Viðskipti erlent
177 178 179 180 181 182 183 184 185 … 334 ›
Lægsta atvinnuleysið í Austurríki Atvinnuleysið í Evrópu mælst minnst í Austurríki um þessar mundir, en það mælist nú 3,9 prósent. Það á eftir koma Lúxemborg og Holland en þar mælist atvinnuleysið 5,2 prósent, samkvæmt nýjum opinberum upplýsingum Hagstofu Evrópu, Eurostat. Viðskipti erlent 4.6.2012 14:52
„Þrír mánuðir til að bjarga evrunni.“ Viðskiptajöfurinn og góðgerðamaðurinn George Soros segir þjóðarleiðtoga ESB hafa þrjá mánuði til að bjarga evrunni. Hann telur að efnahagur Þýskalands muni byrja að veikjast í haust. Þar með verði erfiðara fyrir Angelu Merkel að beita sér og styðja aðrar þjóðir. Viðskipti erlent 4.6.2012 13:43
Ein hola stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja Olíuborun sem er að hefjast í færeysku lögsögunni eftir tíu daga verður stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja til þessa. Mikil spenna ríkir meðal Færeyinga og ríkir bjartsýni um að nú hylli loksins undir að þeir verði olíuþjóð enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú. Áætlað er að borun einnar holu kosti yfir 20 milljarða króna og á verkið að taka fjóra til fimm mánuði, Viðskipti erlent 4.6.2012 11:30
Evrópumarkaðir opna með rauðum tölum Markaðir í Evrópu opnuðu í morgun með rauðum tölum og fylgdu þar með í fótspor Asíumarkaða í nótt. Viðskipti erlent 4.6.2012 09:21
Ferrari GTO frá 1962 er dýrasti bíll sögunnar Eplagrænn Ferrari 250 GTO frá árinu 1962 er orðinn dýrasti bíll sögunnar. Hann var seldur á uppboði um helgina fyrir rúmlega 4,5 milljarða króna. Viðskipti erlent 4.6.2012 07:26
Niðursveifla á mörkuðum í Asíu Hlutabréfaeigendur í Asíu hlutu skell á mörkuðum þar í nótt. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um 2% og hefur gildi hennar ekki verið lægra í 28 ár en vísitalan hefur stöðugt lækkað undanfarnar níu vikur. Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði einnig um 2%. Viðskipti erlent 4.6.2012 06:58
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka og er tunnan af Brent olíunni komin undir 97 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin undir 82 dollara. Hefur verðið á Brent olíunni ekki verið lægra síðan snemma á síðasta ári. Viðskipti erlent 4.6.2012 06:56
Vendipunktur með hagvexti Efnahagslífið í Danmörku er á uppleið á ný eftir samdráttarskeið, en 0,3% hagvöxtur var í landinu á fyrsta fjórðungi, samkvæmt nýjum hagtölum. Vöxturinn er vissulega hóflegur og hefur ekki mikil áhrif á atvinnulífið, en sérfræðingar líta á þetta sem ákveðinn vendipunkt. Danskt efnahagslíf hefur verið í mikilli lægð síðustu misseri þar sem atvinnuleysi, skuldir heimila og hrun húsnæðismarkaðarins hafa valdið ugg. Viðskipti erlent 2.6.2012 03:30
Írar samþykktu fjármálasáttmála ESB Almenningur á Írlandi hefur samþykkt fjármálasáttmála ESB. Yfir 60% þeirra sem greiddu atkvæði studdu sáttmálann, sem á að að koma á stöðuleika á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 1.6.2012 23:29
Hlutabréfamarkaðir taka dýfu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa brugðist illa við nýjum atvinnuleysistölum sem birtar voru í dag. Í Evrópu er meðaltalsatvinnuleysi nú um 11 prósent og í Bandaríkjunum mælist það 8,2 prósent, en í apríl mældist það 8,1 prósent. Viðskipti erlent 1.6.2012 16:13
Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum Samkvæmt nýjustu tölum atvinnumálaráðuneytis Bandaríkjanna mældist atvinnuleysi í landinu 8.2 prósent í síðasta mánuði. Er þetta 0.1 prósentustigi meira en í apríl. Viðskipti erlent 1.6.2012 14:02
Röskun á þjónustu Facebook Röskun varð á þjónustu samskiptamiðilsins Facebook í dag. Fjöldi fólks hafði ekki aðgang að gögnum sínum í allt að tvær klukkustundir. Viðskipti erlent 1.6.2012 12:54
Tilraunaútgáfa Windows 8 opinberuð Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, fer í almenna sölu seint í haust, rúmum þremur árum eftir að Windows 7 fór á markað. Fyrirtækið hefur nú birt nýjustu útgáfu stýrikerfisins á heimasíðu sinni. Viðskipti erlent 1.6.2012 12:03
Mesta atvinnuleysi á evrusvæðinu frá því mælingar hófust Atvinnuleysi á evrusvæðinu mælist nú 11% og hefur ekki verið meira síðan að mælingar á því hófust árið 1995. Viðskipti erlent 1.6.2012 10:09
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Heimsmarkaðsverð á olíu hefur verið í frjálsu falli í morgun. Verðið á Brent olíunni er komið rétt undir 100 dollara og hefur ekki verið lægra síðan í febrúar í fyrra. Viðskipti erlent 1.6.2012 09:34
Ekkert lát er á verðlækkunum á olíu Ekkert lát er á verðlækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu. Sérfræðingar reikna með að sú þróun haldi áfram fram á sumarið. Viðskipti erlent 1.6.2012 07:22
