Fótbolti

Valencia kaupir heimsmeistara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Shkodran Mustafi hefur náð langt á skömmum tíma.
Shkodran Mustafi hefur náð langt á skömmum tíma. Vísir/Getty
Valencia hefur fest kaup á þýska varnarmanninum Shkodran Mustafi frá Sampdoria. Hann skrifaði undir fimm ára samning við spænska liðið.

Mustafi, sem á albanska foreldra, gekk til liðs við Sampdoria í janúar 2012 frá Everton þar sem hann hafði verið í þrjú ár án þess að hafa náð að spila deildarleik. Mustafi lék 51 leik með ítalska liðinu og skoraði eitt mark.

Mustafi, sem er 22 ára, varð heimsmeistari með Þjóðverjum í sumar, en hann tók þátt í þremur leikjum þýska liðsins í Brasilíu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×