Fótbolti
263 264 265 266 267 268 269 270 271 … 334 ›
Íþróttamannsleg framkoma Gylfa Þórs að leik loknum Everton vann 1-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bernd Leno gerði sig sekan um skelfileg mistök sem tryggðu Everton stigin þrjú. Gylfi Þór Sigurðsson fór beint upp að markverðinum að leik loknum. Enski boltinn 23.4.2021 21:30
Valgeir leikur með HK í sumar HK hefur heldur betur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Pepsi Max-deild karla. Valgeir Valgeirsson, besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, mun leika með uppeldisfélagi sínu í sumar. HK greindi frá þessu í kvöld. Íslenski boltinn 23.4.2021 21:10
Alfreð byrjaði í kaflaskiptum leik Alfreð Finnbogason sneri aftur í byrjunarlið Augsburg er liðið tapaði 2-3 gegn Köln í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 23.4.2021 20:31
Silkeborg í góðum málum eftir leiki kvöldsins Íslendingalið Silkeborg og Esbjerg í dönsku B-deildinni áttu misjöfnu gengi að fagna í kvöld. Sigur Silkeborgar þýðir að liðið er í frábærri stöðu til að tryggja sér sæti í efstu deild á næstu leiktíð á meðan tap Esbjerg þýðir að liðið er að heltast úr lestinni. Fótbolti 23.4.2021 19:15
Häcken áfram með fullt hús stiga Häcken vann 2-0 sigur á Växjö í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í Svíþjóð í kvöld. Diljá Ýr Zomers sat allan tímann á varamannabekk Häcken. Fótbolti 23.4.2021 18:56
Konaté á leið til Liverpool Svo virðist sem Ibrahima Konaté, miðvörður RB Leipzig, sé við það að ganga til liðs við Englandsmeistara Liverpool. Hann mun skrifa undir fimm ára samning við félagið. Enski boltinn 23.4.2021 18:14
Giggs ákærður fyrir árás á tvær konur Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales í fótbolta og fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur 1. nóvember síðastliðinn. Fótbolti 23.4.2021 15:52
Stálbarnið Andri Fannar Baldursson Hinn ungi og efnilegi Andri Fannar Baldursson lék tæplega fimmtíu mínútur í liði Bologna í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á miðvikudagskvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við Torino. Fótbolti 23.4.2021 07:01
Telur sína menn geta orðið Íslandsmeistara í sumar Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, telur sína menn geta borið sigur úr býtum í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu í sumar. Liðið endaði í 4. sæti deildarinnar síðasta sumar er keppni var hætt þegar enn voru nokkrar umferðir eftir af mótinu. Íslenski boltinn 22.4.2021 23:16
Toppbaráttan á Spáni áfram æsispennandi eftir sigra Atlético og Barcelona Bæði Atlético Madrid og Barcelona unnu leiki sína í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Spennan á toppi deildarinnar heldur því áfram. Fótbolti 22.4.2021 22:00
Segist hvorki hafa tæklað neinn harkalega né kýlt Fyrr í kvöld greindi Vísir frá því að æfingaleikur KR og ÍA í knattspyrnu hefði verið flautaður af þegar stundarfjórðungur var til leiksloka þar sem mönnum var svo heitt í hamsi. Ísak Snær Þorvaldsson segir málið vera blásið allverulega upp. Íslenski boltinn 22.4.2021 21:31
Mikilvægur sigur hjá Leicester en WBA er í vondum málum Leicester City vann West Bromwich Albion 3-0 í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Sam Allardyce hefðu þurft á sigri að halda en liðið er svo gott sem fallið. Enski boltinn 22.4.2021 20:55
Napoli rúllaði yfir Lazio meðan Roma og Atalanta skildu jöfn Tveir stórleikir fóru fram í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Napoli rúllaði yfir Lazio, 5-2 á meðan Roma og Atalanta gerðu 1-1 jafntefli. Fótbolti 22.4.2021 20:46
Tristan Máni er 13 ára fótboltasnillingur í Kópavogi Þrettán ára strákur í Kópavogi getur gert ótrúlegustu hluti með fótbolta þegar kemur að kúnstum og leikjum með boltann. Hann getur til dæmis gert armbeygjur um leið og hann leikur sér með boltann. Innlent 22.4.2021 20:03
Æfingaleikur KR og ÍA flautaður af Samkvæmt heimildum Vísis var æfingaleikur KR og ÍA flautaður af þar sem mönnum var orðið það heitt í hamsi að ekki var hægt að halda leiknum áfram. Íslenski boltinn 22.4.2021 19:00
Jón Dagur lagði upp fyrra mark AGF AGF vann 2-0 sigur á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp fyrra mark leiksins. Markið má sjá í fréttinni. Fótbolti 22.4.2021 17:40
Forseti Real og forsprakki ofurdeildar Evrópu: „Það var eins og við hefðum drepið einhvern“ Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur ekki gefið upp alla von varðandi „ofurdeild Evrópu“ þó níu af 12 liðum hafi dregið þátttöku sína til baka. Fótbolti 22.4.2021 14:00
Forseti PSG tekur við stöðu Agnelli hjá ECA Nasser Al-Khelaifi, forseti franska knattspyrnufélagsins París Saint-Germain, er nýr formaður ECA, samtaka knattspyrnufélaga í Evrópu. Hann tekur við stöðunni af forseta ítalska félagsins Juventus. Fótbolti 22.4.2021 13:31
Reiðir stuðningsmenn Manchester United mættu á æfingasvæði félagsins Hópur stuðningsmanna Manchester United mætti á æfingasvæðið félagsins í morgun til að láta í ljós skoðun sína á eigendum félagsins sem og áætlanir þeirra að vera með í svokallaðri ofurdeild. Enski boltinn 22.4.2021 10:45
Þrjú mörk, tvö rauð spjöld og City skrefi nær titlinum Manchester City steig stórt skref í átt að enska meistaratitlinum með 2-1 sigri á Aston Villa á útivelli í kvöld. Enski boltinn 21.4.2021 19:36
Ögmundur fékk tækifæri í deildinni og hélt hreinu Ögmundur Kristinsson fékk loksins tækifæri í deildarleik með Olympiakos í kvöld er liðið vann 1-0 sigur á Asteras Tripolis. Fótbolti 21.4.2021 20:02
Telja að áhorf muni rúmlega þrefaldast með auðveldara aðgengi Ný rannsókn sýnir að áhorf á kvennaknattspyrnu gæti aukist um að allt að 350 prósent með auknu aðgengi og sýnileika. Enski boltinn 21.4.2021 15:46
Sarri orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham Samkvæmt enska götublaðinu Daily Mail hefur Tottenham Hotspur heyrt í Maurizio Sarri, fyrrum þjálfara Chelsea, Juventus og Napoli. Gæti hann tekið við Lundúnaliðinu í sumar. Enski boltinn 21.4.2021 13:00
Alaba skrifar undir fimm ára samning við Real Madrid Sky Sports í Þýskalandi staðfestir að David Alaba hafi samþykkt samningstilboð Real Madrid og mun þessi 28 ára varnarmaður skrifa undir fimm ára samning við félagið. Fótbolti 21.4.2021 12:46
Bikarþynnka í Chelsea Chelsea og Brighton gerðu markalaust jafntefli í enska boltanum í kvöld er liðin mættust á Stamford Bridge en leikurinn var liður í 32. umferð deildarinnar. Enski boltinn 20.4.2021 18:31
Íslendingar í undanúrslit, stoðsending frá Böðvari og hálftími hjá Alfreð Rhein-Neckar Löwen og Magdeburg eru komin í undanúrslit Evrópukeppninnar í handbolta en síðari leikir átta liða úrslitanna fóru fram í kvöld. Fótbolti 20.4.2021 20:22
Zidane: Ég hef mína skoðun en þetta er mál fyrir forseta félagsins Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, forðaðist allar spurningar sem tengdur ofurdeild Evrópu á blaðamannafundi sínum í morgun. Hann sagðist aðeins vera einbeita sér að leiknum gegn Cádiz annað kvöld. Fótbolti 20.4.2021 17:00
Kolbeinn fann markaskóna eftir hafa leitað í 621 dag Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði bæði mörk Gautaborgar í 2-0 sigri á hans gamla félagi AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Alls eru 621 dagur síðan Kolbeinn þandi síðan netmöskvana með félagsliði sínu. Fótbolti 20.4.2021 16:31
Henderson kallar fyrirliða ensku úrvalsdeildarinnar á krísufund Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, hefur boðað alla fyrirliða ensku úrvalsdeildarinnar á krísufund vegna mögulegrar stofnunar ofurdeildar Evrópu. Enski boltinn 20.4.2021 14:15
Segir það ekki vera íþrótt ef það skiptir ekki máli hvort þú vinnir eða tapir Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, hélt eldræðu varðandi ofurdeild Evrópu í knattspyrnu á blaðamannafundi nú rétt í þessu. Hann segir það ekki vera íþrótt ef engu máli skiptir hvort þú vinnir eða tapir. Ræðu Pep má sjá í fréttinni. Enski boltinn 20.4.2021 13:06