Fréttir
60 61 62 63 64 65 66 67 68 … 334 ›
Sigurður Ingi þögull um búsetuúrræðin Svandís Svavarsdóttir segir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hafi ekki látið í ljósi neinar mótbárur þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra talaði fyrir máli sem varðar lokuð búsetuúrræði hælisleitenda. Innlent 4.11.2024 16:02
Formaður Kyndils lést í slysinu við Tungufljót Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu. Maðurinn hét Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson en hann var formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ. Hann var 36 ára. Innlent 4.11.2024 14:55
Leituðu áfram undir ís vegna misræmis milli lista og leiðsögumanna Óvissa leiðsögumanna um hversu margir lentu undir ís þegar banaslys varð í Breiðamerkurjökli í sumar varð til þess að leit var haldið áfram þrátt fyrir að enginn hefði reynst þar undir. Skráningarlisti ferðaþjónustufyrirtækisins reyndist réttur. Innlent 4.11.2024 14:35
Yfirbuguðu konu með lítið barn og hníf í hendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikinn viðbúnað í Sólheimum í Reykjavík í hádeginu eftir að tilkynning barst um konu þar í miklu ójafnvægi fyrir utan hús við götuna. Innlent 4.11.2024 14:12
Sjálfstæðismenn vilja taka upp samræmd próf Meðal aðgerða í menntamálum sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti í dag er að taka upp samræmd próf í grunnskólum á ný. Markmiðið með aðgerðunum er einfalt, að allir nemendur eigi að geta lesið og skilið texta við hæfi eftir yngsta stig grunnskólans í stað þess að stór hluti ráði ekki við það. Innlent 4.11.2024 12:40
Sjónum beint til vinstri í kosningapallborðinu Forystukonur hjá Vinstri grænum, Sósíalistum og Pírötum mæta í beina útsendingu í kosningapallborð fréttastofunnar klukkan 14. Innlent 4.11.2024 12:15
Ríkið þrýsti læknum út í harðari verkfallsaðgerðir Formaður Læknafélags Íslands segir ríkið þrýsta læknum út í harðari verkfallsaðgerðir en lagt var upp með, með því að lýsa því yfir að boðaðar aðgerðir séu ólöglegar. Stefnt er að því að hefja nýja atkvæðagreiðslu um verkföll lækna í dag, sem myndu hefjast seint í nóvember. Innlent 4.11.2024 11:44
Aukaþingmaður leikur enn lausum hala Prófessor í stjórnmálafræði segir hneyksli að enn einu sinni hafi Alþingi trassað að gera augljósar breytingar á kosningalögum til að tryggja að flokkar fái þingmenn í samræmi við atkvæðafjölda. Starfandi forsætisráðherra segir ekki hægt að gera þessar breytingar svo skömmu fyrir kosningar. Innlent 4.11.2024 11:38
Baráttan í Bandaríkjunum á lokametrunum Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um bandarísku forsetakosningarnar sem haldnar verða á morgun. Innlent 4.11.2024 11:36
„Já, maður! Að sjálfsögðu vinnur hann þetta!“ Þeir stuðningsmenn Kamölu Harris og Donald Trump sem ég hef rætt við síðustu daga eiga þrennt sameiginlegt; þeim er umhugað um fjölskyldur sínar, eru sannfærðir um að sinn kandídat vinni og hugsa til þess með hryllingi að andstæðingurinn komist til valda. Erlent 4.11.2024 11:26
Evrópusamstarf verður að Evrópuvandamáli Svið rússneska utanríkisráðuneytisins sem fer með samskipti við Evrópusambandið og NATO verður ekki lengur kennt við Evrópusamstarf heldur „Evrópuvandamál“. Talskona ráðuneytisins segir nafnbreytinguna endurspegla breytingar í stöðu alþjóðamála. Erlent 4.11.2024 11:07
Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna suðaustan hvassviðris eða storms á morgun. Veður 4.11.2024 10:52
Málið komið á „endastöð“ og rannsókn lokið Rannsókn lögreglu á falsboði sem þeim barst í sumar, þegar tilkynnt var um að tveir ferðamenn væru fasti í helli, er nú lokið og er málið óupplýst. Lögreglan ræddi við nokkra einstaklinga í Bretlandi í tengslum við rannsókn málsins. Innlent 4.11.2024 10:33
Forseti Moldóvu hélt velli þrátt fyrir ásakanir um rússnesk afskipti Maia Sandu, forseti Moldóvu, náði endurkjöri í seinni umferð forsetakosninga sem fóru fram í skugga ásakana um stórfelld afskipti stjórnvalda í Kreml. Hún lýsir úrslitunum sem sigri landið. Erlent 4.11.2024 10:23
Bergþór hæðist að Bjarna og Sigurði Inga Bergþór Ólason þingflokksformaður Miðflokksins hæðist að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra, formönnum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, í pistli í Morgunblaðinu í dag. Innlent 4.11.2024 10:08
