það nú um 807 milljónir dala, eða sem nemur ríflega 100 milljörðum króna. Viðskipti erlent 29.5.2012 10:16
Smásala hrynur á Spáni Smásala á Spáni hrundi í aprílmánuði þessa árs miðað við sama mánuð í fyrra, en samkvæmt mælingum spænsku hagstofunnar féll smásala um 9,8 prósent milli ára. Það er mesta fall á smásölu síðan mælingar hagstofunnar hófust, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 29.5.2012 08:50
Kínverjar vilja opna dyr fyrir einkafjárfesta Kínversk stjórnvöld skoða nú hverni þau geta stutt enn frekar við hagvöxt í landinu, og er einkum horft til þess að opna dyrnar fyrir alþjóðlega einkafjárfesta í fjármálageira landsins. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið BBC. Viðskipti erlent 28.5.2012 21:08
Hlutabréfavísitölur bregðast vel við könnunum frá Grikklandi Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Asíu hækkuðu í morgun vegna frétta um skoðanakönnun í Grikklandi sem sýndi að litlar líkur væru á því að ríkisstjórn yrði mynduð í kosningunum 17. júní nk. sem væri á móti aðgerðaáætlun Grikkja í ríkisfjármálum, sem Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og kröfuhafar landsins hafa samþykkt. Viðskipti erlent 28.5.2012 08:27
7-Eleven verslun opnar á tveggja klukkustunda fresti Verslunarkeðjan 7-Eleven opnar nýja verslun á tveggja klukkustunda fresti. Engin önnur verslunarkeðja rekur fleiri verslanir en 7-Eleven, eftir því sem fram kemur á vef Huffington Post. Árið 2011 opnuðu 4600 verslanir en heildarfjöldi verslana er 46 þúsund. Viðskipti erlent 27.5.2012 16:18
Tekjur Google vaxa um 8,5 milljarða dala milli ára Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Google átti góðu gengi að fagna á síðasta ári en tekjur fyrirtækisins uxu um ríflega 8,5 milljarða dala frá árinu 2010, eða sem nemur ríflega þúsund milljörðum króna. Heildartekjur voru 37,9 milljarðar dala í fyrra en árið 2010 námu þær 29,3 milljörðum dala. Viðskipti erlent 27.5.2012 08:43
Tim Cook afþakkaði 75 milljónir dollara Tim Cook, stjórnarformaður Apple, afþakkaði 75 milljón dollara eða um 9.8 milljarða króna arðgreiðslu á dögunum. Þetta gerði hann ásamt öðrum starfsmönnum Apple sem eiga hlutbréf í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 26.5.2012 23:30
Lagarde harðorð í garð Grikkja Ljóst er að ekki er tekið út með sældinni að búa í Grikklandi um þessar mundir. Ríkið þiggur neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum með nokkuð ströngum skilyrðum. Viðskipti erlent 26.5.2012 10:45
Facebook með nýtt myndaforrit Facebook hefur ákveðið að fara af stað með nýtt myndaforrit fyrir snjallsíma sem kallast Camera. Forritið gerir notendum kleyft að taka myndir og deila þeim strax án þess að þurfa að hlaða upp einni mynd á hverjum tíma. Þessi nýi hugbúnaður þykir koma nokkuð á óvart því að forritið býður upp á svipaða möguleika og Instagram sem Facebook hefur ákveðið að kaupa á einn milljarð bandaríkjadala. Í fyrstu verður einungis hægt að nota Camera á Apple snjallsíma og spjaldtölvur. Í fréttatilkynningu frá Facebook er ekki tekið fram hvenær svoleiðis forrit mun fást fyrir Android eða önnur kerfi. Viðskipti erlent 25.5.2012 13:17
Stöðva viðskipti með bréf í Bankia Viðskipti með bréf í spænska bankanum Bankia hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Madríd. Talið er að forsvarsmenn bankans ætli að fara fram á aðstoð frá spænskum stjórnvöldum upp á 15 milljarða evra að loknum stjórnarfundi í bankanum sem haldinn verður síðar í dag. Bankia er fjórði stærsti banki landsins og að hluta í eigu ríkisins eftir að lánum var breytt í hlutafé fyrir nokkrum misserum. Viðskipti erlent 25.5.2012 08:06
