Sjávarútvegur
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 68 ›
Skipið leggur úr höfn Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt hefur lagt úr höfn í Vestmannaeyjum á leið sinni til Rotterdam. Farbanns er krafist yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Innlent 17.5.2024 15:23
Fara fram á farbann Mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt verða leiddir fyrir dómara í hádeginu. Lögreglan á Suðurnesjum fer fram á að mennirnir verði úrskurðaðir í farbann, en ekki gæsluvarðhald. Rannsókn málsins er tvíþætt, annarsvegar á tildrögum slyssins og þess sem gerðist eftir á. Innlent 17.5.2024 11:33
Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ. Innlent 17.5.2024 09:38
Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir málsatvik úti fyrir Garðskagavita í nótt að skýrast. Skipstjóri og stýrimaður muni dvelja í fangelsi til morguns hið minnsta. Þeir voru um borð í fraktskipi sem sigldi á fiskibát með þeim afleiðingum að sjómaður lenti í lífsháska. Innlent 16.5.2024 21:45
Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Skipstjóri skipsins Longdawn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í nótt. Allt bendir til þess að fraktskipið hafi rekist í strandveiðibát manns sem lenti í sjónum en var naumlega bjargað. Auk skipstjórans eru tveir stýrimenn í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 16:16
Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“ Innlent 16.5.2024 14:18
Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs. Innlent 16.5.2024 11:42
Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum. Innlent 16.5.2024 06:23
Versta kerfi í heimi? SFS hélt á dögunum ársfund undir yfirskriftinni „Best í heimi”. Einn besti og vinsælasti forsætisráðherra heimsins, Bjarni Benediktsson, flutti ræðu þar sem hann fullyrti að íslenskur sjávarútvegur væri sá allra besti í heimi. Skoðun 14.5.2024 07:31
Verðmetur Síldarvinnsluna yfir markaðsvirði í fyrsta skipti í 30 mánuði Í fyrsta skipti í þrjátíu mánuði er verðmatsgengi hlutabréfagreinanda fyrir ofan markaðsgengi Síldarvinnslunnar. „Hvort það endurspegli stöðuna á markaðnum eða hvort Jakobsson Capital sé mun bjartsýnna á slorið en markaðurinn er erfitt að segja. Óvissan er mikil en sveiflur markaðarins eru oft eins og sveiflur í loðnugöngum,“ segir í nýju verðmati en gert ráð fyrir því að rekstrarhagnaður útgerðarinnar verði orðinn hærri 2026 en hann var „metárið 2023.“ Innherji 13.5.2024 12:43
Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Samherji fiskeldi segir að óverulegt magn seiða hafi sloppið úr landeldisstöð þess í Núpsmýri í Öxarfirði. Félagið hafi stundað landeldi í 25 ár án þess að óhöpp sem þetta eigi sér stað. Innlent 10.5.2024 13:41
„Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Kynningarfundur um lagareldisfrumvarpið hefði getað verið tölvupóstur að mati framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga því hvorki hafi verið boðið upp á spurningar né samtal. Hann segir frumvarpið ekki veita villtum laxastofnum næga vernd og að banna þurfi eldi á frjóum norskum laxi. Innlent 8.5.2024 19:33
Sækja veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft fyrir skömmu til þess að sækja veikan sjómann. Sjómaðurinn er á fiskiskipi suðvestur af Malarrifi á Snæfellsnesi. Innlent 8.5.2024 19:03
Leki kom að bát út af Barða Leki kom að strandveiðibát sem var við veiðar út af Barða á Vestfjörðum. Björgunarbáturinn Stella frá Flateyri er á svæðinu en annar bátur í nágrenninu tók strandveiðibátinn í tog. Innlent 8.5.2024 11:40
Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun kynna frumvarp til laga um lagareldi á opnum fundi í sem hefst klukkan 11. Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá fundinum í beinni útsendingu í spilaranum að neðan. Innlent 8.5.2024 10:01
Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Björgunarbátar af suðvesturhorninu drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna á Faxaflóa til hafnar í gærkvöldi. Þokkalegt veður var og ekkert amaði að áhöfn bátsins. Innlent 8.5.2024 09:03
