Fótbolti

Carvajal: Ég beit hann ekki | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gekk mikið á hjá Dani Carvajal og Mario Mandzukic í leiknum í gær.
Það gekk mikið á hjá Dani Carvajal og Mario Mandzukic í leiknum í gær. Vísir/AFP
Það var hart tekist á í fyrri leik Madridarliðana Atlético og Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær en liðin gerðu þá markalaust jafntefli á heimavelli Atlético Madrid.

Eitt umdeildasta atvik kvöldsins gerðist eftir klukkutíma leik þegar Real Madrid leikmaðurinn Dani Carvajal virtist bæði bíta og slá Króatann Mario Mandzukic.

Dómararnir tóku ekki eftir neinu og Dani Carvajal slapp með skrekkinn. Hann gat ekki neitað því að hafa slegið til Mandzukic en fór hinsvegar á twitter eftir leikinn þar sem hann neitaði því að hafa bitið  Mandzukic.

„Ég sá eftir leikinn að ég var sakaður um það að hafa bitið mótherja. Við skulum hafa eitt á hreinu, ég hef aldrei bitið neinn eða reynt að bíta neinn," skrifaði Dani Carvajal á twitter.

Hér fyrir neðan má sjá myndband með þessu umdeilda atviki og það er Ríkharð Óskar Guðnason sem lýsir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×