Viðskipti erlent
176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 334 ›
Verk eftir danskan málara selt á tæplega 350 milljónir Málverk eftir danska málarann Vilhelm Hammershöj var slegið á uppboði í London í gærdag fyrir tæplega 350 milljónir króna og er verkið þar með dýrasta málverkið sem selt hefur verið á uppboði í sögu Danmerkur. Viðskipti erlent 12.6.2012 06:49
Útflutningur eykst skarplega í Kína en samt merki um minni hagvöxt Þrátt fyrir að útflutningur frá Kína inn á erlenda markaði hafi verið 15,3 prósentum meiri í maí en í sama mánuði í fyrra, eru áhyggjuraddir vegna hjöðnunar í Kína orðnar háværar. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að þessi mikla hækkun bendi ekki til mikils vaxtar heldur sé um að ræða skammtímasveiflu, sem sé ekki svo mikil þegar horft sé ársins í heild. Viðskipti erlent 11.6.2012 08:50
Langtímatvinnuleysi stóreykst innan ESB Langtímatvinnuleysi hefur stóraukist í ríkjum Evrópusambandsins undanfarin ár og nær nú yfir fjóra af hverjum tíu á atvinnuleysisskrá. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:45
Vanskil lána hjá almenningi í Danmörku aukast hratt Vanskil lána hjá dönskum almenningi hafa vaxið mjög hratt á undanförnum árum. Bara frá áramótum hafa vanskilin aukist um milljarð danskra króna eða yfir 21 milljarð kr. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:34
Markaðir í uppsveiflu, evran styrkist og olíuverð hækkar Markaðir hafa tekið vel í 100 milljarða evru neyðaraðstoð Evrópusambandsins til handa spænskum bönkum sem samþykkt var um helgina. Viðskipti erlent 11.6.2012 06:25
Spánn stærsta ríkið sem óskar aðstoðar Spánn er fjórða ríkið á evrusvæðinu sem óskar eftir fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu, en jafnframt stærsta ríkið sem biður um slíka aðstoð. Viðskipti erlent 10.6.2012 10:07
Spánverjar fá allt að 100 milljarða evrulán Spánverjar munu fá allt að 100 milljarða evra (rúmir 16.000 milljarðar króna) lán frá sameiginlegum sjóðum evrusvæðisins til að verja banka landsins. Viðskipti erlent 9.6.2012 21:04
Spánverjar óska eftir neyðaraðstoð Spánn hefur óskað eftir neyðaraðstoð vegna spænskra banka. Þetta gaf fjármálaráðherra Spánar upp eftir að fjármálaráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í dag. Viðskipti erlent 9.6.2012 18:09
Obama hefur áhyggjur af evrusvæðinu Barack Obama, bandaríkjaforseti, sagði í gær að þjóðarleiðtogar í Evrópusambandinu þyrftu að taka erfiðar ákvarðanir til að forða evrusvæðinu undan kreppu. Hann sagði að djúp kreppa í Evrópu myndi hafa áhrif á bandarískan efnahag, enda er Evrópusambandið stærsti viðskiptaaðili Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 9.6.2012 17:44
Liggur á að leysa vanda Spánar Það liggur á að leysa vandamál Spánar miðað við orð Jean-Claude Juncker, sem stýrir fundum fjármálaráðherra Evrópusambandsins (ESB). Talið er að stjórnvöld í Brussel og Þýskalandi vilji afgreiða vandamál Spánar fyrir þingkosningar sem fara fram í Grikklandi 17. júní næstkomandi. Viðskipti erlent 9.6.2012 17:36
Spánn þarf 6.500 milljarða króna aðstoð Bankar á Spáni þurfa að safna um 40 milljörðum evra til að mæta áföllum á mörkuðum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birtist í gærkvöldi. Spánn er miklum vandræðum en búist er við að ríkið leiti formlega eftir fjárhagslegri aðstoð Evrópusambandsins í dag. Spán vantar peninga til að endurfjármagna bankakerfið í landinu sem er lamað. Hingað til hafa yfirvöld landsins aftur á móti þvertekið fyrir að þörf sé á aðstoð vegna bankakerfisins. Viðskipti erlent 9.6.2012 11:30
Þrýst á spænsk stjórnvöld um að leita hjálpar Vaxandi þrýstingur er nú á spænsk stjórnvöld meðal evruríkja um að þau leiti á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins og óski formlega eftir fjárhagsaðstoð vegna slæmrar stöðu fjármálakerfisins í landinu og mikilla ríkisskulda. Á vef Wall Street Journal segir að embættismenn ríkja Evrópusambandsins muni funda um helgina vegna alvarlegrar stöðu Spánar og reyna að komast að niðurstöðu fyrir mánudaginn nk. um hvað gera skuli. Viðskipti erlent 8.6.2012 23:06
Byggðastofnun selur rækjuverksmiðjuna Bakkavík Samningar hafa tekist milli Byggðastofnunar, þrotabús Bakkavíkur hf., og Kampa hf., um kaup Kampa á rækjuverksmiðju Bakkavíkur í Bolungarvík. Viðskipti erlent 8.6.2012 10:13
Heimsmarkaðsverð á olíu fellur hratt að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur fallið hratt að nýju í nótt. Verðið á bandarísku léttolíunni hefur lækkað um 3% síðan í gær og stendur í rúmum 82 dollurum á tunnuna. Verðið á Brent olíunni hefur lækkað um 2% á sama tíma og kostar tunnan af henni nú 98 dollara. Viðskipti erlent 8.6.2012 09:53