Enginn stjórnmálamaður á loftslagsráðstefnu Í hátt í fimmtíu manna sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnu í Aserbaídsjan verður enginn kjörinn fulltrúi, hvorki ráðherra, þingmaður né sveitarstjórnarmaður. Ráðstefnunni lýkur átta dögum fyrir alþingiskosningar. Innlent 4.11.2024 09:17
„Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg” Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ómannúðlegt að vista hælisleitendur sem hafa fengið endanlega synjun um vernd hér á landi í fangelsi. Á þessu ári hafi 40 einstaklingar verið vistaðir í fangelsi í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Innlent 4.11.2024 08:40
Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur. Innlent 4.11.2024 08:33
Dregur smám saman úr vindi og úrkomu Hæðarhryggur fer austur yfir landið í dag og dregur smám saman úr vindi og úrkomu. Veður 4.11.2024 07:12
Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup Viðbragð Veðurstofunnar var virkjað í stuttan tíma í nótt vegna mögulegs kvikuhlaups. Almannavörnum var tilkynnt um málið. Um hálftíma síðar var þó komið í ljós að ekki var um kvikuhlaup að ræða. Nokkuð þétt skjálftavirkni var á milli tvö og þrjú við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell. Innlent 4.11.2024 07:08
Á lokametrunum í kosningabaráttu Forsetaframbjóðendurnir bandarísku, þau Kamala Harris og Donald Trump eru nú á lokametrunum í kosningabaráttu sinni en á morgun ganga Bandaríkjamenn að kjörborðinu. Í gær þeyttust þau á milli sveifluríkjanna svokölluðu og komu fram á fjölmörgum viðburðum. Erlent 4.11.2024 06:48
Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið Móðir barns á leikskólanum Drafnarsteini segir erfitt að réttlæta verkfallsaðgerðir kennara í leikskólum sem nú standa yfir. Ótímabundin verkföll eru í fjórum leikskólum. Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir segir í aðsendri grein á Vísi að aðgerðirnar séu mismunun og að betra væri fyrir kennara að leggja niður störf á fleiri stöðum til að ná fram kröfum sínum. Innlent 4.11.2024 06:28
Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar. Innlent 3.11.2024 22:51
Selur íbúð sem hann gerði upp og flytur í ódýrari íbúð Nýbúi frá Moldóvu hyggst selja íbúð sem hann hefur verið að gera upp síðastliðið eitt og hálft ár eins síns liðs og flytja í minni og ódýrari íbúð hinu megin við götuna. Ástæðuna segir hann vera til að borga niður lánið sitt og verða skuldlaus. Innlent 3.11.2024 22:24
Banaslys við Tungufljót Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi. Innlent 3.11.2024 20:42
Íbúum fjölgar og fjölgar í Fjallabyggð Íbúum Fjallabyggðar fjölgar og fjölgar enda mikil uppbygging í sveitarfélaginu því víða er verið að byggja og atvinnuástand er með allra besta móti. Ef eitthvað er, þá vantar fólk í hin ýmsu störf og nóg af húsnæði er fyrir alla. Innlent 3.11.2024 20:06
E. coli-sýking á Mánagarði: „Hræðilegt að horfa upp á barnið svona veikt“ Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur á spítala vegna E. coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E. coli-sýkingu. Innlent 3.11.2024 20:03
Repúblikanar önugir yfir óvæntu atriði Harris í SNL Kamala Harris mælist með óvænt forskot á Donald Trump í ríki sem hann hefur hingað til unnið örugglega í forsetakosningum. Sagnfræðingur og fyrrverandi diplómati í Bandaríkjunum telur að úrslit kosninganna gætu sveiflast afgerandi í aðra hvora áttina. Óvænt atriði með Harris í skemmtiþætti hefur reitt repúblikana til reiði. Erlent 3.11.2024 20:02
„Dæmi um hvernig rafræn skilríki geta verið útilokandi“ Skrifstofustjóri Sósíalistaflokksins segir að frambjóðendurnir þrír sem fengu framboð sín á lista flokksins ógild hafi lagt sig alla fram við að skila inn staðfestingu á samþykki með lögmætum hætti. Knappur tími og tæknileg vandræði hafi valdið því að samþykki þeirra fékkst ekki staðfest. Innlent 3.11.2024 19:23
Fara með Intuens-málið fyrir dómstóla sem gæti reynst afdrifaríkt Sjúkratryggingar Íslands hyggjast fara með niðurstöðu nýs úrskurðar, þar sem lögð var fjörutíu milljóna sekt á stofnunina vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, fyrir dómstóla. Forstjóri stofnunarinnar segir að málið gæti reynst afdrifaríkt. Hann hafnar ásökunum um mismunun. Innlent 3.11.2024 19:03