Kauphöllin
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 78 ›
Vægi íslenska hlutabréfamarkaðarins eykst um fimmtung hjá MSCI Vægi íslenska hlutabréfamarkaðarins í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði hefur aukist um fimmtung. Íslenski markaðurinn er sá þriðji stærsti innan vísitölunnar. Rekja má aukninguna til þess að Bahrein, furstadæmi á Persaflóa, tilheyrir ekki lengur vísitölunni. Tíðindin ættu að hafa í för með sér aukið innflæði á markaðinn frá erlendum fjárfestum. Innherji 9.11.2022 10:03
Öðrum hluthöfum Play einnig boðið að taka þátt Flugfélagið Play hyggst einnig efna til hlutafjárútboðs á meðal minni fjárfesta félagsins. Útboðið verður á sömu kjörum og tuttugu stærstu hluthöfum félagsins bauðst í hlutafjárútboði í síðustu viku. Viðskipti innlent 8.11.2022 19:56
Citi hækkaði verðmat á Marel og horfir jákvæðum augum á bættan rekstur Fjárfestingabankinn Citi hækkaði lítillega markgengi sitt á Marel í gærkvöldi. Greinendur bankans eru mun bjartsýnni á gengi íslenska fyrirtækisins en kollegar þeirra hjá hollenska fjármálafyrirtækinu ING. Mat Citi er 19 prósentum hærra en ING sem birti líka verðmat í gær. Innherji 8.11.2022 16:02
Bláa lónið setur stefnuna á Kauphöllina í byrjun næsta árs Bláa lónið, eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, vinnur nú að undirbúningi að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað sem það áformar að geti orðið að veruleika á fyrri hluta næsta árs. Tvö innlend fjármálafyrirtæki hafa verið fengin sem ráðgjafar Bláa lónsins við skráningarferlið þar sem til stendur að bjóða hluti í félaginu til sölu. Fyrirtækið var verðmetið á um 60 milljarða í síðustu stóru viðskiptum með bréf í félaginu fyrir meira en ári. Innherji 8.11.2022 13:37
Origo hyggst greiða hluthöfum 24 milljarða eftir á sölu á Tempo Stjórn Origo leggur til að 24 milljarðar króna verði greiddir til hluthafa eftir að hafa selt tæplega helmingshlut í Tempo á jafnvirði 28 milljarða króna fyrir skemmstu. Sjóðstjórar hafa sagt við Innherja að þeir töldu líklegt að fjárhæðin yrði að mestu greidd til hluthafa. Innherji 8.11.2022 10:43
Vilja greiða 24 milljarða króna út til hluthafa Stjórn Origo hefur lagt fram tillögu um að greiða samtals 24 milljarða króna út til hluthafa og að hlutafé félagsins verði þá lækkað um 295 milljónir. Viðskipti innlent 8.11.2022 10:00
Lækkar verðmat sitt á Marel og segir að það taki tíma að bæta framlegðina Hollenska fjármálafyrirtækið ING hefur lækkað markgengi sitt á Marel um 28 prósent frá fyrra mati. Verðmatið er um átta prósent yfir markaðsvirði. Greinendur ING segja að verkefnið að auka framlegð sé rétt að hefjast, það muni taka tíma, en að uppgjör þriðja ársfjórðung sé „góð byrjun“. Innherji 7.11.2022 17:30
Eru hlutabréf verðtryggð? Verðbólga hefur mjög mismunandi áhrif á virði hlutabréfa. Þó hlutabréf séu ekki beintengd við vísitölu neysluverðs líkt og verðtryggð skuldabréf þá hefur hófleg verðbólga sem slík ekki bein neikvæð áhrif á virði hlutabréfa. Umræðan 6.11.2022 10:31
Ósáttur við að þurfa sífellt að birta afkomuviðvaranir eftir dóm Hæstaréttar Forstjóri Eimskips er ósáttur með að þurfa gefa stanslaust út afkomuviðvaranir örfáum fyrir vikum birtingu uppgjöra. „Margir klóra sér í kollinum yfir þessu,“ sagði hann. Fyrirtækið hafi brugðist við með þeim hætti eftir dóm Hæstaréttar. „Okkur þykir það ekki skemmtilegt,“ sagði Vilhem Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips. Rætt verði við Fjármálaeftirlitið til að fá nánari leiðbeiningar um hvernig haga eigi málum. Innherji 4.11.2022 13:57
Tekur Árni við af Árna? Þeir sem eru öllum hnútum kunnugir í íslensku atvinnulífi hafa litið svo á að Árni Sigurðsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra stefnumótunar og stefnumarkandi rekstrareininga hjá Marel, væri líklegastur til að taka við forstjórastólnum þegar Árni Oddur Þórðarson myndi vilja beina kröftum sínum annað. Klinkið 4.11.2022 10:35