Töluverð lækkun á álverði síðustu mánuði Heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað töluvert undanfarna þrjá mánuði og stendur nú í rúmum 2.000 dollurum á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Í byrjun mars stóð verðið hinsvega í 2.350 dollurum á tonnið. Viðskipti erlent 1.6.2012 07:04
Fjármagnsflóttinn frá Spáni nam 11.000 milljörðum í maí Spánverjar hafa sent tugi milljarða evra úr landi á undanförnum mánuði vegna ótta um að bankakerfi landsins sé að hruni komið. Viðskipti erlent 1.6.2012 06:45
Fréttaskýring: Efnahagsvandinn í Evrópu dýpkar enn meira Hagtölur Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, sem birtar voru í morgun sýna glögglega hvernig staða efnahagsmála í Evrópu er um þessar mundir. Suður-Evrópa, þ.e. Grikkland, Portúgal, Spánn og Ítalía, er í miklum vanda sem birtist ekki síst í algjöru hruni á smásölu. Þannig féll smásala í aprílmánuði í Grikklandi um 16 prósent frá fyrra ári, og á Spáni féll hún um 12 prósent á sama tíma. Þetta þykir til marks um að erfiðleikar í efnahagslífi þessara landa séu að dýpka og það nokkuð hratt. Viðskipti erlent 31.5.2012 23:36
Hörmulegar aðstæður í verksmiðjum stórfyrirtækja Vinnuaðstaðan í Foxconn verksmiðjunum í Kína er afleit og refsingar virðast helsta stjórnunaraðferðin. Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var síðastliðinn fimmtudag. Í verksmiðjunum eru m.a. framleiddar vörur fyrir Apple, Amazone, Dell og Nokia. Viðskipti erlent 31.5.2012 20:40
Írar kjósa um fjármálasáttmála ESB Talið er að Írar muni samþykkja fjármálasáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Markmið sáttmálans er að koma á stöðuleika á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 31.5.2012 15:57
Hagvöxtur á Indlandi 5,3 prósent Hagvöxtur í Indlandi mældist 5,3 prósent á fyrsta ársfjórðungi en a fjórðungnum á undan mældist hann 6,1 prósent. Sérfræðingar gerðu ráð fyrir að hagvöxturinn yrði meiri, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 31.5.2012 14:27
Tim Cook á D10: Leynd, Facebook, Siri og Apple TV Margt bar á góma þegar Tim Cook, stjórnarformaður Apple, settist niður með stjórnendum D10 tækniráðstefnunnar í Palos Verdes í Kaliforníu í vikunni. Þar ræddi Cook um það sem betur hefði mátt fara hjá Apple á síðustu mánuðum sem og næstu skref tæknirisans. Viðskipti erlent 31.5.2012 12:47
Mario Draghi: Evrusvæðið ósjálfbært Mario Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, segir að grunnfyrirkomulag evrusvæðisins sé "ósjálfbært“ og mikilla úrbóta sé þörf ef ekki eigi að koma til enn dýpri efnahagsvanda á evrusvæðinu. Frá þessu greindi Draghi á ráðstefnu Evrópuþingsins í morgun, samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 31.5.2012 10:42
Vöruskiptin hagstæð um 9,5 milljarða Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna. Vöruskiptin voru því hagstæð um 9,5 milljarða króna, samanborið við 3,4 milljarða í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar og þar segir ennfremur að fyrstu fjóra mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 206,2 milljarða króna en inn fyrir 178,3 milljarða króna. Viðskipti erlent 31.5.2012 10:38
Moody's lækkar danska banka Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfiseinkunnir níu danskra banka, þar á meðal Danske Bank. Ástæðan er sögð óvissa sem ríkir nú á evrusvæðinu og efasemdir um gæði lánasafns bankanna. Bankarnir lækkuðu mismikið en einn þeirra, DLR Kredit er nú kominn í ruslflokk. Auk þess var einkunn Sampo bankans í Finnlandi lækkuð en hann er í eigu Danske Bank. Viðskipti erlent 31.5.2012 08:18
ESB: Evrulöndin gætu þurft að mynda „bankabandalag“ Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að evrulöndin 17 gætu þurft að mynda með sér "bankabandalag“ til þess að takast sameiginlega á við erfiðleika fjármálageirans á svæðinu. Viðskipti erlent 30.5.2012 11:54
Ritstjóri hjá WSJ: Staðan í Bandaríkjunum áfram erfið Bandarískur efnahagur hefur ekki rétt jafn hratt úr kútnum eins og vonir stóð til um. Í umfjöllun ritstjórnar Wall Street Journal, í þættinum The News Hub, ræðir David Wessell, ritstjóri efnahagsmála hjá blaðinu, um stöðuna í Bandaríkjunum og hvernig alþjóðaumhverfið er að hafa áhrif á bandaríska hagkerfið. Viðskipti erlent 30.5.2012 08:15
Facebook nær nýjum lægðum Gengi Facebook hélt áfram að falla á hlutabréfamarkaði í gær og eru hlutir í félaginu nú komnir niður í 29 dali í hluti. Þegar félagið var skráð var það verðlagt á 38 dali og hefur því lækkað um ríflega tuttugu prósent frá skráningu. Viðskipti erlent 30.5.2012 07:44
Evran ekki verðminni í tæp tvö ár Verðmæti evrunnar féll í dag eftir að tilkynnt var um fyrirhugaða afsögn seðlabankastjóra Spánar. Evran hefur ekki verið lægri í tæp tvö ár miðað við Bandaríkjadalinn. Almennar áhyggjur af gjaldfærni spænskra banka valda einnig falli hennar. Ein evra er nú 1,25 dollari. Viðskipti erlent 29.5.2012 20:52