Fótbolti

Porto enn ósigrað í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Danilo fagnar jöfnunarmarki Porto í kvöld.
Danilo fagnar jöfnunarmarki Porto í kvöld. Vísir/Getty
Basel og Porto skildu jöfn í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld, 1-1.

Heimamenn komust yfir í upphafi leiks með marki Derlis Gonzalez en gestirnir, sem eru enn ósigraðir í Meistaradeild Evrópu í vetur, skoruðu mark sem var dæmt af síðar í hálfleiknum.

Jöfnunarmarkið kom þó loksins á 79. mínútu en Danilo var þar að verki og skoraði hann úr vítaspyrnu.

Mark Danilo var mikilvægt enda á Porto síðari leikinn á heimavelli þann 10. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×