Fótbolti

Barcelona bakaði baskana í Bilbao | Sjáðu markasúpuna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Uss, ég er að fara að skora.
Uss, ég er að fara að skora. vísir/getty
Barcelona er aðeins einu stigi á eftir Real Madrid í toppbaráttunni í spænsku 1. deildinni í fótbolta eftir glæsilegan 5-2 sigur gegn Athletic Bilbao á útivelli í gærkvöldi.

Barca bakaði baskana í Bilbao með frábærum sóknarleik, en Lionel Messi, Luis Suárez, Neymar og Pedro voru allir á skotskónum auk þess sem Oscar De Marcos skoraði sjálfsmark.

„Ég var ekkert orðinn stressaður því eina sem ég hugsa um er að hjálpa liðinu. En ég vissi að mörkin myndu koma með hjálp frá samherjum mínum og liðsfélögum. Og nú eru þau mætt,“ sagði kampakátur Luis Suárez eftir leik en hann hefur átt erfitt uppdráttar fyrir framan markið í búningi Barcelona.

Atlético setti titilbaráttuna í uppnám með ótrúlegum 4-0 sigri í Madrídarslagnum um helgina, en Real er efst með 54 stig, Barcelona í öðru sæti með 53 stig og Spánarmeistararnir í þriðja sæti með 50 stig.

Hér að neðan má sjá mörkin sjö sem skoruð voru í baskalandi í gær.


Tengdar fréttir

Öruggt hjá Barcelona í Bilbao

Barcelona vann öruggan 5-2 sigur á Athletic Club frá Bilbao á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×