Körfubolti

Nýliðar Breiðabliks unnu óvæntan sigur á Haukum | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Lovísa Falsdóttir, leikmaður Breiðabliks, hleypir Helenu Sverrisdóttur ekki að boltanum í kvöld.
Lovísa Falsdóttir, leikmaður Breiðabliks, hleypir Helenu Sverrisdóttur ekki að boltanum í kvöld. vísir/ernir
Nýliðar Breiðabliks undir stjórn Hildar Sigurðardóttur unnu frábæran sigur á meistaraefnum Hauka í Domino´s-deild kvenna í kvöld, 92-74. Svakalega sannfærandi sigur en Haukarnir voru ósigraðir fyrir umferðina.

Blikarnir lögðu grunninn að sigrinum í fyrsta leikhluta sem þeir unnu með fimmtán stigum, 35-21, en heimakonur voru 56-34 yfir í hálfleik. Haukarnir klóruðu í bakkann í fjórða leikhluta en þurftu að sætt sig við 18 stiga tap.

Ivory Crawford fór fyrir Breiðabliki með 28 stigum, ellefu fráköstum og fimm stoðsendignum en AUður Íris Ólafsdótir skoraði 17 stig og tók sex fráköst í þessum öðrum sigri Blika í deildinni.

Helena Sverrisdóttir skoraði 22 stig og tók fimmtán fráköst fyrir Hauka en Cherise Daniel skoraði 20 stig og tók fimm fráköst.

Haukarnir eru nú 4-1 í deildinni líkt og Stjarnan og Valur sem pakkaði Njarðvík saman, 104-72, í Valshöllinni í kvöld. Njarðvík eina liðið án sigurs.

Alexandra Petersen var stigahæst hjá Val með 31 stig auk þess sem hún tók sex fráköst og gaf átta stoðsendingar en hjá Njarðvík skoraði Shalonda Winton 27 stig og tók 19 fráköst.

Breiðablik-Haukar 92-74 (35-20, 21-14, 19-15, 17-25)

Breiðablik: Ivory Crawford 28/11 fráköst/5 stoðsendingar, Auður Íris Ólafsdóttir 17/6 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 13/4 fráköst/8 stoðsendingar, Telma Lind Ásgeirsdóttir 9/6 stoðsendingar, Isabella Ósk Sigurðardóttir 8/7 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 6, Lovísa Falsdóttir 5, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 4, Arndís Þóra Þórisdóttir 2.

Haukar: Helena Sverrisdóttir 22/15 fráköst/6 stoðsendingar, Cherise Michelle Daniel 20/5 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 15, Rósa Björk Pétursdóttir 10, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 4, Sigrún Björg Ólafsdóttir 3.

Valur-Njarðvík 104-72 (22-11, 28-15, 25-18, 29-28)

Valur: Alexandra Petersen 31/6 fráköst/8 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir 16, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 12/6 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 10/4 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 9/9 fráköst/3 varin skot, Ragnheiður Benónísdóttir 8/7 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 7, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 5/4 fráköst, Kristín María Matthíasdóttir 4, Dagbjört Samúelsdóttir 2.

Njarðvík: Shalonda R. Winton 27/19 fráköst/3 varin skot, Karen Dögg Vilhjálmsdóttir 9, Ína María Einarsdóttir 9, Hulda Bergsteinsdóttir 8/6 fráköst, Aníta Carter Kristmundsdóttir 5, Árnína Lena Rúnarsdóttir 3, Aníta Eva Viðarsdóttir 3, Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir 3/6 fráköst, Erna Freydís Traustadóttir 3, Björk Gunnarsdótir 2/6 stoðsendingar.

vísir/ernir
vísir
vísir/eyþór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×