Stj.mál

Fréttamynd

Hrossakaup formannanna

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði í umræðum á Alþingi um sölu Símans að ríkisstjórnin væri að hanna fákeppni. Hann benti jafnframt á að meirihluti landsmanna væri samkvæmt skoðanakönnunum á móti því að selja Símann.

Innlent
Fréttamynd

Kemur mjög á óvart

"Það kemur mér mjög á óvart að heyra að ekki eigi að ráðast í gerð Sundabrautar næstu fjögur árin," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri. Í nýrri samgönguáætlun er gert ráð fyrir áframhaldandi undirbúningsvinnu vegna Sundabrautarinnar en engum framkvæmdum til ársins 2009.

Innlent
Fréttamynd

Símafyrirtækjum gert að hlera

Síminn býr yfir búnaði til að hlera og taka upp símtöl. Samkvæmt frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum skulu öll fjarskiptafyrirtæki á Íslandi koma sér upp slíkum búnaði. Var frumvarpið rætt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri andvígir álveri

"Þetta eru svipaðar niðurstöður og ég átti von á og mótstaða Skagfirðinga við álver kemur ekkert á óvart," segir Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri Skagafjarðar, en á fundi sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hélt á Sauðárkróki í gærkvöldi kom fram að 45 prósent Skagfirðinga eru á móti álversframkvæmdum á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Færanleg sjúkrastöð í Palestínu

Fimm þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um kaup og rekstur á færanlegri sjúkrastöð í Palestínu. Þingmennirnir ferðuðust til Palestínu og Ísrael um páskana þar sem þeir kynntu sér ástandið.

Innlent
Fréttamynd

Deilt á stjórnina vegna Símasölu

"Ákveðið hefur verið að selja hlut ríkisins í Símanum í einu og heilu lagi einum hóp kjölfestufjárfesta," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á Alþingi í gær er hann kynnti skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á Símanum.

Innlent
Fréttamynd

Er erfitt en á réttri leið

Baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni hefst fyrir alvöru í dag þegar stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar opna starfsstöð að Ármúla 40 klukkan þrjú. Sem kunnugt er hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir boðið sig fram gegn Össuri. Össur viðurkennir að á brattan sé að sækja en segist jafnframt vera á réttri leið.

Innlent
Fréttamynd

Össur opnar starfsstöð í dag

Stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar formanns Samfylkingarinnar ætla að opna starfsstöð að Ármúla 40 klukkan þrjú í dag. Össur mun af því tilefni kynna helstu baráttumál sín en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur sem kunnugt er boðið sig fram í formannsembættið gegn honum.

Innlent
Fréttamynd

Vill ríkisstjórn klassískra gilda

Össur Skarphéðinsson segist finna mikinn stuðning í baráttunni um formannssæti í Samfylkingunni. Hann segist telja að þetta verði málefnaleg, opin og heiðarleg barátta. Hann vill að Samfylkingin leiði næstu ríkisstjórn sem verði ríkisstjórn klassískra gilda, sem leggi áherslu á fjölskylduna og hag barna og aldraðra.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutinn heldur líklega

Töluverðar líkur eru á því að meirihlutasamstarf framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Grundarfjarðar hefjist að nýju en slit urðu á samstarfinu 23. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í máli Gísla Ólafssonar, varaforseta bæjarstjórnar og fulltrúa Framsóknar í bæjarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Konurnar í Framsókn minna á sig

Landsstjórn Landssambands framsóknarkvenna skorar á forsætisráðherra sem er formaður flokksins að hefja markvissar aðgerðir til að ná fram launajafnrétti milli karla og kvenna.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarflokkarnir ræða leikskóla

Óformlegar viðræður um gjaldfrjálsa leikskólagöngu fimm ára barna hafa farið fram milli ríkisstjórnarflokkanna. Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar, segir gjaldfrjálsan leikskóla lið í fjölskyldustefnu flokksins frá síðasta flokksþingi.

Innlent
Fréttamynd

Vill snarpa og málefnalega baráttu

"Ég vil hefja stutta baráttu, snarpa, málefnalega og drengilega," sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, í gær þegar kosningaskrifstofa hans, sem hann kýs að kalla starfsstöð, var opnuð að Ármúla 40.

Innlent
Fréttamynd

Vilja skilja á milli embættismanna

Skilja ber á milli pólitískra og faglegra embættismanna í stjórnarráðinu að mati sex þingmanna Samfylkingarinnar. Lögð hefur verið fram tillaga að þingsályktun um málið en flutningsmenn telja að Ísland hafi sérstöðu hvað varðar pólitískar embættisveitingar í ráðuneytum.

Innlent
Fréttamynd

Skýrsla um söluferlið er tilbúin

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir nefndina hafa skilað endanlegri skýrslu um sölu Landssíma Íslands til ráðherranefndar um einkavæðingu. Í skýrslunni er mælt fyrir einni leið við sölu Símans.

Innlent
Fréttamynd

Össur hefur kosningabaráttuna

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, opnar í dag kosningaskrifstofu í Ármúla 40. Össur býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar líkt og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem opnaði sína kosningaskrifstofu fyrir tæpum mánuði síðan.

