Fréttir
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 334 ›
Lýsa eftir sautján ára dreng Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Fadi S.M. Bahar, 17 ára, að beiðni barnaverndaryfirvalda. Innlent 11.4.2024 15:57
Lausnargjaldið ógreitt en gögnin hvergi að sjá Háskólinn í Reykjavík hefur enn ekki greitt lausnargjald fyrir gögn sem stolið var af rússneskum hakkarahópi í byrjun árs. Þrátt fyrir það hafa gögnin ekki verið birt. Lektor í tölvunarfræði segir þetta óvenjulegt fyrir hópinn en fleiri íslensk fyrirtæki hafi lent í því sama. Innlent 11.4.2024 15:01
Engin krafa með undirskriftalistanum önnur en að stjórnvöld líti í eigin barm Kona sem stofnaði undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni á ekki von á því að listinn muni knýja fram kosningar eða afsögn nýs forsætisráðherra, en hann sé haldbær heimild um hversu lítils trausts hann njóti meðal almennings. Yfir þrjátíu og þrjú þúsund Íslendingar hafa nú skrifað undir. Innlent 11.4.2024 15:01
OJ Simpson er látinn OJ Simpson, eða Orenthal James Simpson, er látinn, eftir nokkurra ára baráttu við krabbamein. Hann var 76 ára gamall en fjölskylda hans segir hann hafa látist í gær umkringdur börnum sínum og barnabörnum. Erlent 11.4.2024 14:49
Netárásir geti sett fjármálakerfið á hliðina Netógnin er stærsta áhættan í íslensku fjármálakerfi í dag og sá þáttur sem gæti sett það á hliðina, að mati varaseðlabankastjóra. Hann segir nauðsynlegt að auka samhæfingu og efla varnir þar sem gervigreind sé að skala upp getu netþrjóta. Innlent 11.4.2024 13:14
Upplifir stjórnleysi í málefnum Grindvíkinga Um tvö hundruð manns með lögheimili í Grindavík búa nú í Vogum án lögbundinna réttinda og þjónustu. Bæjarstjóri Voga segir innviði bæjarins að þolmörkum komna og stutt í að neyðst verði til að grípa til aðgerða sem enginn vilji grípa til. Innlent 11.4.2024 13:00
Atvinnurekendur sligi kerfið með kröfum um vottorð Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að í heilbrigðiskerfinu fari allt of mikill tími í skriffinnsku og alltof lítill tími í að sinna sjúklingum. Innlent 11.4.2024 12:49
Varhugavert að saka fólk um glæp sem hafi unnið í góðri trú Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega. Innlent 11.4.2024 12:25
Ætla að fæla barnaníðing úr sundlauginni Skólastjórinn í Dalskóla í Úlfarsárdal hefur varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitar í Dalslaug á skólatíma. Hann spjalli reglulega við drengi í skólasundi. Allt kapp verði lagt á að fæla manninn frá sundlauginni. Innlent 11.4.2024 12:19
„Sláturhúsin standa tóm svo mánuðum skiptir“ Nýr forsætisráðherra svaraði því ekki beint hvort hann hygðist bregðast við harðri gagnrýni, meðal annars frá matvælaráðuneytinu, á vinnubrögð í tengslum við breytingar á búvörulögum en bætti við að spyrja mætti hvort eðlilegar framfarir hefðu átt sér stað hjá afurðarstöðvunum með gamla fyrirkomulaginu. Innlent 11.4.2024 12:11
Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52
Búvörulögin áfram þrætuepli á þingi Í hádegisfréttum fjöllum við um búvörulögin umdeildu en þau voru til umræðu á Alþingi í morgun. Innlent 11.4.2024 11:40
Uppljóstrar um hálfrar aldar gamalt framhjáhald fyrrum forsætisráðherra 96 ára gamall maður að nafni Joe Haines, sem starfaði um árabil sem fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis Bretlands, hefur nú opinberað framhjáhald Harolds Wilson fyrrum forsætisráðherra Breta. Að sögn Haines hélt ráðherrann við Janet Hewlett-Davies, sem var aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í Downingstræti 10, og var 22 árum yngri en Wilson. Þau voru bæði gift. Erlent 11.4.2024 11:07
