Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi, með því að beita fyrrverandi eiginkonu hans og börn ítrekuðu ofbeldi. Fólst það meðal annars að slá þau með hleðslusnúru. 24.5.2024 13:51
Vonar að þetta dugi til Halla Tómasdóttir segir ljóst að frammistaða hennar í kappræðum hafi haft mikil áhrif á fylgi hennar. Hún mælist nú önnur í skoðanakönnunum með rúmlega 18 prósent fylgi, en mældist aðeins með um 5 prósent fylgi fyrr í mánuðinum. 24.5.2024 11:49
„Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Nemendur í háskólum Hollands hafa undanfarna daga reist tjaldbúðir á skólalóðum til stuðnings Palestínu, og margir mætt mikilli hörku lögreglu. Íslenskur nemandi lýsir mikilli samstöðu meðal stúdenta sem fara fram á að hollenskir háskólar taki skýrari afstöðu gegn ísraelskum stjórnvöldum og slíti tengslum við ísraelska háskóla og fyrirtæki. 24.5.2024 10:58
Opnar sig um ofbeldið af hálfu Diddy „Eftir mikla vinnu er ég á betri stað, en ég mun alltaf vera á batavegi,“ segir Cassie Ventura fyrrverandi kærasta Sean „Diddy“ Combs, sem beitti hana ofbeldi á meðan sambandi þeirra stóð. 23.5.2024 23:26
Hægir á verðhækkunum matvöru Verðbólga í matvöruverslunum fer minnkandi það sem af er ári. Til marks um það hækkaði verðlag matvöru um 1,2 prósent milli mánaða, samanborið við 12,3 prósent árshækkun matvöruverð í maí á síðasta ári. 23.5.2024 22:40
Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Fjórir eru látnir eftir að bygging hrundi á spænsku eyjunni Majorka um klukkan hálf níu að staðartíma. 27 manns eru auk þess slasaðir. 23.5.2024 21:39
„Gátum ekki setið og beðið endalaust“ Hagkaup áformar að hefja netverslun með áfengi í næsta mánuði. Forstjórinn viðurkennir að um grátt svæði sé að ræða lagalega séð, en segir fyrirtækið ekki hafa getað beðið „endalaust“ eftir því að verslun með áfengi verði leyfð alfarið. 23.5.2024 21:13
Mál Alberts sýni að skýra þurfi reglurnar Horft var til eldra fordæmis þegar tekin var ákvörðun um að ekki væri heimilt að velja Albert Guðmundsson, leikmann Genóa í knattspyrnu, í næsta landsliðverkefni. Ríkissaksóknari á eftir að taka endanlega ákvörðun í máli hans. Ekki er deilt um túlkun reglna innan stjórnar en ljóst er að skýra verði reglurnar. 23.5.2024 19:22
Birnir og Bríet gefa saman út plötu Tónlistarfólkið Birnir og Bríet sameina krafta sína í væntanlegri plötu, sem mun bera nafnið 1000 orð. 22.5.2024 23:14
Hitafundur í Laugarnesskóla vegna skólauppbyggingar Fólki var heitt í hamsi á íbúafundi Reykjavíkurborgar og foreldra í Laugarnesskóla sem haldinn var í kvöld. Til umræðu var tillaga Reykjavíkurborgar um byggingu á nýjum skóla í Laugardal í stað viðbygginga við þá eldri er nú til umræðu á íbúafundi í Laugarnesskóla. 22.5.2024 20:57