Kínverjar lækka stýrivexti Stjórnvöld í Kína lækkuðu stýrivexti í landinu í gær. Það er tilraun til að örva hagvöxt landsins. Hagvöxtur í Kína hefur verið mikill undanfarin ár. Nú hefur hægt nokkuð á honum en hann var 8,1% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við ársfjórðung árið í fyrra. Stýrivaxtalækkunin er hugsuð til að örva lánastarfsemi í landinu og auka þar með hagvöxtinn. Þar í landi hefur lánastarfsemi staðið undir stórum hluta hagvaxtarins. Viðskipti erlent 7.6.2012 13:06
Brent olían skreið yfir 100 dollara markið í nótt Verðið á Brent olíunni skreið yfir 100 dollara á tunnuna markið í nótt og hefur verið að sveiflast í kringum það verð í morgun. Viðskipti erlent 7.6.2012 09:14
Spænska ríkið fær sex prósent vexti Spænska ríkið aflaði lánsfjár á mörkuðum í dag en á þriðjudaginn var frá því greint að lánamarkaðir væru nú lokaðir fyrir spænska ríkinu og fjármálafyrirtækjum með öllu. Viðskipti erlent 7.6.2012 09:13
Magurt sumar framundan í ferðaþjónustunni í Grikklandi Ferðaþjónustan í Grikklandi verður fyrir barðinu á ástandinu þar í landi og þeim pólitíska óróa sem ríkt hefur vegna efnahagsörðuleika Grikkja. Viðskipti erlent 7.6.2012 06:58
Hækkanir á hlutabréfamörkuðum Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hækkuðu skarplega í dag, en hækkunin er rakin til þeirrar ákvörðunar Seðlabanka Evrópu að halda vöxtum í einu prósenti. Þannig hækkaði DAX vísitalan þýska um ríflega tvö prósent og Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum um 2,4 prósent. Viðskipti erlent 6.6.2012 23:37
Hlutabréf í Evrópu hækka Hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í dag eftir að Seðlabanki Evrópu ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í einu prósenti. Jafnvel þó ákvörðunin hafi ekki komið á óvart þóttu þetta skilaboð um að ekki hefði verið nauðsynlegt að lækka vextina enn frekar til þess að örva hagvöxt. Verðbólga mælist nú 2,4 prósent á evruvæðinu en verðbólgumarkmið seðlabankans er 2 prósent. Viðskipti erlent 6.6.2012 13:05
Ætla að kaupa Víski fyrir 200 milljarða Drykkjarvörurisinn Diageo ætlar sér að fjárfesta í viský framleiðslu fyrir einn milljarða punda, eða sem nemur tæplega 200 milljörðum króna, á næstu fimm árum. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag. Viðskipti erlent 6.6.2012 09:48
Vogunarsjóðir setja met í veðmálum gegn evrunni Vogunarsjóðir taka nú veðmál gegn evrunni sem aldrei fyrr með því að skortselja hana. Viðskipti erlent 6.6.2012 08:38
Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn sex þýskra banka Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn sex þýskra banka um eitt stig þar á meðal Commerzbank, sem er næststærsti banki landsins. Lánshæfismat stærsta bankans, Deutsche Bank, er hinsvegar óbreytt áfram. Viðskipti erlent 6.6.2012 07:58
Forstjóri Shell spáir lækkandi olíuverði út þetta ár Peter Voser forstjóri Shell olíufélagsins segir að heimsmarkaðsverð á olíu muni lækka áfram á seinnihluta þessa árs og ekki ná sér á strik að nýju fyrr en á næsta ári. Viðskipti erlent 6.6.2012 07:07
Hlutabréf í Facebook halda áfram að falla í verði Ekkert lát er á hremmingum þeirra sem fjárfestu í hlutbréfum Facebook þegar samskiptavefsíðan var skráð á markað í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 6.6.2012 06:57
ESB: Tap á bönkum lendi ekki á skattborgurum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun í dag kynna nýjar tillögur sem miða að því að koma í veg fyrir að peningar skattborgara séu notaðir til þess að bjarga bönkum sem eru að falli komnir. Viðskipti erlent 6.6.2012 06:54
Kortakerfi í Danmörku liggur niðri um allt landið Greiðslukortakerfi Danmerkur liggur niðri um allt landið í augnablikinu vegna bilunar í kerfinu. Viðskipti erlent 6.6.2012 06:45
Microsoft frumsýnir Xbox SmartGlass Hin árlega E3 tölvuleikjaráðstefna stendur nú sem hæst í Los Angeles. Þar gefst tölvuleikjaframleiðendum tækifæri á að ræða við viðskiptavini sína og spilara og kynna helstu nýjungar sínar. Viðskipti erlent 5.6.2012 11:37
Hlutabréf, olíuverð og evran í uppsveiflu Vísitölur á mörkuðum í Asíu í nótt hækkuðu í fyrsta sinn í fimm daga. Nikkei vísitalan í Tókýó og Hang Seng vísitalan í Hong Kong hækkðu báðar um tæplega 0,9%. Viðskipti erlent 5.6.2012 06:45
Facebook gæti lækkað lágmarksaldur Talið er að samskiptamiðillinn Facebook muni brátt lækka lágmarksaldur notenda sinna. Þannig munu börn yngri en 13 ára fá aðgang að síðunni, þó aðeins undir eftirliti forráðamanns. Viðskipti erlent 4.6.2012 22:15