Á þriðja tug létust í eldsvoða í rafhlöðuverksmiðju
Tuttugu og tveir fórust í eldsvoða í rafhlöðuverksmiðju í Suður-Kóreu í dag. Talið er að eldurinn hafi kviknað þegar lithíum-rafhlaða sprakk og breiddist hann leifturhratt út um verksmiðjuna. Átta eru illa slasaðir.