Fótbolti

Mikilvægt að svara fyrir sig

Wenger var nokkuð léttur á blaðamannafundinum í gær.
Wenger var nokkuð léttur á blaðamannafundinum í gær. vísir/getty
Arsenal missteig sig gegn Stoke um síðustu helgi og stjórinn vill að liðið svari fyrir sig í Meistaradeildinni í kvöld.

Arsenal er þegar komið áfram í sextán liða úrslit keppninnar en Wenger vill að liðið svari fyrir tapið gegn Stoke í leiknum gegn Galatasaray í Tyrklandi í kvöld.

„Það er gríðarlega mikilvægt að svara fyrir sig eftir tapleik. Þetta verður leikur númer 180 hjá mér í Meistaradeildinni og það sýnir að þetta lið hefur alltaf svarað fyrir sig," sagði Wenger.

„Við viljum sýna í þessum leik að varnarleikurinn er ekki eins slakur í raun og við sýndum gegn Stoke. Liðið lenti í vandræðum þar en gafst ekki upp og svaraði fyrir sig. Það vantaði reynslu í vörnina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×