Kallar eftir útlistun aðgerða hvernig eigi að sporna við minni framleiðnivexti Það er „ánægjulegt“ að stjórnvöld áformi að bregðast við minnkandi vexti í framleiðni vinnuafls á undanförnum árum, sem hefur neikvæð áhrif á sjálfbærni opinberra fjármála, með því að setja meiri áherslu á þær atvinnugreinar sem skila hærri framleiðni, að sögn Fjármálaráðs. Í nýrri fjármálaáætlun er hins vegar sagður vera skortur á útlistun aðgerða hvernig eigi að ná því markmiði en hagvöxtur á Íslandi virðist um nokkurt skeið einkum hafa verið drifin áfram af fjölgun starfsfólks í þeim greinum sem greiða að jafnaði lægri laun en almennt þekkist. Innherji 4.5.2024 11:33
„Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Birna Einarsdóttir athafnakona og stjórnarformaður Iceland seafood skaut föstum skotum að Snorra Mássyni fjölmiðlamanni á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem nú fer fram í Silfurbergi í Hörpu. Þar stýrði Snorri pallborðsumræðum. Lífið 3.5.2024 15:02
Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Ársfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fer fram í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 13 og 15. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er „Best í heimi?“, en hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 3.5.2024 12:31
Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Matvælaráðherra vonar að sátt geti skapast um frumvarp hennar um lagareldi með því að gera rekstrarleyfi fyrirtækja í sjókvíaeldi tímabundin. Frumvarpið feli í sér stórfelldar úrbætur í umhverfisvernd; reglur verði skýrari og eftirlit meira. Innlent 30.4.2024 11:34
Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Öll stéttarfélög sjómanna á Íslandi hafa samþykkt kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Innlent 29.4.2024 19:34
Komu litlum fiskibáti til bjargar Lítill fiskibátur missti vélarafl í mynni Seyðisfjarðar í hádeginu í dag og rak hægt til suðurs. Björgunarskipið Hafbjörg í Neskaupstað var kallað út vegna málsins. Innlent 24.4.2024 16:06
Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaefni heldur því fram að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og mótframbjóðandi hennar, hafi verið að forða sér vegna þess að hún vilji ekki þurfa að bera ábyrgð á vafasömu frumvarpi Bjarkeyjar Olsen, sem nú er tekist á um á þingi. Innlent 24.4.2024 12:32
Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Aðalfundur Landsambands veiðifélaga lýsir yfir miklum áhyggjum af efni frumvarps um lagareldi, sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra, mælir nú fyrir á þingi. En þar er tekist á af hörku um málið. Innlent 23.4.2024 16:47
Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Unnið er að því að fá nýja rekstraraðilar til að taka við rekstri Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg. Stefnt er á að opna verslunina aftur þann 15. maí. Það kemur fram í tilkynningu í glugga verslunarinnar í dag. Viðskipti innlent 23.4.2024 14:07
Fé, fæða og fjármálaáætlun Málefni matvælaráðuneytisins bera oft á góma í samtölum fólks. Það er eðlilegt, á könnu ráðuneytisins eru fjöldi málaflokka sem varða okkar daglega líf, matinn sem við borðum, stórar atvinnugreinar og umhverfið í kringum okkur. Skoðun 20.4.2024 08:00
Veiðum hval - virðum lög Um mitt sumar í fyrra eyðilagði þáverandi matvælaráðherra fyrirhugaða hvalveiðivertíð með fádæma valdníðslu. Umboðsmaður Alþingis gerði alvarlegar athugasemdir við framgöngu ráðherrans sem rýrði tekjumöguleika fólks og fyrirtækja. Skoðun 16.4.2024 14:32
Fyrirtæki í fiskþurrkun hagnaðist um vel á þriðja milljarð við söluna á Kerecis Fyrirtæki á Vestfjörðum, sem sérhæfir sig einkum í þurrkun fisks, hagnaðist um 2,5 milljarða þegar gengið var frá risasölu á Kerecis til Coloplast síðastliðið haust. Félagið Klofningur, sem hafði verið hluthafi í Kerecis í meira en áratug, greiðir bróðurpart söluhagnaðarins út í arð til eigenda sem eru önnur fyrirtæki og einstaklingar af svæðinu. Innherji 15.4.2024 09:40
Segir útséð um hvalveiðar í sumar Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf, segir útséð um að hvalveiðar fari fram í sumar. Matvælaráðuneytið hefur til skoðunar að veita fyrirtækinu starfsleyfi til eins árs í senn en Kristján segir að með því sé grunnur lagður að því að gera starfsemina óstarfshæfa. Innlent 13.4.2024 08:40
KEA selur hlut sinn í Slippnum KEA hefur selt 12 prósenta eignarhlut sinn í Slippnum á Akureyri. Kaupandi eignarhlutarins er dótturfélag Kaldbaks sem hefur átt ráðandi hlut í Slippnum um nokkurra ára skeið. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:46
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn