Körfubolti

NBA í nótt: Lakers vann Oklahoma City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kobe Bryant í leiknum í nótt.
Kobe Bryant í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers vann einn sinn besta sigur á tímabilinu þegar að liðið hafði betur gegn Oklahoma City, 105-96, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Tímabilið hefur verið mjög strembið hjá stjörnuliði Lakers en liðið er í tíunda sæti Vesturdeildarinnar með aðeins nítján sigra í 44 leikjum til þessa.

Liðið hefur þó unnið nú unnið tvo leiki í röð og var sannfærandi í sigrinum gegn sterku liði Oklahoma City, einu besta liði tímabilsins til þessa, í nótt.

Kobe Bryant var með 21 stig, fjórtán stoðsendingar og níu fráköst og þá var Steve Nash með sautján stig, þar af sjö á síðustu mínútum leiksins. Pau Gasol var sem fyrr í hlutverki varamanns en hann skoraði engu að síður sextán stig í leiknum í nótt.

Lakers hafði tapað níu af síðustu ellefu leikjum sínum gegn Thunder en stigahæstur í liði gestanna var Kevin Durant með 35 stig. Þá var Russell Westbrook með sautján stig, þrettán stoðsendingar og níu fráköst.

New York vann Sacramento, 106-104, þar sem Carmelo Anthony jafnaði félagsmet með því að setja niður níu þriggja stiga skot fyrir New York. Hann skoraði körfuna sem tryggði sigurinn um 12 sekúndum fyrir leikslok og var alls með 41 stig í leiknum.

Josh Smith hefði getað tryggt Sacramento sigurinn en hann klikkaði á þriggja stiga skoti í lokasókn liðsins. Hann var með 20 stig en Jeff Teague var stigahæstur með 27 stig.

LA Clippers vann Portland, 96-83, og batt þar með enda á fjögurra leikja taphrinu liðsins. Blake Griffin var með 23 stig og níu stoðsendingar en Chris Paul er enn frá vegna meiðsla, fjórða leikinn í röð.

Úrslit næturinnar:

Boston - Miami 100-98

LA Lakers - Oklahoma City 105-96

Orlando - Detroit 102-104

Memphis - New Orleans 83-91

New York - Atlanta 106-104

Dallas - Phoenix 110-95

LA Clippers - Portland 96-83

NBA

Tengdar fréttir

Boston lagði meistarana í tvíframlengdum leik

Boston Celtics sigraði meistara Miami Heat 100-98 í tvíframlengdum leik liðanna í NBA körfuboltanum í kvöld. Paul Pierce fór fyrir Celtics með þrefaldri tvennu í fjarveru Rajon Rondo sem var greindur með slitið krossband á meðan leiknum stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×