Fótbolti

Ronaldo segir Real Madrid betra en Atletico

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Það gekk ekkert upp hjá Ronaldo gegn Atletico
Það gekk ekkert upp hjá Ronaldo gegn Atletico vísir/getty
„Real Madrid er betra en Atletico en við verðum að sanna það á vellinum,“ sagði Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid eftir tapið gegn Atletico Madrid í gær.

„Ég held að við vinnum titilinn í lok tímabils.

„Það gekk ekkert í leiknum. Þetta er dagur til að gleyma. Real Madrid á aldrei að tapa 4-0. Ekki fyrir neinu liði.

„Okkur skorti vilja og við vorum hvorki líkamlega né andlega ferskir. Við höfðum stuttan tíma til að jafna okkur eftir leikinn á miðvikudaginn,“ sagði Ronaldo.

„Liðið er lagi en við gerðum stór mistök í dag. En þetta voru þrjú stig töpuð. Ekki meira en það. Ekki fjögur stig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×