Fótbolti

Jose Mourinho: Réðu ekki við pressuna að vera manni fleiri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/AFP
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, horfði upp á sína menn detta út úr Meistaradeildinni í kvöld þrátt fyrir að vera manni fleiri í 90 mínútur og komast tvisva sinnum yfir á móti PSG.

Paris St-Germain jafnaði metin tvisvar manni færri og komast á endanum áfram í átta liða úrslitin á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

„Ég vil reyna halda ró minni og ræða við mína leikmenn af hverju við duttum út. Ég vil fá að vita hvernig þeim leið á vellinum og reyna að finna lausnir," sagði Jose Mourinho við Sky Sports eftir leikinn.

„Frammistaða okkar var ekki nógu góð. Mótherjinn var sterkari en við og þeir réðu betur við pressuna. Það var meiri pressa á okkur að vinna af því að við vorum ellefu á móti tíu og þeir höfðu engu að tapa," sagði Jose Mourinho.

„Við fengum á okkur tvö mörk úr föstum leikatriðum og það er erfitt að sætta sig við það. Á síðasta tímabili töpuðum við 3-1 og það var bara ein leið í boði. 1-1 voru hættuleg úrslit. Við reyndum að vinna en það var of mikil pressa á liðinu þegar við urðum manni fleiri," sagði Mourinho.

„Það voru fáir í liðinu að spila nægilega vel og þeir voru líka að spila betur sem eitt lið. Þeir hafa ástæðu til fagna en það er ekki minn stíll að sparka í borð og hurðir eftir lélegan leik. Þá er tíminn til að vera rólegur og greina leik liðsins," sagði Mourinho.

„Þeir voru grimmir og voru klókir eins og við köllum þetta á meginlandinu. Það er ekki talið vera klókt að spila svona á Englandi," sagði Mourinho.

„Liðin frá meginlandinu eru betur tilbúin að ráða við sálfræðilega þáttinn í tengslum við svona leik," sagði Mourinho.


Tengdar fréttir

Tíu menn PSG slógu Chelsea út í framlengingu | Sjáið mörkin og rauða spjaldið

Franska liðið Paris Saint-Germain varð í kvöld fjórða liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir að liðið náði 2-2 jafntefli á móti Chelsea á Stamford Bridge í dramatískum leik svo ekki sé meira sagt. Paris Saint-Germain fer þar með áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

David Luiz: Þetta er stórkostlegt fyrir alla í París

David Luiz átti mikinn þátt í því að slá út sína gömlu félaga í Chelsea út úr Meistaradeildinni í kvöld en Paris St-Germain fór áfram í átta liða úrslit á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×