Fótbolti

Barcelona tryggði sér titilinn með öruggum sigri - Messi með tvö

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Barcelona fagna einu marka sinna í kvöld.
Leikmenn Barcelona fagna einu marka sinna í kvöld. Mynd/AP
Barcelona er spænskur meistari annað árið í röð eftir 4-0 sigur á Valladolid í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lionel Messi skoraði tvö marka Barcelona í leiknum og skoraði því 34 mörk í spænsku deildinni á tímabilinu.

Barcelona var með eins stigs forskot á Real Madrid fyrir leikinn og varð því meistari með sigri á sama tíma og Real Madrid þurfti bæði að vinna sinn leik og treysta á það að Barcelona tapaði stigi til þess að titilinn færi til Madrid.

Fyrsta mark Barcelona var sjálfsmark á 27. mínútu en fjórum mínútum síðar kom Pedro Rodriguez liðinu í 2-0 eftir sendingu Lionel Messi. Messi skoraði síðan þriðja markið á 62. mínútu og það fjórða á 76. mínútu en bæði mörkin hans Messi komu eftir sendingar frá Yaya Touré.

Real Madrid var komið í slæm mál áður en Barcelona komst í 1-0 því Duda kom Malaga í 1-0 eftir aðeins 9 mínútna leik. Raphael van der Vaart jafnaði leikinn á 48. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×