Fótbolti

Messi virtist skalla mótherja í æfingaleik í gær | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Vísir/Getty
Lionel Messi missti stjórn á skapi sínu í 3-0 sigri Barcelona á Roma í æfingaleik á Nou Camp í gær.

Messi fékk gult spjald fyrir viðskipti sín við varnarmanninn Mapou Yanga-Mbiwa en atvikið varð eftir rúmlega hálftíma leik.

Messi virtist skalla Mapou Yanga-Mbiwa áður en hann greip um hálsinn hans. Argentínumaðurinn varð greinilega mjög pirraður eftir samskipti sín við franska landsliðsmanninn. Frakkinn fékk líka gult spjald eins og Messi.  

Lionel Messi hefur aldrei fengið rautt spjald á ferli sínum með Barcelona en hann er orðinn 28 ára gamall og hefur alla tíð spilað með spænska liðinu. Messi hefur aftur á móti fengið einu sinni rautt spjald í leik með argentínska landsliðinu.

Messi skoraði sjö mínútum eftir atvikið eftir sendingu frá Neymar. Messi var síðan tekin af velli eftir 60 mínútna leik en hann bar fyrirliðabandið hjá Barcelona í gær.

Það er hægt að sjá myndband af Messi úr leiknum í gær hér fyrir neðan en atvikið sést eftir 2 mínútur og 20 sekúndur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×