Play sækir 2,3 milljarða frá stærstu hluthöfunum Stjórn flugfélagsins Play hefur safnað bindandi áskriftarloforðum frá tuttugu stærstu hluthöfum félagsins upp á 2,3 milljarða. Forstjóri félagsins segir tilganginn vera að efla félagið fyrir komandi vöxt og styrkja lausafjárstöðu þess. Viðskipti innlent 4.11.2022 08:30
Marel sýnt að það getur lækkað skuldahlutfallið „hratt“ Stjórnendur Marels segja að félagið hafi margítrekað sýnt að það getur lækkað skuldahlutfall sitt hratt eftir að hafa ráðist í stórar yfirtökur. Ekki kemur til greina að lækka útgefið markmið félagsins um skuldsetningu þrátt fyrir að vaxtakostnaður hafi aukist talsvert. Erlendir greinendur tóku vel í uppgjör Marels sem þeir sögðu gefa til kynna að sterkur rekstrarbati væri í vændum. Innherji 3.11.2022 16:58
„Fulldjúpt í árina tekið“ að tala um viðsnúning hjá Marel Uppgjör Marels á þriðja ársfjórðungi einkenndist af lágri framlegð ásamt miklum tekjuvexti og sameiningarkostnaði samfara kaupum á Wenger. Vísbendingar eru um rekstrarbata ef litið fram hjá sameiningarkostnaði en það er „fulldjúpt í árina tekið að tala um einhvern viðsnúning“ í rekstri. Innherji 3.11.2022 15:15
Marel fellur í verði eftir uppgjör og 25 milljarða lán til stærsta hluthafans Gengi bréfa Marels, verðmætasta fyrirtækisins í Kauphöllinni, lækkaði um tæplega fjögur prósent í fyrstu viðskiptum í morgun. Félagið birti í gærkvöldi uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung og þá upplýsti stærsti hluthafi Marels um 175 milljóna evra lánasamning við tvö erlend fjárfestingarfélög með breytirétti í allt að átta prósenta hlut í Marel. Innherji 3.11.2022 09:55
Icelandair hækkar en erlendir keppinautar lækka Hlutabréfaverð fjölda erlendra flugfélaga hefur lækkað skarpt á einu ári. Þrátt fyrir það hefur Icelandair hækkað lítillega á sama tíma. Viðskiptalíkan Icelandair byggir á tengiflugi milli Evrópu og Ameríku, en sjóðstjóri segir að af þeim sökum sé rekstur flugfélagsins ekki eins berskjaldaður fyrir verri efnahagshorfum í Evrópu og önnur flugfélög. Innherji 3.11.2022 07:00
Leggja Eyri til 25 milljarða og geta eignast átta prósenta hlut í Marel Fjárfestingafélagið Eyrir Invest, langsamlega stærsti hluthafi Marels, hefur gengið frá samkomulagi við erlendu fjárfestingarsjóðina JNE Partners og The Boupost Group um að leggja Eyri til 175 milljónir evra, jafnvirði um 25 milljarða íslenskra króna, í lán til fjögurra ára. Með samkomulaginu öðlast sjóðirnir um leið kauprétt að allt að rúmlega átta prósenta hlut í Marel frá Eyri Invest í lok lánstímans í nóvember 2026. Innherji 2.11.2022 23:44
Rekstrarhagnaður Marels jókst um 30 prósent og var yfir spám greinenda Marel færist markmiði sínu um að skila 14 til 16 prósenta EBIT-framlegð fyrir árslok 2023 eftir að félagið skilaði rekstrarhagnaði upp á 46,2 milljónir evra, jafnvirði 6,6 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um nærri 30 prósent frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður Marels var talsvert yfir meðalspá greinenda, og sömuleiðis tekjur félagsins sem voru samtals tæplega 451 milljón evra á fjórðungnum. Innherji 2.11.2022 21:18
Sýn í „góðri stöðu“ til að skila frekara fjármagni til eigenda eftir sölu á stofnneti Sýn skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) á þriðja ársfjórðungi upp á 486 milljónir og jókst hann um liðlega fimmtán prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjarskipta- og fjölmiðlafélagsins námu um 5,5 milljörðum króna og stóðu nánast í stað á milli ára. Stjórn Sýnar hefur samþykkt endurkaup á eigin bréfum fyrir 300 milljónir. Innherji 2.11.2022 18:08
Jakobsson verðmetur Icelandair 42 prósentum yfir markaðsgengi Jakobsson Capital verðmetur Icelandair 42 prósent yfir markaðsgengi eða á 2,59 krónur á hlut. Á fjórða ársfjórðungi ársins verður afkastageta Icelandair 98 prósent af því sem hún var 2019 fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn. „Flugvélin er á réttri flugbraut,“ segir greinandi. Innherji 2.11.2022 16:00