Hewlett Packard rekur 27 þúsund starfsmenn Tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Hewlett Packard hyggst segja upp 27 þúsund starfsmönnum, eða um 8 prósent af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins á heimsvísu. Aðgerðirnar eiga að spara árlega um 3,5 milljarða dala, eða sem nemur ríflega 440 milljörðum króna. Viðskipti erlent 24.5.2012 08:56
Vekur upp spurningar um framtíð fjármálakerfisins Gríðarlegt tap sem bandaríski bankarisinn JPMorgan Chase tilkynnti nýverið um hefur sett umræðuna um hvað sé hæfilegt regluverk fyrir alþjóðlega fjármálakerfið á fullt aftur í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 23.5.2012 22:00
Yfirhönnuður Apple sleginn til riddara Jonathan Ive, yfirhönnuður Apple, má frá og með deginum í dag kalla sig Sir Jonathan Ive, en hann var sleginn til riddara í Buckinghamhöll fyrr í dag við hátíðlega athöfn. Hann byrjaði störf sín hjá Apple árið 1992 eftir að hafa unnið hjá sjálfstæðri hönnunarstofu. Ive var mjög góður vinur og samstarfsfélagi Steve Jobs sáluga samkvæmt frétt á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 23.5.2012 15:30
Papademos: Fyrir alla muni haldið ykkur við áætlunina! Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, segir að Grikkir verði, fyrir alla muni, að halda sig við áætlunina í ríkisfjármálum sem samþykkt var af Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðum, stjórnvöldum í Grikklandi og kröfuhöfum landsins. Einhver önnur leið muni dýpka vandamál landsins til muna og valda stórkostlegu víðtæku efnahagstjóni í Evrópu. Viðskipti erlent 23.5.2012 13:24
Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins um tæplega 11 prósent. Þetta hrun á markaðsvirði félagsins hefur nú kallað fram sterk viðbrögð hjá fjárfestum sem hafa tapað á fjárfestingunni í Facebook, og er þar ekki síst horft til þess hvernig skráningin var kynnt fyrir þeim sem keyptu bréf strax við skráningu. Þar beinast spjótin að bankanum sem hafði umsjón með skráningarferlinu fyrir hönd Facebook, Morgan Stanley. Viðskipti erlent 23.5.2012 08:49
Dyr að opnast inn á stærsta farsímamarkað heims Markaðurinn fyrir smáforrit (App) í snjallsíma hefur stækkað ógnarhratt síðustu misseri, ekki síst í Asíu. Í Kína eru um einn milljarður farsímanotenda og er hlutdeild snjallsíma sífellt að stækka. Þetta gefur framleiðendum smáforrita mikil tækifæri á því að komast inn á markað sem annars er þekktur fyrir að vera með margvíslegar hindranir fyrir hugbúnaðarframleiðendur. Viðskipti erlent 22.5.2012 11:37
OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekki verður gripið til nauðsynlegra aðgerða til þess að minnka opinberar skuldir þjóðríkja. Samkvæmt nýrri spá OECD, sem Wall Street Journal vitnar til í morgun, mun landsframleiðsla í Evrópu dragast saman um 0,1 prósent á þessu ári. Til þess að hún aukist þurfa ríkisstjórnir að grípa til víðtækra aðgerða, til þess að auka hagvöxt en fyrri spá stofnunarinnar gerði ráð fyrir hagvexti upp á 0,2 prósent. Viðskipti erlent 22.5.2012 11:02
Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðskilja hann algjörlega frá opinberum sjóðum. Bretar hefðu getað lært mikið af framtíðarhugsjón Norðmanna, segir í myndbandsumfjöllun sem aðgengileg er á viðskiptavef Vísis, þar sem samanburður á stöðu Norðmanna og Breta, þegar kemur að sjóðum fyrir komandi kynslóðir, er til umfjöllunar. Viðskipti erlent 22.5.2012 08:47
Google Chrome er vinsælasti vafri veraldar Nýjustu netmælingar fyrirtækisins StatCounter gefa til kynna að Chrome, netvafri tæknirisans Google, sé nú vinsælasti vafri veraldar. Viðskipti erlent 21.5.2012 21:21
Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Facebook, en markaðsvirði Facebook hefur verið í frjálsu falli í dag. "Skráningarverðið hefði átt að vera helmingurinn af því sem það var,“ segir Michael Pachter, greinandi hjá fyrirtækinu Wedbush Securites, í viðtali við Wall Street Journal. Viðskipti erlent 21.5.2012 20:30
Skemmtigarðastríð í uppsiglingu Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk. mun Disney opna nýjan Cars-skemmtigarð í Kaliforníu sem kostar um 450 milljónir dala, eða sem nemur yfir 56,7 milljörðum króna. Forsvarsmenn Disney vonast til þess að ná að lokka fjölskyldufólk í garðinn í stórum stíl, en garðurinn verður glæsilegur í alla staði, þar sem Leiftur McQueen og félagar verða í aðalhlutverki. Disney fékk um 73 milljónir gesta í átta skemmtigarða á síðasta ári. Viðskipti erlent 21.5.2012 13:58
Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyrirtækinu Alibaba Group. Um gríðarlegar upphæðir er að ræða en Alibaba kaupir 20 prósenta hlut Yahoo á rúma sjö milljarða dollara, eða um 898 milljarða króna. Eftir viðskiptin mun Yahoo ennþá eiga 20 prósent í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 21.5.2012 10:25
Danir auka þjónustu við BRIC-löndin Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu, Brasilíu, Rússland, Indland og Kína, þar sem vöxtur hefur verið gríðarlega mikill undanfarin ár, á sama tíma og erfiðleikar hafa verið miklir á alþjóðavettvangi. Viðskipti erlent 21.5.2012 08:52
Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evrópu, að því er greint er frá í helgarútgáfu Wall Street Journal. Þrátt fyrir að Seðlabanki Evrópu hafi lánað evrópskum bönkum ríflega þúsund milljarða evra, liðlega 166 þúsund milljarða króna, í lok síðasta árs og byrjun þessa árs, þá hefur áhyggjum fjárfesta ekki verið eytt. Lánin voru veitt á lægri vöxtum en bönkum bauðst á markaði, einkum til þess að þeir gætu endurfjármagnað skuldir ríkissjóða í Evrópu. Viðskipti erlent 20.5.2012 23:41
Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúka kaupum á farsímaframleiðandanum Motorola. Verðmiðinn er 12,5 milljarðar dala, eða sem nemur 1.587,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Kaupin voru endanlega heimiluð eftir að forsvarsmenn Google féllust á skilyrði kínverskra yfirvalda um að Android stýrikerfið standi öllum opið án kostnaðar næstu fimm árin, af því er New York Times greindi frá í dag. Viðskipti erlent 20.5.2012 14:00
Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur" Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það heilaga með því að breyta hjúskaparstöðu sinni á áðurnefndu sköpunarverki sínu Facebook. Viðskipti erlent 20.5.2012 09:54
Skuldastaða evruríkjanna aðalviðfangsefnið Búist er við því að skuldastaða evruríkjanna verði aðalviðfangsefni leiðtoga átta helstu iðnríkja, eða svokallaðra G8 ríkja, þegar þeir hittast nærri Washington í Bandaríkjunum í dag. Obama, forseti Bandaríkjanna, og Francois Hollande, nýr forseti Frakklands, munu kynna Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, áherslur sínar í efnahagsmálum. Þá er búist við því að rætt verði um mögulegt brotthvarf Grikklands úr evrusamstarfinu. Fundurinn hófst seint í gærkvöld, að því er fram kemur í fréttum BBC. Viðskipti erlent 19.5.2012 12:38