Sjá peningana úr Hamraborg ekki í umferð Enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þjófnaði á tugum milljóna króna í reiðufé í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðnum. Innlent 11.4.2024 11:01
Bjarkey í bobba vegna umdeildra laga Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög. Innlent 11.4.2024 10:52
Ekki sjálfgefið að framhald yrði á stjórnarsamstarfinu „Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“ Innlent 11.4.2024 10:52
Dæmd til dauða í stærsta fjársvikamáli Víetnam Víetnamskur auðjöfur hefur verið dæmdur til dauða fyrir hlut hennar í umfangsmesta fjársvikamáli landsins. Truong My Lan hefur verið fundin sek um fjárdrátt, fjár- og bankasvik og mútugreiðslur. Erlent 11.4.2024 10:16
Mál kvenna vegna líkamsleitar í kjölfar barnsfundar fellt niður Alríkisdómstóll í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður mál fimm kvenna gegn Qatar Airways, vegna líkamsleitar sem þær voru látnar sæta. Erlent 11.4.2024 08:43
Hvöss austanátt syðst á landinu Gert er ráð fyrir hvassri austanátt syðst á landinu í dag , en talsvert hægari vindi annars staðar. Einnig verður úrkoma um mest allt land, snjókoma fyrir norðan en rigning eða slydda sunnan heiða. Veður 11.4.2024 07:33
Heitavatnslaust í Grafarvogi Ekkert heitt vatn er í boði fyrir suma íbúa Grafarvogs eins og stendur og virðist sem stór lögn hafi farið í sundur. Innlent 11.4.2024 07:27
Biden segist vera að íhuga að falla frá málinu gegn Assange Joe Biden Bandaríkjaforseti staðfesti í gær að yfirvöld vestanhafs væru að íhuga að verða við beiðni stjórnvalda í Ástralíu um að fella niður ákærur á hendur Julian Assange. Erlent 11.4.2024 07:24
Tveir greindust með kíghósta í síðustu viku Tveir einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu greindust með kíghósta í síðustu viku en um er að ræða fyrstu tilfellin frá árinu 2019. Útbreiðsla sjúkdómsins í heiminum hefur farið vaxandi síðustu 20 ár. Innlent 11.4.2024 06:50
Þrjátíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun. Innlent 11.4.2024 06:37
Kosning til biskups Íslands hefst á hádegi í dag Kosning til biskups Íslands hefst klukkan 12 í dag og stendur til klukkan 12 þann 16. apríl. Innlent 11.4.2024 06:19
Fjárhagurinn eigi að ganga fyrir ferðum til Tenerife Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir mjög algengt að pör séu ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að fjármálum og að rannsóknir sýni að fleiri sambönd fari á hliðina út af fjármálum en framhjáhaldi. Einnig séu ofnotkun snjalltækja og tengslaleysi milli fjölskyldumeðlima vaxandi vandamál. Innlent 11.4.2024 00:23
Í steininn fyrir að stela dagbók dóttur Bandaríkjaforseta Dómari í New York-ríki Bandaríkjanna hefur dæmt konu, Aimee Harris, í mánaðar fangelsi fyrir að stela dagbók og öðrum persónulegum munum í eigu Ashley Biden, dóttur Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erlent 10.4.2024 22:32
Júlíus Viggó endurkjörinn formaður Heimdallar Júlíus Viggó Ólafsson var í kvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík á aðalfundi félagsins í Valhöll. Hvorki bárust mótframboð í embætti formanns eða stjórnar og töldust því allir frambjóðendur sjálfkjörnir. Innlent 10.4.2024 22:27
Handtekin í gær og les Bjarna pistilinn í dag Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi. Innlent 10.4.2024 22:10
Rottan dreifi sér og sæki í gullnámuna Eitt óvinsælasta dýr landsins, rottan, hefur dreift sér töluvert á höfuðborgarsvæðinu og sést á fleiri stöðum en áður. Þetta segir meindýraeyðir sem telur lífrænu sorptunnurnar meðal sökudólga. Innlent 10.4.2024 20:40
Segir ríkisstjórn Bjarna „nýtt hræðslubandalag“ Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum. Innlent 10.4.2024 20:01