Innlent
Fréttamynd

Síminn seldur þremur fjárfestum

Síminn verður seldur í einu lagi en að lágmarki til þriggja fjárfesta. Um þetta hafa formenn stjórnarflokkanna náð samkomulagi samkvæmt heimildum <em>Morgunblaðsins</em>. Segir þar að samkomulagið feli það í sér að hver hópur tilboðsgjafa verði að vera samansettur af þremur viðskiptahópum eða einstaklingum og má enginn þeirra eiga meira en 40-45 prósenta hlut.

Innlent
Fréttamynd

Friðrik Páll aftur fréttastjórinn

Óljóst er hver næstu skref í ráðningu fréttastjóra Ríkisútvarpsins verða. Útvarpsstjóri segir að það verði rætt í útvarpsráði. Útvarpsráð segir Markús einan um þá ákvörðun. Fyrrverandi fréttastjóri sem útvarpsráð vildi síður í starfið sest aftur við stjórnvölinn.

Innlent
Fréttamynd

LÍV andmælir breytingum á lögum

Stjórn Landssambands íslenskra verzlunarmanna hefur lýst yfir andstöðu við frumvarp um breytingar á lögum um helgidagafrið. Segir sambandið að frumvarpið feli í sér miklar breytingar á högum þeirra sem starfa í matvöruverslunum minni en 600 fermetrum að stærð. Því verði lögverndaðir frídagar þessa starfsfólks aðeins aðfangadagur eftir klukkan sex og jóladagur.

Innlent
Fréttamynd

Býður HR lóð í Urriðaholti

Oddfellow-reglan hefur boðið Háskólanum í Reykjavík allt að þrettán hektara lóð í Urriðaholti í Garðabæ undir nýja skólabyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Telja R-lista brjóta lög

Sjálfstæðismenn telja að Reykjavíkurlistinn hafi brotið sveitarstjórnarlög með því að leggja fram þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borgarinnar svo seint á árinu. Óskað hafði verið eftir fresti vegna stjórnkerfisbreytinga og breytinga á fjárhagsrömmum stofnana.

Innlent
Fréttamynd

Alþingi hvatt til að taka í tauma

Stjórnarandstæðingar gagnrýndu harðlega ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins í dag í umræðum um störf þingsins. Talað var um að pólitísk afskipti af stofnuninni væru meiri en tíðkaðist í nokkuru öðru vestrænu ríki. Alþingi var hvatt til að taka í taumana.

Innlent
Fréttamynd

Áhugi minni en búist var við

Mun minni áhugi er fyrir álveri við Eyjafjörð meðal Eyfirðinga en stjórnvöld höfðu reiknað með, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var fyrir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um ráðningu á þingi

Stjórnarandstæðingar hafa gagnrýnt harðlega ráðningu nýs fréttastjóra að Ríkisútvarpinu í umræðum um störf þingsins í dag. Talað var um að pólitísk afskipti af stofnuninni væru meiri en tíðkaðist í nokkuru öðru vestrænu ríki og Alþingi var hvatt til að taka í taumana. Beðið hafði verið um utandagskrárumræðu um málið en beiðninni hafði ekki verið svarað. Frekar verður greint frá þessu í fréttum Bylgjunnar klukkan tólf.

Innlent
Fréttamynd

Minnir á Keilisnes sem góðan kost

Stjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem minnt er á að stóriðja á Keilisnesi hafi verið talin besti kostur fyrir næstu stóriðju á Íslandi og svo sé enn. Stjórn félagsins skorar á iðnaðar- og viðskiptaráðherra að beita sér fyrir því að næsta stóriðja á Íslandi verði á Suðurnesjum.

Innlent
Fréttamynd

Ófremdarástand á RÚV

Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ósáttir í gærmorgun við að forsætisráðherra hafnaði því að ræða ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins á Alþingi í gær í fjarveru menntamálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Boðaðir á fund menntanefndar

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og útvarpsráð Ríkisútvarpsins verða kallaðir á fund menntamálanefndar til að ræða stöðuna í útvarpinu í kjölfar fréttastjóramálsins. Gunnar I. Birgisson, formann nefndarinnar, og Mörð Árnason, fulltrúa Samfylkingar, greinir á um alvarleika málsins.

Innlent
Fréttamynd

Markús hlýtur að hugsa sinn gang

Formaður Blaðamannafélags Íslands, Róbert Marshall, telur að Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, hljóti að hugsa sinn gang nú þegar Auðun Georg Ólafsson hafi ákveðið að taka ekki við starfi fréttastjóra útvarpsfrétta.

Innlent
Fréttamynd

Naumur meirihluti fylgjandi álveri

Naumur meirihluti Akureyringa og annarra Eyfirðinga, eða 51,6 prósent, er hlynntur því að álver rísi í grennd við Akureyri. Rúmlega 32 prósent Eyfirðinga eru því hins vegar andvíg og rúm þrettán prósent tóku ekki afstöðu. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem IMG Gallup gerði fyrir iðnaðarráðuneytið og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðhera kynnti á fjölmennum fundi um stóriðju á Akureyri í gærkvöldi.

Innlent