Sannleikurinn: Gefur kost á sér í 4.-5. sæti Snær Blær skrifar 9. janúar 2014 17:56 Jóhannes Guðnason
Jóhannes Guðnason gefur kost á sér í 4.-5. sæti í elleftu sætaröð, á sýningu Sambíóanna á kvikmyndinni The Wolf of Wall Street klukkan 21:00 í kvöld. Jóhannes er sitjandi á rassgatinu fyrir framan tölvu meira og minna alla daga fyrir lögfræðistofu í Reykjavík og fulltrúi Íslands á heimsmeistaramótinu í Skrabbli næsta vor. Hann situr í stjórn húsfélagsins þar sem hann býr. „Ég hef mikla ástríðu fyrir kvikmyndum og finnst Leo vera algjört æði. Ég býð fram krafta mína til að gera góða sætaröð á níu sýningunni öflugri og betri. Ég hef þá trú að með samstilltu átaki bíógesta og starfsfólks kvikmyndahúsa getum við gert þessa sýningu ógleymanlega og hafið sókn á ný í seldum miðum, poppkornssölu og á öllum þeim sviðum sem hafa árum saman þurft að líða fyrir fjárhagslega stöðu kvikmyndaiðnaðarins,“ segir í tilkynningu. Jóhannes er 29 ára og er ókvæntur.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt.
Harmageddon Mest lesið Segir Nasista hafa litið vel út í Hugo Boss Harmageddon Trommari Slipknot segist ekki hafa hætt í hljómsveitinni Harmageddon Harmageddon fer til Grænlands Harmageddon Björn Jón Bragason kvartaði ekki yfir Secret Solstice Harmageddon Samdi Can´t Walk Away í fangelsi Harmageddon Fáránlega kynþokkafullur Berndsen Harmageddon Verra fyrir sálina að vinna silfur en brons Harmageddon Gítarleikari INXS missti puttann í slysi Harmageddon Íslam í Reykjavík - seinni hluti Harmageddon Trúleysi gerir tónlist góða Harmageddon