Fréttir
107 108 109 110 111 112 113 114 115 … 334 ›
Undrandi að enn séu seldar íshellaferðir Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segir það koma sér á óvart að enn sé verið að selja ferðir í íshella, eftir slysið í íshellinum á Breiðamerkurjökli í síðasta mánuði. Hann spurði á ríkisstjórnarfundi í morgun hvort ástæða væri til að stöðva slíkar ferðir að sumarlagi. Innlent 3.9.2024 13:55
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Tæki marga mánuði fyrir hraun að ná innviðum Engir innviðir eru í hættu á Reykjanesskaga miðað við hraða hraunflæðis. Fastjóri aflögunar hjá Veðurstofu Íslands segir að innflæði í kvikuhólfið undir Svartsengi sé jafn mikið og flæðir úr í eldgosinu. Hættumat verður uppfært síðar í dag. Innlent 3.9.2024 12:52
Mál tveggja áfengisnetverslana komin á borð ákærusviðs Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kærum á hendur tveimur netverslunum sem selja áfengi er lokið. Mál þeirra eru nú á borði ákærusviðs embættisins. Innlent 3.9.2024 12:41
„Við erum búin að sitja í ríkisstjórn þar sem við höfum gefið ýmislegt eftir“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir flokkinn þurfa að leita í ræturnar. Óánægju kjósenda megi meðal annars rekja til þess að flokkurinn hafi þurft að lúffa í ýmsum málaflokkum í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi. Innlent 3.9.2024 12:36
Fjörutíu og sjö fallnir og rúmlega tvö hundruð særðir í skotflaugaárás Að minnsta kosti 47 féllu og 206 eru særðir eftir að tvær skotflaugar hæfðu skóla, þar sem nýir hermenn fá þjálfun, og sjúkrahús í Poltava í Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir marga hafa lent undir braki húsa sem skemmdust í árásinni. Erlent 3.9.2024 11:54
Segja kílómetragjald koma illa niður á tækjulægri hópum Í hádegisfréttum verður rætt við sérfræðing hjá ASÍ sem gagnrýnir fyrirhugað kílómetragjald á alla bíla harðlega. Innlent 3.9.2024 11:40
Rúmlega hundrað köfnuðu eða krömdust við flóttatilraun Yfirvöld í Austur-Kongó segja að minnst 129 fangar hafi látið lífið við að reyna að strjúka úr fangelsi í Kinshasa, höfuðborg landsins, á aðfaranótt sunnudags. Minnst 59 eru sagðir slasaðir og segjast yfirvöld hafa náð tökum á ástandinu. Erlent 3.9.2024 11:22
Bein útsending: EES og innri markaðurinn Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið halda í dag opinn fund um stöðu og hörfur EES og innri markaðarins. Um þessar mundir á EES-samningurinn, sem tengir Ísland við innri markað Evrópusambandsins , þrjátíu ára afmæli. Innlent 3.9.2024 11:03
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Innlent 3.9.2024 10:58
Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum. Innlent 3.9.2024 10:35
Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár. Erlent 3.9.2024 10:22
Tæplega þrjátíu missa vinnuna á Vestfjörðum Tæplega þrjátíu starfsmönnum Vestfirskra verktaka var sagt upp störfum á föstudaginn. Framkvæmdastjóri segir verkefnastöðu ekki nógu góða auk þess sem eigendurnir ætli hvort í sína áttina. Innlent 3.9.2024 10:00
Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Innlent 3.9.2024 09:49
Vill rétta Musk niðurskurðarhnífinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, er sagður hafa um nokkuð skeið rætt við ráðgjafa sína um að skipa auðjöfra og þekkta forstjóra í starfshóp sem finna á leiðir til niðurskurðar hjá alríkisstjórn Bandaríkjanna. Elon Musk, einn auðugasti maður heims, er meðal þeirra sem gæti setið í starfshópnum og hefur hann lýst því yfir að hann sé tilbúinn til starfa. Erlent 3.9.2024 09:35
Í lífshættu sextán ára en hefur öðlast nýtt líf með þyngdarstjórnunarlyfjum Sveinn Rúnar Sveinsson er með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm. Sextán ára gamall var hann orðinn 140 kíló og fékk að heyra að ef hann héldi áfram á sömu braut myndi hann ekki lifa fram á fullorðinsár. Stuttu seinna byrjaði hann á þyngdarstjórnunarlyfinu Saxenda. Innlent 3.9.2024 08:59
Handtökuskipun á mótframbjóðanda Maduro gefin út Dómari í Venesúela gaf út handtökuskipun á hendur forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar í gær. Leiðtogum hennar hefur ítrekað verið hótað fangelsun eftir umdeildar forsetakosningar í sumar. Erlent 3.9.2024 08:49
Frans páfi á faraldsfæti Frans páfi mætti í morgun til Jakarta, höfuðborgar Indónesíu en hann mun næstu daga heimsækja fjölmörg ríki við á og við Kyrrahafið. Erlent 3.9.2024 07:57
Nýsjálendingar þrefalda ferðamannagjaldið Ríkisstjórn Nýja-Sjálands hefur ákveðið að þrefalda gjald sem ferðamenn þurfa að greiða við komu til landsins. Gjaldið fer úr 35 nýsjálenskum dölum í hundrað, sem jafngildir um þrjú þúsund íslenskum krónum í tæpar níu þúsund krónur. Erlent 3.9.2024 07:48
Mongólía hunsar handtökuskipun Alþjóðlega sakamáladómstólsins Stjórnvöld í Mongólíu hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að bjóða Vladimir Pútín Rússlandsforseta velkominn til landsins með heiðursverði, í stað þess að handtaka hann. Erlent 3.9.2024 07:33
Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Útlit er fyrir norðvestanátt á landinu í dag með vindhraða víða á bilinu fimm til tíu metra á sekúndu. Norðantil má búast við dálítilli vætu fram eftir degi en sunnan Heiða ætti að létta til og því bjartur dagur í vændum á þeim slóðum með allt að sextán stiga hita þegar best lætur syðst á landinu. Veður 3.9.2024 07:12
Jöklafræðingur heiðursfélagi í Alþjóðasambandi stjarnfræðinga Íslenskur jöklafræðingur sem helgar stóran hluta frítíma síns athugunum á næturhimninum var gerður heiðursfélagi í Alþjóðasambandi stjarnfræðinga í síðasta mánuði. Hann segir vægi áhugastjarnfræðinga sífellt að aukast. Innlent 3.9.2024 07:01
„Það er enginn öryggisventill þarna, það bremsar þetta ekkert af“ Einstaka veiðifélög íhuga alvarlega að leita réttar síns vegna þess tjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir sem rekja megi til umhverfismengunar frá fiskeldi. Þá gagnrýna Landssamtök veiðifélaga stjórnvöld, einkum Matvælastofnun, fyrir að beita ekki þeim heimildum sem stofnunin hafi samkvæmt lögum til að áminna fiskeldisfyrirtæki eða svipta þau starfsleyfi í þeim tilfellum sem við gæti átt. Formaður landssamtakanna segir svör stjórnvalda ekki upp á marga fiska. Innlent 3.9.2024 07:01
Bretar afturkalla sum leyfi fyrir vopnaútflutningi til Ísrael Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa ákveðið að afturkalla heimildir til vopnaútflutnings til Ísrael, vegna hættunnar á því að vopnin verði notuð við brot á alþjóðalögum. Erlent 3.9.2024 06:26
Tvö börn flutt á spítala eftir að hafa neytt kannabis-gúmmíbangsa Tvö börn voru flutt á Barnaspítalann Hringsins í gær eftir að í ljós kom að þau höfðu borðað gúmmíbangsa sem innihéldu THC, tetrahýdrókannabínól, sem unnið er úr kannabisplöntunni. Innlent 3.9.2024 06:06
Bað ísraelsku þjóðina afsökunar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels baðst afsökunar á að hafa ekki beitt sér nægilega fyrir lausn gísla í haldi Hamas á blaðamannafundi fyrr í kvöld. Erlent 3.9.2024 00:19
Æfðu viðbragð eftir stórt brunaslys með Bandaríkjaher Viðbragðsaðilar á Íslandi ásamt Bandaríkjaher æfðu í dag viðbragð við því ef fjöldi fólks fengi alvarleg brunasár á sama tíma. Æfingin gekk vel að sögn þátttakenda sem margir hverjir brugðu sér í gervi sjúklinga. Innlent 2.9.2024 23:02
Skjálftavirkni minnkað við kvikuganginn Virkni í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni hefur haldist óbreytt síðastliðinn sólarhring en tólf dagar eru síðan gosið hófst. Sem fyrr er of snemmt að segja til um hvort landris sé hafið að nýju á Reykjanesskaga. Innlent 2.9.2024 22:34
„Við þurfum að læra af öðrum þjóðum“ Hlynur Snorrason, formaður félags yfirlögregluþjóna, segir það ekki of seint að bregðast við ógnvænlegri þróun þar sem ungmenni beita vopnum í auknum mæli og að allt samfélagið þurfi að leggjast á eitt til að sporna gegn þessu. Mikilvægt sé að draga lærdóm frá öðrum þjóðum. Innlent 2.9.2024 22:03
Geimvísindastofnun Íslands stóð fyrir fundi í Grósku Opinn fundur Alþjóðlega vinnuhópsins um kannanir reikistjörnunnar Mars (IMEWG) fór fram í Grósku í kvöld. IMEWG kom saman hér á landi í boði Geimvísindastofnun Íslands en þetta er í fyrsta sinn sem fundurinn er opinn almenningi. Innlent 2.9.2024 21:49