Skoðun
87 88 89 90 91 92 93 94 95 … 334 ›
Hvað kostaði Krýsuvík? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í liðinni viku var samþykkt að selja HS orku nýtingarétt af auðlindum í Krýsuvík. Fyrirtækið hyggst reisa virkjun á svæðinu, virkja jarðvarma til raforkuframleiðsl, til sölu á heitu vatni til heimila og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og vinna grunnvatn eins og segir í samningi aðilanna. Skoðun 11.6.2024 10:01
Endurvekjum skikkjuna strax! Samúel Karl Ólason skrifar Ég hef lengi ætlað mér að skrifa þessa grein en setið á mér af ótta við viðbrögð samfélagsins. Það er ekki auðvelt að stíga fram sem skikkjuunnandi en ég tel okkur vera mun fleiri en fólk áttar sig á. Skikkjur eru nefnilega klikkaðar. Skoðun 11.6.2024 09:00
Allt það helsta með einum smelli Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Við höfum ekki þolinmæði eða tíma fyrir seinagang og flækjur. Við viljum að þjónusta sé einum smelli frá, hvort sem viðkemur matarkaupum eða við leit að upplýsingum. Við gerum þessar kröfur til einkageirans og ekki síður til hins opinbera, sérstaklega í heimi nýsköpunar. Þessum kröfum þurfum við að mæta og veita hraða, skilvirka og aðgengilega þjónustu. Skoðun 11.6.2024 08:31
Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding skrifar Allt frá blautu barnsbeini vissi ég nákvæmlega hvert ég vildi stefna í lífinu, ég vildi vaða í seðlum án þess að vinna neitt og vera laus við allt vesen og stress. Ég áttaði mig aldrei á af hverju fólk væri að leggja á sig að fara í nám til að læra einhverja iðn eða stefna á háskólanám, bæði með tilheyrandi kostnaði og álagi. Nei, ég ætlaði sko ekki að strita og púla að óþörfu. Ég ákvað að redda mér örorkumati og lifa ljúfa lífinu án þess að lyfta fingri. Skoðun 11.6.2024 08:00
Orkuskipti í forgang Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir skrifar Veröldin stefnir núna hraðbyri inn í flöskuháls fjöldaútdauða tegunda ásamt yfirstandandi loftslagsbreytingum. Alþjóðlega er stefnt að því að halda hækkun á meðalhita jarðar innan við 2 gráður á Celsius, en málið er ekki svo einfalt. Mikil afneitun er í gangi og stjórnmálamenn yst á hægri væng stjórnmálanna, sem afneita vísindalegum niðurstöðum loftslagsvísinda, njóta mikils og vaxandi fylgis. Skoðun 10.6.2024 17:00
Ancelotti, Real Madrid og árangur liðsins – út frá sálfræðilegum pælingum Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Spænska félagið Real Madrid vann meistaradeildina í 15. sinn um daginn sem er ótrúlegur árangur. Real Madrid er heillandi áfangastaður fyrir bestu leikmenn heim vegna þess mikla árangurs sem liðið hefur náð í gegnum tíðina. Skoðun 10.6.2024 13:01
Takkaborð tilfinninga minna Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Ég hef stundum líkt tilfinningalífi mínu við svona takkaborð sem ljósa- og hljóðmenn nota í leikhúsinu eða á tónleikum. Á slíku borði eru bæði on & off takkar, snúningstakkar og svona sleðar sem auka eða draga úr tilfinningum eða viðbrögðum mínum. Alla jafna eru stillingarnar bara svona frekar rétt stilltar og bæði birta og hljóð bara nokkuð þægileg og í góðu flæði fyrir skilningarvit mín. Skoðun 10.6.2024 12:01
Kyrrstöðuverðbólga Jón Ingi Hákonarson skrifar Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni. Skoðun 10.6.2024 11:30
Bókaútgáfa, íslenskukennsla, þýðingar og máltilfinning Höskuldur Þráinsson skrifar Sigríður Hagalín Björnsdóttir skrifaði áhugaverða grein hér á Vísi um daginn. Þar fjallar hún m.a. um nauðsyn þess að efla íslenska tungu og bendir á ýmsar leiðir til þess. Skoðun 10.6.2024 11:30
Mikilvægi dýranna: Þau hafa sitt vit Matthildur Björnsdóttir skrifar Steinsteypuvæðing heims er að drepa lífríkið og dýrin, og um leið jörðina. Skoðun 10.6.2024 11:00
Nauðungarstjórnun í nánum samböndum Ásgeir Þór Ásgeirsson skrifar Nauðungarstjórnun er orð sem líklega fæstir þekkja, né vita hvað merkir. Að vita merkingu þess er hins vegar nauðsynlegt. Það þarf að auka vitund almennings um þetta mjög mikilvæga málefni. Nauðungarstjórnun er þegar einstaklingur, oftast maki eða fyrrverandi maki, tekur sér stjórn á lífi annarrar manneskju, t.d. með því að stýra aðgengi viðkomandi að samskiptum við vini og fjölskyldu, fjármálum, samfélagsmiðlum eða öðru sem eðlilegt er að frjáls manneskja hafi forræði yfir sjálf. Skoðun 10.6.2024 10:00
Ákall eftir náttúrufræðikennurum Hólmfríður Sigþórsdóttir skrifar Hvernig bætir eitt leyfisbréf gæði menntunar? Árið 2020 voru samþykkt lög um eitt leyfisbréf kennara, óháð skólastigi. Erfitt var að sjá hvernig þessi breyting ætti að auka gæði menntunar og þess vegna mótmæltu meðal annarra Samtök líffræðikennara. Það hefði verið heppilegra að gera sértækari leyfisbréf fyrir kennara að minnsta kosti á efri skólastigum. Skoðun 10.6.2024 08:00
Minni atvinnuþátttaka og fjölgun starfa stórauka íbúðaþörf Sigurður Stefánsson skrifar Þörfin fyrir vinnandi hendur vex 41% hraðar en íbúum landsins - atvinnuþátttaka minnkar og íbúðaþörf eykst hratt. Skoðun 10.6.2024 07:31
Jónsósómi II – engin skuldsetning vegna 984 m.kr. hafnarframkvæmda Kristinn H. Gunnarsson skrifar Jón Kaldal hefur dregið til baka þá röngu fullyrðingu sína að laxeldisfyrirtækin hafi farið í mál við sveitarfélögin vegna hafnagjalda. Það eru engin dæmi um slíkt. Þessu er öfugt farið. Tvisvar hafa sveitarfélög höfðað mál á hendur laxeldisfyrirækjunum vegna hafnagjalda. Öðru málinu var vísað frá dómi enda tilhæfulaust. Því var ekki áfrýjað. Skoðun 9.6.2024 18:00
Framtíð stjórnmálanna – val kjósenda Magnea Marínósdóttir skrifar Mikið er rætt um framtíð vinstrisins að loknum forsetakosningum sem beindu kastljósinu að vinstri og hægri ás stjórnmálanna. Það átti sér stað sérstaklega vegna framboðs Katrínar Jakobsdóttur, fyrrum forsætisráðherra og formanns Vinstri grænna, og þeirrar umræðu sem spannst í röðum hennar stuðningsfólks um „vinstrafólkið“ sem studdi ekki framboð hennar. Skoðun 9.6.2024 17:31
Enn um vanda drengja Ragnar Þór Pétursson skrifar Á stéttina við skólann minn er máluð risastór sól. Börnin búa stundum til leiki sem hnitast um hana. Einn þeirra er þannig að þau standa í hring í kringum sólina og svo skiptast þau á að fullyrða eitthvað um sjálf sig. Síðan ganga þau inn í sólina og hin fylgja á eftir finnist þeim fullyrðingin líka eiga við um sig. Í hádeginu einn mildan vetrardag urðum við, ég og samstarfskona mín, vitni að slíkum leik. Það voru allt stelpur sem voru að leika, um það bil níu ára gamlar. Sú sem „átti að gera“ hugsaði sig um andartak og sagði svo stundarhátt: „Ég fæ oft kvíða.“ Síðan gekk hún öruggum skrefum inn að miðju sólar. Hinar fylgdu allar á eftir, hver ein og einasta. Á sama tíma voru strákarnir í bekknum uppteknir við annað. Þeir voru hlæjandi að elta bolta úti á battavelli. Skoðun 9.6.2024 14:01
Séreign er ekki það sama og séreign Björn Berg Gunnarsson skrifar Hvernig þætti okkur ef íþróttafréttamenn færu nú í sífellu að tala um að Evrópumót karla í íþróttum væri að hefjast? „Hvaða íþrótt?“ geri ég ráð fyrir að yrði spurt og þá fyrst yrði tekið fram að um fótbolta væri að ræða. Skoðun 9.6.2024 08:01
Heppni að ekkert fordæmi var til staðar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Fullyrt hefur verið að Ísland hafi haft sigur í Icesave-deilunni vegna þess að evrópskur dómstóll hafi bjargað landinu. Vísað er þar til þeirrar niðurstöðu EFTA-dómstólsins í lok janúar 2013 að íslenzka ríkið væri ekki ábyrgt fyrir innistæðutryggingum vegna innistæðna í Icesave-netbankanum sem starfræktur var af Landsbanka Íslands í Bretlandi og Hollandi. Þær fullyrðingar standast hins vegar í reynd alls enga skoðun. Skoðun 8.6.2024 10:00
Í skugga sílóa og sandryks Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Þorlákshöfn var á síðasta ári 41. sveitarfélagið til að taka þátt í verkefni Embætti landlæknis um Heilsueflandi samfélag. Á heimasíðu Ölfuss segir að meginmarkmið sveitarfélagsins sé að skapa tækifæri fyrir íbúa til bættra lífsgæða með fjölbreyttum möguleikum til hreyfingar, útiveru, íþróttaiðkunar og annarrar afþreyingar og frístundaiðju. Það skýtur því skökku við að ætla að reisa risavaxna mölunarverksmiðju í landi Þorlákshafnar, í heilsueflandi sveitarfélagi. Auk óprýði og stærðar verksmiðjunnar er hætta á umhverfisslysum, hljóð og umhverfismengun og öðru sem slíkur iðnaður hefur í för með sér. Náttúrufræðistofnun, Umhverfisstofnun, Hafrannsóknarstofnun, Vegagerðin, Samgöngustofa og Heilbrigðiseftirlit Suðurnlands hafa réttilega látið í ljós áhyggjur af fyrirhugaðri framkvæmd. Skoðun 8.6.2024 10:00
Fyrsta borgaraþing Reykjavíkur Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Fyrsta borgaraþing Reykjavíkur mun eiga sér stað í dag í Tjarnarsal Ráðhússins. Borgaraþing er nýr lýðræðisvettvangur og ein aðgerða fyrstu lýðræðisstefnu Reykjavíkur, en ég leiddi vinnu við gerð hennar á síðasta kjörtímabili og fagna því þessum tímamótum alveg sérstaklega. Skoðun 8.6.2024 09:30
Upplifun mín á því að taka þátt í Gefum íslensku séns Brynjar Björnsson skrifar Á þeim átta árum sem undirritaður hefur búið á Ísafirði hef ég kynnst nokkrum fjölda af erlendu fólki, oftast núverandi eða brautskráðum nemendum við Háskólasetur Vestfjarða, og lít ég á marga þeirra sem vini mína og kunningja. Samskiptamálið hefur verið og er áfram langoftast enska, þó að stundum sé látið reyna á fleiri mál og þá auðvitað með einhverjum tilraunum til að koma íslenskunni á framfæri, en alltaf hefur ensk tunga ráðið ríkjum í þessum samskiptum. Skoðun 8.6.2024 09:01
Við lok grunnskólans Atli Björnsson skrifar Nýlega útskrifaðist ég úr 10. bekk í grunnskóla í Reykjavík. Eftir 10 löng og ströng ár var þetta afar ánægjulegur áfangi. Gleði og tilhlökkun einkenndu þennan dag. Á sama tíma fylgdi þessum áfanga ákveðin sorg. Skoðun 8.6.2024 08:30
