Íslenski boltinn

Þetta er nýja Pepsi Max deildar lagið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Skjámynd

Nýtt lag Pepsi Max deildanna var frumflutt á kynningarfundi fyrir Pepsi Max deildir karla og kvenna 2020 sem fram fór í í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Lagið samdi Kristján Sturla Bjarnason sem er kannski þekktastur fyrir samstarf sitt við Jón Ragnar Jónsson.

Lagið er dramatískt eins og má búast við að fótboltasumarið verði en það er von á harðri baráttu um Íslandsmeistaratitlana í sumar og þá má ekki gleyma baráttunni á hinum enda vallarins.

Það má búast við því að þetta lag muni heyrast mikið í sumar og ekki síst í þáttunum um Pepsi Max deildirnar.

Í kvöld verður upphitunarþáttur Pepsi Max deildar kvenna í umsjón Helenu Ólafsdóttur og annað kvöld verður upphitunarþáttur Pepsi deildar karla í umsjón Guðmundar Benediktssonar.

Það er hægt að hlusta á nýja Pepsi Max deildar lagið hér fyrir neðan.

Klippa: Nýtt lag Pepsi Max deildanna



Fleiri fréttir

Sjá meira


×