Fótbolti

Mourinho segir Ashley Cole úr sögunni

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Mourinho fær ekki Cole til Madrid.
Mourinho fær ekki Cole til Madrid.
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir ljóst að Ashley Cole komi ekki til félagsins frá Chelsea. Cole sem er 29 ára gamall hefur verið sterklega orðaður við Madrídarliðið en nú er ljóst að hann er ekki á leið til liðs við Mourinho og félaga. „Carlo Ancelotti var mjög skýr í sínum orðum og það er líka best í fótboltanum. Hann drap allar sögusagnirnar með því að segja að enginn peningur getur keypt Ashley Cole," sagði Jose Mourinho. „Ég held að Cole hafi hugsað um að fara af persónulegum og faglegum ástæðum. Við hugsuðum um hann því hann er góður leikmaður sem ég naut þess að vinna með þegar ég var hjá Chelsea. En þegar þjálfarinn segir nei þá þýðir það hins vegar nei og ég samþykki það." sagði Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×