Afstaða fólks með fötlun til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Umræðan um dánaraðstoð kallar á víðtækt samtal ólíkra hópa samfélagsins. Einn hópur sem hefur lýst yfir áhyggjum af mögulegri lögleiðingu dánaraðstoðar er fólk með fötlun. Í þeim löndum þar sem dánaraðstoð er til umræðu hafa komið fram varnaðarorð frá hagsmunasamtökum fatlaðra. Skoðun 8.6.2024 08:01
Eru samfélagsmiðlar að setja heilbrigðiskerfi framtíðarinnar á hausinn? Guðrún Nanna Egilsdóttir og Dögg Guðmundsdóttir skrifa Gríðarlegt magn upplýsinga flæðir óhindrað inn í líf okkar í gegnum samfélagsmiðla daglega. Sjálfar erum við dyggir notendur samfélagsmiðla, en okkur þykir þó ástæða til að vekja athygli á hvaða áhrif þessar upplýsingar kunna að hafa á heilsu okkar, hversu berskjölduð við erum fyrir þeim og hversu áreiðanlegar þær eru. Skoðun 8.6.2024 08:01
Ísrael hefur ekki áhuga á vopnahléi – þjóðarmorð heldur áfram Sveinn Rúnar Hauksson skrifar Í dag eru liðin átta mánuðir frá því að síðasta og lang lengsta árásarhrina Ísraelshers gegn íbúum Gazastrandarinnar hófst. Þrátt fyrir kröfuna sem endurómar um allan heim og einnig innan veggja Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust og varanlegt vopnahlé, þá sýnir Ísraelsstjórn þess engin merki að hún hyggist láta af útrýmingarherferð sinni á Gaza. Skoðun 7.6.2024 22:00
Einhverf börn í almennu skólakerfi Sara Rós Kristinsdóttir skrifar Nú er skólaárið búið en við eigum engar myndir af barninu okkar í útskrift þar sem honum var vísað úr sínum heimaskóla í nóvember vegna þess hversu brösulega gekk og skólastjórn vildi ekki koma til móts við það sem hefði þurft að gera. Skoðun 7.6.2024 19:00
Þau sem hunsa helförina Birgir Rúnar Davíðsson skrifar „Gjörðir fólks í dag sýna okkur hvað sama fólk hefði gert á meðan á helförinni stóð.“ Þessi orð tók ég með mér frá fundi dr. Mads Gilbert í Hofi á Akureyri, en Mads er margverðlaunaður norskur læknir sem hefur lengi stutt Palestínumenn í baráttunni gegn þungvopnuðu hersetuliði Ísraels. Skoðun 7.6.2024 18:30
Meinsemdir á vinnumarkaði Bergvin Eyþórsson skrifar Útgáfa læknisvottorða hefur verið gerð að umfjöllunarefni í viðtali Vísis við þá félaga Fiskikónginn og svo framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda 5.júní síðastliðinn. Skoðun 7.6.2024 17:30
Takk, Kristinn Jón Kaldal skrifar Kristinn H. Gunnarsson, núverandi ritstjóri héraðsfréttamiðilsins BB, en sat áður á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið, Framsóknarflokkinn, Frjálslynda flokkinn og utan flokka á þingferli sínum, benti á ýmis ósómamál sem tengjast sjókvíaeldi á laxi í aðsendri grein hér á Vísi í vikunni. Þetta var þarft verk hjá Kristni en sá galli er á grein hans að heimildir fyrir sumu sem þar kemur fram hafa skolast aðeins til. Þar sem Kristinn, af kunnri hófstillingu sinni, nefnir nafn mitt í greininni er rétt og skylt að ég taki við keflinu og rifji upp bakgrunn þeirra mála sem hann nefnir. Skoðun 7.6.2024 17:01
Gleðilegt 2007! Reynir Böðvarsson skrifar Er stór hluti íslensku þjóðarinnar í einhverskonar draumheimi og þráir ekkert meir en að komast aftur í þann veruleika og hugsunarheim sem stundum er kallaður 2007. Þetta er jú bara algört 2007 er stundum sagt og allir vita við hvað er átt. Skoðun 7.6.2024 17:01
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun