Fótbolti

Lazio í góðri stöðu eftir fyrri leikinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lazio er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn í Þýskalandi.
Lazio er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn í Þýskalandi. vísir/getty
Fimm leikir fóru fram í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Manchester United vann 3-1 sigur á Club Brugge á Old Trafford þar sem Memphis Depay fór á kostum.

Balde Keita tryggði Lazio sigur á Bayer Leverkusen þegar hann skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu.

Sporting frá Lissabon vann 2-1 sigur á CSKA Moskvu og Íslandsvinirnir í BATE Borisov unnu sömuleiðis 1-0 sigur Patrizan frá Belgrad.

Þá vann Astana APOEL frá Kýpur með einu marki gegn engu.

Seinni leikir liðanna fara fram á miðvikudaginn í næstu viku.

Úrslitin í kvöld:

Manchester United 3-1 Club Brugge

(1-0 Michael Carrick, sjálfsmark (8.), 1-1 Memphis Depay (13.), 2-1 Depay (43.), 3-1 Maraoune Fellaini (90+4).

Lazio 1-0 Bayer Leverkusen

(1-0 Balde Keita (77.).

Sporting Lissabon 2-1 CSKA Moskva

(1-0 Teófiló Gutíerrez (12.), 1-1 Seydou Doumbia (40.), 2-1 Islam Slimani (82.).

BATE Borisov 1-0 Patrizan Belgrad

(1-0 Mikhail Gordejchuk (75.).

Astana 1-0 APOEL

(1-0 Baurzhan Dzholchiev (14.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×