Hlutabréf á siglingu með Marel í stafni Hlutabréfaverð hefur verið á mikilli siglingu á undanförnum dögum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um ellefu prósent á einni viku. Þar munar miklu um að Marel, sem vegur þyngst í vísitölunni, hefur hækkað um 14 prósent. Fjárfestar gera sér vonir um að uppgjör fyrirtækisins, sem birtist á morgun, verði gott. Innherji 1.11.2022 16:30
Gullgrafarar komnir í Kauphöllina Auðlindafélagið Amaroq Minerals var í morgun skráð á íslenska Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn. Viðskipti innlent 1.11.2022 13:05
Verðmat IFS á Icelandair 29 prósentum yfir markaðsgengi IFS hækkaði verðmat sitt á Icelandair eftir uppgjör þriðja ársfjórðungs og verðmetur nú félagið 29 prósentum yfir markaðsgengi við upphaf dags. Hærra verðmat má rekja til þess að gert er ráð fyrir að reksturinn fari batnandi samhliða meðal annars lækkandi olíuverði og betri sætanýtingu. Innherji 31.10.2022 13:05
Óvissa með útgreiðslur til hluthafa Íslandsbanka vegna óróa á mörkuðum Íslandsbanki mun nota síðasta fjórðung ársins til að kanna hvaða valkosti hann hefur vegna áður boðaðra áforma um að kaup á eigin bréfum fyrir allt að 15 milljarða króna, að sögn bankastjórans, en umrót á fjármálamörkuðum veldur því að óvissa er um hvenær getur orðið af slíkum útgreiðslum til hluthafa. Seðlabankastjóri hefur áður brýnt fyrir bönkunum að þeir þurfi að gæta vel að lausafjárstöðu sinni við þessar krefjandi markaðsaðstæður. Innherji 29.10.2022 16:11
Hvergi skjól á fjármálamörkuðum Afkoma Sjóvár á undanförnum tveimur ársfjórðungum varpar ljósi á hvernig sveiflur í afkomu af vátryggingarekstri og fjárfestingum vegur á móti hvor öðru. Hagnaður af vátryggingum var 478 milljónir en tap af fjárfestingastarfsemi nam 163 milljónum. Þetta samband var ekki til staðar á undanförnum tveimur árum vegna peningaprentunar í Covid-19 og fjármálamarkaðir hækkuðu samhliða. Innherji 28.10.2022 15:01
Innflæði í hlutabréfasjóði í fyrsta sinn í fimm mánuði Þrátt fyrir að hlutabréfaverð hafi tekið mikla dýfu í liðnum mánuði þá reyndist vera hreint innflæði í innlenda hlutabréfasjóði upp á tæplega hálfan milljarð króna í september. Er þetta í fyrsta sinn frá því í apríl á þessu ári þar sem sala á nýjum hlutdeildarskírteinum í slíka sjóði er meiri en sem innlausnum fjárfesta. Innherji 28.10.2022 13:01
Hagnaður upp á 7,5 milljarða hjá Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi 2022 nam 7,5 milljörðum króna. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,7 prósent milli ára. Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 39,4 prósentum í 36,3 prósent. Viðskipti innlent 27.10.2022 20:58
„Taktfastur dans“ skilar Nova milljarði í rekstrarhagnað EBITDA-hagnaður Nova á þriðja ársfjórðungi 2022 var rúmur milljarður króna. EBITDA-hlutfallið var 31,9 prósent og vex um 1,3 prósentustig frá fyrra ári. Forstjórinn segir ársfjórðungin hafa verið samkvæmt væntingum. Viðskipti innlent 27.10.2022 17:39
Telja að verðbólga taki ekki á rás þrátt fyrir óvænta þróun í dag Verðbólga mældist yfir spám greinenda í október. Sérfræðingar á markaði telja að líklega hafi verðbólgan toppað í sumar og horfa til þess að hún fari hjaðnandi á næstu mánuðum. Sjóðstjóri segir að stóra spurningin fyrir Seðlabankann sé hversu hratt hún gangi til baka. Innherji 27.10.2022 15:59
Hækkar verðmat Haga í ljósi góðs reksturs Rekstur Haga virðist vera í góðum farveg en það er óhætt að segja að markaðsaðstæður séu nokkuð krefjandi. Jakobsson Capital hefur hækkað verðmat sitt á félaginu í ljósi þess hve vel gekk á síðasta ársfjórðungi í 83,6 krónur á hlut eða um 2,5 prósent. Verðmatsgengið er 17 prósent hærra en markaðsgengið fyrir opnun markaða í morgun. Innherji 27.10.2022 14:01
Áform ráðherra gætu haft „jákvæð áhrif á vaxtaumhverfið,“ segir bankastjóri Arion Bankastjóri Arion banka telur að áform fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa, eigi ekki að valda þrýstingi á fjármálamarkaði heldur geti þau haft „jákvæð áhrif“ á vaxtaumhverfið. Arion hefur fært niður virði íbúðabréfa útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum í bókum sínum fyrir um 250 milljónir króna. Innherji 27.10.2022 12:07
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn