Innlent „
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 334 ›
„Sannleikurinn oft fyrsta fórnarlambið“ Talsmaður Heidelberg segir að fyrirtækið hafi nú þegar eytt á annan milljarð króna við undirbúning á mölunarverksmiðju í Ölfusi. Niðurstaða íbúakosningar um verkefnið sé vonbrigði. Sannleikurinn hafi verið fórnarlamb í aðdraganda hennar. Bæjarstjóri Ölfuss fagnar að niðurstaðan sé trúverðug. Innlent 10.12.2024 13:16
Evrópuþingmenn hvetja yfirvöld til að láta af hvalveiðum Alls hafa 36 þingmenn Evrópuþingsins og umhverfisaktívistar sent ríkisstjórn Íslands áskorun um að binda enda á hvalveiðar. Í bréfi hópsins til ríkisstjórnarinnar segir að ákvörðun starfsstjórnar í síðustu viku stríði gegn alþjóðlegum skuldbindingum og sérstaklega þeim sem hafi verið gerðar í Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Innlent 10.12.2024 13:06
„Mikilvægt fyrir dalinn að það sé komin ákvörðun“ Skóla- og frístundaráð Reyjavíkurborgar hefur tekið endanlega ákvörðun um framtíð skólamála í Laugarneshverfi, sem verður áfram eitt skólahverfi og reistur verður safnskóli fyrir elstu börnin. Formaður ráðsins segir gott að niðurstaða sé komin í málið. Innlent 10.12.2024 12:32
Kannabissérfræðingurinn kom að ræktun á öðrum sveitabæ Geir Elí Bjarnason hefur verið dæmdur til 27 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot með því að framleiða kannabisefni. Um er að ræða tvö mál, annars vegar kannabisræktun á sveitabænum Hjallanesi, sem er miðlægur í Saltdreifaramálinu svokallaða, og hins vegar kannabisræktun á öðrum sveitabæ. Fimm aðrir hafa hlotið dóm í síðara málinu. Innlent 10.12.2024 12:31
Lýsa eftir vitnum að meintri líkamsárás á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum hefur til rannsóknar meinta líkamsárás fyrir utan skemmtistaðin Edinborg í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina. Lögreglan biður möguleg vitni að árásinni að hafa samband við embættið. Innlent 10.12.2024 12:08
Hundarnir áttu ekki að vera saman Annar hundanna sem grunaðir eru um að hafa banað ketti í Laugardalnum gær er nú í vörslu Dýraþjónustu Reykjavíkur. Deildarstjóri þar segir hundana ekki hafa átt að vera á sama heimilinu. Málið sé nú til rannsóknar. Innlent 10.12.2024 12:03
Þrír hópar vinna að málefnum fyrir nýja ríkisstjórn Þrír vinnuhópar flokkanna þriggja sem reyna með sér stjórnarmyndun taka til starfa í dag og formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins halda sömuleiðis áfram að ræða málin. Innlent 10.12.2024 11:45
Stjórnarmyndun og árásargjarnir hundar í Laugardal Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um stjórnarmyndun þeirra þriggja flokka sem nú sitja í málefnahópum til þess að finna flöt á ríkisstjórnarsamstarfi. Innlent 10.12.2024 11:39
BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu BHM og BSRB segja stofnun stéttarfélagsins Virðingar ganga gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði og taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands á stofnun félagsins. Félagið er stofnað af atvinnurekendum í veitingarekstri, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT. Innlent 10.12.2024 11:19
Um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu ríkisins Í dag eru um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu afhendingarskyldra aðila ríkisins, þau voru 106.000 árið 2021. Umfangið hefur minnkað um 42 prósent. Helstu niðurstöður nýrrar eftirlitskönnunarinnar Þjóðskjalasafnsins eru að skjalavarsla og skjalastjórn ríkisins fari áfram batnandi. Í fyrsta skipti mælist fjórtán afhendingarskyldir aðilar á þroskastigi 4 sem væri skilgreint sem fyrirmyndar skjalavarsla og skjalastjórn. Innlent 10.12.2024 10:51
Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk Sex verslanir í dreifbýli fá úthlutað samtals sautján milljónum í verkefnastyrk frá hinu opinbera sem veittir eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022 til 2036. Innlent 10.12.2024 10:08
Gera kröfu um að varaaflsstöðin verði áfram í Vík Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í Vík segir sveitarfélagið gera kröfu um það að varaaflsstöðin sem nú er við Vík verði þar áfram í vetur svo hægt verði að tryggja að íbúar og gestir sveitarfélagsins hafi öruggt aðgengi að rafmagni. Innlent 10.12.2024 09:38
Landskjörstjórn kemur saman til fundar Landskjörstjórn kemur saman til fundar í dag klukkan ellefu til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar sem fóru fram þann 30. nóvember síðastliðinn. Innlent 10.12.2024 07:54
„Jákvæðari“ öskur en óttast var í fyrstu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti útkalli í gærkvöldi eða nótt þegar tilkynnt var um öskur konu koma frá íbúð. Reyndust öskrin vera „á heldur jákvæðari nótum en óttast var í fyrstu“ segir í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar án þess að það sé útskýrt nánar. Innlent 10.12.2024 06:21
Óttaðist um líf sitt Kona sem lýsir heimilisofbeldi af hálfu manns, sem nú situr í gæsluvarðhaldi, segir réttarkerfið og lögreglu hafa brugðist í baráttu við manninn. Til marks um það er höfnun á nálgunarbanni gagnvart honum, nokkrum klukkustundum áður en hann veittist að henni á lífshættulegan hátt. Hann losnar úr gæsluvarðhaldi eftir tvo sólarhringa. Innlent 9.12.2024 22:36
Ekin niður á skólalóðinni en ekki komin nægjanlega langt í náminu Tryggingafélagið VÍS, Vátryggingafélag Íslands, hefur verið sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfu konu sem fór fram á að félagið myndi greiða henni tæplega 6,5 milljónir króna, auk vaxta, vegna slyss sem hún varð fyrir. Konan vildi raunar fá tæplega ellefu milljónir, en hafði þegar fengið 4,6 milljónir greiddar. Innlent 9.12.2024 22:06
Heimiliskötturinn drepinn við kjallaratröppurnar Fólk í Langholtshverfi er varað við því í íbúahópi, að hundar gangi nú lausir og drepi ketti. Innlent 9.12.2024 21:49
Börnum fanga er hættara á að lenda í fangelsi Börn fanga eru líklegri en önnur börn að fara í fangelsi á fullorðins árum segir formaður Afstöðu, félags fanga. Nú erum um sextíu fangar á Litla Hrauni, allt karlmenn, en þar var verið að opna nýjan meðferðargang fyrir þá fanga, sem vilja vera vímuefnalausir í fangelsinu. Innlent 9.12.2024 20:07
Skírðu dóttur sína eftir ósk um frið í heimalandinu Sýrlenskur maður sem hefur búið hér á landi í sjö ár segir ólýsanlegan létti að grimmilegri valdatíð Bashar al-Assad Sýrlandsforseta sé loks lokið. Hann vonar innilega að friður komist nú á í heimalandi sínu og skírði af því tilefni nýfædda dóttur sína Salam sem þýðir friður. Innlent 9.12.2024 20:01
Rafmagnið datt aftur út í Vík og komst svo aftur í lag Uppúr klukkan sex í kvöld komst aftur á rafmagn í Vík og að Brekku í Mýrdal, og klukkan uppúr sjö náðist að koma rafmagni á frá Brekku að Ytri-Sólheimum. Innlent 9.12.2024 20:00
Heidelberg hvergi af baki dottið Þorsteinn Víglundsson talsmaður mölunarverksmiðjunnar Heidelberg segir niðurstöðu íbúakosningar i Ölfusi, um starfsleyfi fyrirtækisins vera vonbrigði. Fyrirtækið er aftur á móti hvergi af baki dottið og mun leita að öðrum stað til móbergsmölunar hér á landi. Innlent 9.12.2024 19:29
Vonar að ný stjórn verði komin fyrir jól Inga Sæland formaður Flokks fólksins er bjartsýn á að ný ríkisstjórn hennar flokks, Samfylkingar og Viðreisnar verði tekin við völdum fyrir jól. Vel hafi gengið í viðræðum og nokkur ágreiningsefni nú þegar verið leyst. Innlent 9.12.2024 19:20
Íbúar hafna mölunarverksmiðjunni með afgerandi hætti Íbúar í Ölfusi hafa með afgerandi hætti hafnað því að veita fyrirtækinu Heidelberg Matarials starfsleyfi í Þorlákshöfn. Oddvita minnihlutans er mjög létt, og bæjarstjóri fagnar því að niðurstaðan sé skýr. Innlent 9.12.2024 18:41
Ný ríkisstjórn fyrir jól? Inga Sæland formaður Flokks fólksins er bjartsýn á að ný ríkisstjórn hennar flokks, Samfylkingar og Viðreisnar verði tekin við völdum fyrir jól. Vel hafi gengið í viðræðum. Innlent 9.12.2024 18:11
Kærastinn fær áheyrn í Menningarnæturmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur þarf að taka fyrir skaðabótakröfu pilts í Menningarnæturmálinu svokallaða. Héraðsdómur hafði áður vísað kröfunni frá dómi, en Landsréttur hefur vísað málinu aftur í hérað. Innlent 9.12.2024 17:06
Ögurstund í Þorlákshöfn í kvöld Íbúakosningu í Ölfusi um hvort Heidelberg fái að byggja mölunarverksmiðju í Þorlákshöfn lauk formlega klukkan fjögur síðdegis. Íbúakosning hófst þann 25. nóvember en íbúum gafst þá einnig kostur á að greiða atkvæði um málið samhliða kosningum til Alþingis 30. nóvember. Innlent 9.12.2024 16:53
Laugarneshverfi verður áfram eitt skólahverfi Skóla- og frístundaráð hefur fallið frá hugmyndum sínum um að skipta Laugarneshverfi upp í nokkur skólahverfi. Þess í stað hefur verið ákveðið að hverfið verði enn eitt skólahverfi, að sett verði upp skólaþorp á meðan Laugarnesskóli er lagaður og að byggður verði nýr safnskóli fyrir elstu börnin. Innlent 9.12.2024 16:31
Ríkið þarf að endurgreiða borginni milljónir Hæstiréttur hefur fellt ákvarðanir Persónuverndar vegna notkunar Reykavíkurborgar á Seesaw-nemendakerfisins í grunnskólum borgarinnar úr gildi að hluta. Íslenska ríkið þarf að endurgreiða borginni fimm milljóna króna stjórnvaldssekt sem Persónuvernd lagði á hana. Innlent 9.12.2024 16:13
Tólf ára fangelsi fyrir manndráp á Akureyri Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir að verða sambýliskonu og barnsmóður sinni um fimmtugt að bana á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl. Innlent 9.12.2024 15:27
Ákærður fyrir að bana dóttur sinni Sigurður Fannar Þórsson hefur verið ákærður fyrir að ráða dóttur sinni bana í september. Innlent 9.12.2024 15:01