Fótbolti

Arbeloa og Varane byrja gegn Liverpool

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Spænskir fjölmiðlar segja að varnarmennirnir Alvaro Arbeloa og Raphael Varane verði í byrjunarliði Real Madrid sem mætir Liverpool í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Pepe spilaði með Madrídingum gegn Granada um helgina þrátt fyrir meiðsli en mun hvíla á morgun. Varane kemur inn í hans stað en Alvaro Arbeloa tekur sæti bakvarðarins Dani Carvajal sem meiddist aftan í læri um helgina.

Að öðru leyti verður liðið eins skipað og í 4-0 sigrinum á Granada. Gareth Bale byrjaði að æfa aftur með Madrídingum í gær eftir meiðsli en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðustu vikurnar. Ólíklegt er að hann byrji á morgun en mögulegt er að hann verði meðal varamanna Real Madrid.

Cristiano Ronaldo, James Rodriguez og Karim Benzema verða því allir í byrjunarliði Madrídinga á morgun, sem og miðjumennirnir Luka Modric, Toni Kroos og Isco.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×