Innlent
132 133 134 135 136 137 138 139 140 … 334 ›
Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Árið 2020 voru 52 karlmenn með erlent ríkisfang grunaðir um kynferðisbrot hér á landi. Tveimur árum síðar voru þeir eitt hundrað. Innlent 5.7.2024 14:01
Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fagnaði kosningasigri Verkamannaflokksins í Bretlandi með formanni flokksins, Keir Starmer. Kristrún segir Starmer meðvitaðan um uppgang Samfylkingarinnar á Íslandi. Innlent 5.7.2024 13:38
Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lætur Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins ekki eiga neitt inni hjá sér en í kröftugri svargrein um Mannréttindastofu segir hún Sigmund og þá Miðflokksmenn innilega ósamkvæma sjálfum sér. Innlent 5.7.2024 13:25
Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns. Innlent 5.7.2024 13:19
Skjálfti suðvestur af Reykjanestá Jarðskjálfti varð níutíu kílómetrum suðvestur af Reykjanestá um hádegisleytið í dag. Stærð skjálftans var 3,4 að stærð, en hann mældist klukkan 12:20. Innlent 5.7.2024 12:53
Vill gera smokkinn sexí aftur Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks. Innlent 5.7.2024 12:01
Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Ásta Halla Ólafsdóttir sér um tjaldstæðið á Hvolsvelli og þar getur gengið á ýmsu. Þannig lenti hún í einum í gær sem ekki er hægt að kalla annað en tjaldstæðadólg. Hann neitar að borga eftir skammir fyrir að kveikja í einnota grilli á túni og hótaði að bera út kjaftasögur um tjaldstæðið á netinu. Innlent 5.7.2024 11:55
Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni. Innlent 5.7.2024 11:45
Afhroð Íhaldsmanna og sexí smokkar Í hádegisfréttum fjöllum við um þingkosningarnar í Bretlandi sem urðu sögulega á margan hátt. Innlent 5.7.2024 11:36
Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Ökumaður mótorhjóls, sem hafnaði utanvegar við Gígjukvísl í gær, er á lífi en töluvert slasaður. Innlent 5.7.2024 11:35
Meirihluti sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu ekki svo mikill Rúmlega 55 prósent landsmanna vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun. Innlent 5.7.2024 11:22
Hafa áhyggjur af göngumanni á Skálafellsjökli Þyrla Landhelgisgæslunnar er farin í loftið með tvo björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu að grennslast eftir göngumanni á Skálafellsjökli í Vatnajökli. Innlent 5.7.2024 11:18
Tekið á símanotkun strætóbílstjóra með hörku Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir byggðasamlagið reglulega fá ábendingar um símanotkun bílstjóra. Tekið sé á símanotkuninni með hörku. Innlent 5.7.2024 11:13
Svindlsíður herja á landsmótsgesti Gestir á Landsmóti hestamanna hafa verið varaðir við nokkrum svindlsíðum á samfélagsmiðlum og aðallega Facebook sem hafa peninga af fólki með því að lofa beinu streymi af keppni Landsmótsins sem fer nú fram í Reykjavík. Innlent 5.7.2024 11:06
Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás og stórfelld brot í nánu sambandi, en meint brot mannsins beindust að unnustu hans. Honum er gefið að sök að hafa endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan hátt ógnað lífi og heilsu konunnar með andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum. Innlent 5.7.2024 09:40
Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Afbrotafræðingur segir fólk ekki eiga að vera hrætt við að vera afskiptasamt ef það telur annað fólk í hættu eða í þörf á aðstoð. Ábyrgðarþynning [e. bystander effect] geri það að verkum að fólk bregðist síður við. Innlent 5.7.2024 09:03
Skjálfta varð vart á höfuðborgarsvæðinu Klukkan 07:17 varð jarðskjálfti rétt vestan við Lambafell í Þrengslum í Svínahrauni af stærðinni 3,1. Innlent 5.7.2024 07:51
Allsgáður en ók niður ljósastaur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um að ljósastaur hefði verið ekinn niður í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Ökumaðurinn, sem reyndist hvorki ölvaður né undir áhrifum annarra efna, játaði að hafa ekið of hratt og misst stjórn á bifreiðinni. Innlent 5.7.2024 06:32
Stöðug fjölgun tilfella þar sem eggvopnum er beitt Líklegast er að egg- eða stunguvopnum sé beitt í þeim útköllum þar sem sérsveit er kölluð til vegna vopnaðs einstaklings. Á síðasta ári var eggvopnum beitt í 361 skipti eða 69 prósent tilfella og 64 prósent árið áður. Þá voru tilkynningar 274. Innlent 5.7.2024 06:22
Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Meira en tvö þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista á vef Ísland.is þar sem skorað er á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að grípa inn í svo Yazan Tamimi og fjölskyldu hans verða ekki vísað úr landi. Innlent 4.7.2024 22:44
Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands skilur ekki hvers vegna dómsmálaráðuneytið hefur ekki tekið skref í áttina að breytingu á lögum um veðmálastarfsemi. Það verði að bregðast við sem fyrst. Innlent 4.7.2024 22:29
Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Eigandi pípulagningafyrirtækisins Landslagna segir að gámur í eigu fyrirtækisins, sem staðsettur var á einkalóð þess, hafi verið fluttur út fyrir bæjarmörkin í dag án hans vitundar. Þar hafi pípulagningar- og hreinlætisvörum að andvirði tíu til fjórtán milljóna króna verið stolið úr gámnum. Eigandinn hyggst lögsækja flutningaþjónustuna. Innlent 4.7.2024 20:47
Syngjandi hundur í Mosfellsbæ Hundurinn Snjólfur í Mosfellsbæ er engin venjulegur hundur því það allra skemmtilegasta sem hann gerir er að syngja. Röddin brenglaðist reyndar aðeins í honum þegar hann var geldur á dögunum. Innlent 4.7.2024 20:04
Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Næstum hundrað og þrjátíu manns misstu vinnuna hjá fyrirtækinu Skaganum 3x, sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. Uppsagnirnar eru áfall fyrir Akranesbæ segir bæjarstjórinn en starfsmaður segir fréttirnar hafa komið flatt upp á sig þegar hann vaknaði í morgun. Innlent 4.7.2024 19:16
Mátti ekki pissa á starfsmann svo hann meig á glugga Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í dag tilkynnt um mann sem hótaði að pissa á starfsmann verslunar í miðbæ Reykjavíkur. Þegar manninum var vísað út meig hann á glugga verslunarinnar. Innlent 4.7.2024 18:51
Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Alvarlegt umferðarslys varð við Gígjukvísl á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður mótorhjóls féll af hjólinu og hafnaði utan vegar. Innlent 4.7.2024 18:31
Akranesbær í sárum eftir gjaldþrot eins stærsta vinnustaðarins Stálsmiður hjá Skaganum 3X á Akranesi segir þrot fyrirtækisins hafa legið í loftinu en nú sé óljóst hvað taki við. Yfir hundrað manns urðu atvinnulausir á einu bretti í bænum í dag. Bæjarstjóri segir það mikið áfall að missa svo stóran vinnustað. Við förum upp á Skaga í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 4.7.2024 18:14
Fimmtán mánaða skilorð fyrir vörslu barnaníðsefnis Karlmaður um fimmtugt var á dögunum dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa haft í vörslu sinni ljósmyndir og myndskeið sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt, og fyrir að hafa dreift slíku myndefni til ótilgreindra aðila í gegn um spjallhópa á netinu. Innlent 4.7.2024 18:04
Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Þjóðkirkjan er skaðabótaskyld gagnvart Kristni Jens Sigurþórssyni, fyrrverandi presti í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, en prestakallið var lagt niður árið 2019. Í kjölfarið bauð biskup Kristni að taka við nýju embætti sem hann þáði nokkru síðar, en svo tilkynnti Þjóðkrikjan að það boð hefði fallið niður. Innlent 4.7.2024 17:25
Tuttugu stéttarfélög skrifuðu undir kjarasamninga Samninganefnd sveitarfélaga skrifaði í gær undir nýja kjarasamninga við tuttugu stéttarfélög, annars vegar innan Starfsgreinasambands Íslands og hins vegar við þrjú stéttarfélög innan Alþýðusambandisns Innlent 4.7.2024 16:42