Fótbolti

Wenger mætir sínu gamla félagi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wenger ásamt Glenn Hoddle og Mark Hateley er Wenger stýrði sterku liði Monaco árið 1987.
Wenger ásamt Glenn Hoddle og Mark Hateley er Wenger stýrði sterku liði Monaco árið 1987. fréttablaðið/getty
Fyrri umferðinni í 16-liða úrslitunum í Meistaradeild Evrópu lýkur í kvöld með tveim leikjum. Atletico Madrid heimsækir þá Bayer Leverkusen á meðan Arsenal tekur á móti Monaco.

Það verður sérstakur leikur fyrir Arsene Wenger, stjóra Arsenal, enda tekur hann á móti liðinu sem hann hóf þjálfaraferil sinn hjá.

„Monaco gaf mér mitt fyrsta, stóra tækifæri og ég er ánægður að sjá félagið aftur á meðal þeirra bestu eftir að hafa fallið niður um deild,“ sagði Wenger og bætti við.

„Ég er nú búinn að vera hjá Arsenal í 18 ár og það eina sem ég hugsa um er að koma mínu liði áfram í keppninni í baráttu við gott lið.“

Arsenal stoppar á sama stað

Arsenal hefur fallið úr leik á þessu stigi keppninnar fjögur ár í röð. Wenger segir liðið hafa lært ýmislegt á þessum árum.

„Frakkarnir segja eflaust að við séum sigurstranglegri en það truflar okkur ekki neitt. Það er ekki til neitt sem heitir auðveldir leikir í Meistaradeildinni. Öll lið sem komast á þetta stig eiga skilið fulla virðingu.“

Í liði Monaco er gamall refur sem enskir knattspyrnuáhugamenn muna eftir. Sá heitir Dimitar Berbatov en hann er nú orðinn 34 ára gamall.

„Þó svo hann sé orðinn þetta gamall er hann enn að spila frábærlega. Hann býr yfir mikilli tækni og það er ástæðan fyrir því að hann á svo langan og gifturíkan feril. Hann er ekki eins góður og fyrir tíu árum en er ótrúlega klókur. Það má aldrei líta af honum.“

Leikirnir hefjast klukkan 19.45 og verða í beinni á sportstöðvum Stöðvar 2 Sport og einnig má fylgjast með og sjá mörkin á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×