Kolbeinn: Þeir vilja ekki að ég fari til Ajax

"Þeir vilja ekki að ég fari til Ajax, þar sem að þetta er "rival" klúbbur, en það verða bara viðræður og síðan kemur í ljós hvort ég fari í Ajax eða ekki," sagði Kolbeinn Sigþórsson leikmaður hollenska liðsins AX Alkmaar í viðtali við Hans Steinar Bjarnason á Stöð 2. Kolbeinn hefur leikið vel í hollensku úrvalsdeildinni og vakið athygli margra liða en Ajax hefur boðið 3,2 milljónir Evra (525 milljónir kr.) en Kolbeinn segir að Alkmaar vilji fá um 830 milljónir kr. í sinn hlut. Viðtalið við Kolbein má sjá í heild sinni með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan.

1777

Vinsælt í flokknum Fótbolti