Fréttir
62 63 64 65 66 67 68 69 70 … 334 ›
Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Ökumaður sem lést þegar sendibifreið hafnaði utan Reykjanesbrautar við Innri-Njarðvík í nóvember árið 2023 var ekki í belti og varð að hluta undir bifreiðinni. Hann var undir áhrifum fíkniefna þegar hann lést. Innlent 7.10.2024 10:30
Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bandaríkjamennirnir Victor Ambros og Gary Ruvkun deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár fyrir uppgötvunina á svonefndu miRNA og hlutverki þeirra í genastjórnun eftir umritun. Þeir störfuðu báðir hjá Harvard-háskóla í Bandaríkjunum þegar þeir stunduðu rannsóknir sínar. Erlent 7.10.2024 09:40
Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Álíka margir eru hlynntir því að lögfesta svonefnda bókun 35 við EES-samninginn og eru henni andvígir í skoðanakönnun sem andstæðingar ESB-aðildar létu gera. Þegar aðeins er litið til þeirra sem taka einhvers konar afstöðu eru ívíð fleiri á móti en með. Innlent 7.10.2024 09:12
Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ekkert óvænt við samþykkt ályktunar á landsfundi Vinstri grænna um að ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að nálgast leiðarlok var. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor. Hún telur ekki ástæðu til að ræða ályktunina á fundi þingflokks Framsóknar. Innlent 7.10.2024 09:01
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 7.10.2024 09:01
Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Yfirvöld í Marseille á Frakklandi segja átök glæpahópa um fíkniefnamarkaðinn í borginni vera að ná til afar ungra einstaklinga, sem séu ráðnir af hópunum til að fremja ofbeldisbrot. Erlent 7.10.2024 07:43
Víða bjart og fallegt sunnan- og vestantil Lægð suður í hafi og víðáttumikil hæð yfir Grænlandi beina nú norðaustlægum vindum yfir landið, sums staðar strekkingi, en annars yfirleitt mun hægari. Veður 7.10.2024 07:10
Holan alls ekki eina slysagildran Íbúi við lóð þar sem tveggja ára drengur féll ofan í holu í Urriðaholti á föstudag segir margt mjög ábótavant í frágangi hjá byggingarverktakanum sem reisti húsið. Hún furðar sig á að ekki hafi verið gerð úttekt á lóðinni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 7.10.2024 07:05
Skipti öllu máli að telja drykkina Formaður Matthildarsamtaka um skaðaminnkun, segir áríðandi að tekist sé á við vímuefnanotkun í samfélaginu með raunsæi. Nýtt vettvangsteymi á vegum samtakanna veitti skaðaminnkunarþjónustu og sálrænan stuðning á tónlistarviðburðum í sumar. Innlent 7.10.2024 07:02
Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, segir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra hafa neitað skriflega að afhenda honum afrit af bréfum sem Guðlaugur Þór Þórðarson sendi ESA vegna bókunar 35. Innlent 7.10.2024 06:56
Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Nóttin virðist hafa verið fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þrír gistu fangaklefa í morgunsárið. Innlent 7.10.2024 06:33
Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29
Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Ekkert hefur heyrst til Esmail Qaani, yfirmanns Quds-sveitar íranska byltingarvarðarins, frá því að Ísraelar gerðu loftárásir á Beirút í síðustu viku. Erlent 6.10.2024 23:10
Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Þráinn Hafstein Kristjánsson, athafnamaður, tónlistarmaður og veitingastjóri, er látinn, 84 ára gamall. Hann lést 2. október síðastliðinn og verður jarðsettur þriðjudaginn 8. október í Steinbach í Manitoba. Innlent 6.10.2024 22:31
Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Auglýsing Sambíóanna hefur vakið athygli vegna fjölda fimm stjörnu dóma sem myndin Joker: Folie á Deux er sögð fá. Á síðum sem safna saman bíódómum hefur enginn gagnrýnandi gefið henni slíkan dóm. Rekstrarstjóri Sambíóanna veit ekki hvaðan stjörnurnar koma og gat ekki svarað fyrir auglýsinguna. Innlent 6.10.2024 21:32
Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Innlent 6.10.2024 21:28
Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Skjálfti af stærð 4,5 varð í Bárðarbunguöskju klukkan 17:56 í dag. Innlent 6.10.2024 20:42
„Hann hverfur ofan í jörðina“ Aðstandendur tveggja ára drengs sem datt ofan í meira en tveggja metra djúpa holu í gær segjast enn vera að jafna sig. Mikil heppni sé að drengurinn hafi ekki slasast og ljóst að aðbúnaður sé ekki samkvæmt lögum. Innlent 6.10.2024 19:27
Lýsa nóttinni sem skelfilegri Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Erlent 6.10.2024 18:50
Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Innlent 6.10.2024 18:03
Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Áhöfn Boeing 747-júmbóþotu Air Atlanta flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið í kvöld og var hún yfir borginni um klukkan 18:50. Flugvélin var að koma með 240 starfsmenn félagsins og maka frá Casablanca í Marokkó og lenti í Keflavík upp úr klukkan 19. Innlent 6.10.2024 17:50
„Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Dómsmálaráðherra fagnar því að umræða um drög hennar að breytingu á áfengislögum, sem myndi leyfa innlenda netverslun með áfengi, sé á þá leið að starfsemin verði frjálsari. Hún muni taka umsagnir og athugasemdir til greina áður en málið rati á borð ríkisstjórnar. Innlent 6.10.2024 17:16
Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Tillaga að ályktun um að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok var samþykkt á landsfundi Vinstri grænna fyrir skömmu. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor. Innlent 6.10.2024 14:50
Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Ragnheiður Kristínardóttir vísar orðum lögreglunnar á bug um að mótmælendur hafi gengið í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri í gær. Innlent 6.10.2024 14:23
Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ljósmóðir sem vann á sjúkrahúsi á Gasa í sumar og hefur í þrjátíu ár starfað sem sendifulltrúi Rauða krossins víða um heim segir aðstæðurnar á Gasa að mörgu leyti þær hættulegustu sem hún hefur starfað í. Hún upplifi minni virðingu fyrir störfum heilbrigðisstarfsfólks en áður fyrr. Erlent 6.10.2024 13:34
Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Nokkrir eru særðir og einn hið minnsta er látinn eftir skotárás á strætóstoppistöð í borginni Beersheba í Ísrael. BBC greinir frá þessu. Erlent 6.10.2024 13:10
Nóg af heitu vatni á Selfossi Selfyssingar hafa dottið í lukkupottinn þegar heitt vatn er annars vegar því mikið af heitu vatni hefur verið að finnast í nokkrum borholum í bæjarfélaginu. Vatnið kemur sér einstaklega vel þar sem íbúum fjölgar mjög hratt á Selfossi. Innlent 6.10.2024 13:07
Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár. Erlent 6.10.2024 12:23
Glerbrot í lauginni Stóra laugin í Sundlaug Seltjarnarness var lokuð í morgun afþví að glerbrot voru á botni hennar. Hún hefur þó verið opnuð á ný eftir tiltekt. Innlent 6.10.2024 12:15
„Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrstu ræðu Svandísar Svavarsdóttur sem formaður Vinstri grænna geta bent til þess að kosningar séu nær en marga gruni. VG hafi tekið efnislega ákvörðun um að halda stjórnarsamstarfinu ekki áfram, þrátt fyrir að óvíst sé hvenær kosið yrði. Innlent 6.10.2024 12:05